Andvari - 01.01.1987, Side 165
ANDVARI
JÓNAS FRÁ HRIFLU OG UPPHAF FRAMSÓKNARFLOKKSINS
163
hreyfingunni aukinn gaum og gerist pólitískur sálufélagi Hallgríms Kristins-
sonar, upprennandi leiðtoga hennar.
Nú kemur að stofnun Framsóknarflokksins og stjórnaraðild hans um miðj-
an vetur 1916-17. Þetta er flokkurinn sem Jónas velur sér og ætlar að móta
eftir sínum skoðunum. Fyrsta skrefið er að stofna dagblaðið Tímann í mars
1917. Þar er komið blaðið frá 1915, sem þá var skotið á frest, en nú flýtt aftur,
einkum til þess að styðja Sigurð Jónsson ráðherra og halda uppi vörnum fyrir
ríkisrekstur í verslun og siglingum sem tekinn hafði verið upp heimsstyrj-
aldarinnar vegna. Þótt Jónas starfaði ekki við Tímann, var hann mótandi um
stefnu blaðsins og hafði mikil áhrif með eigin skrifum. Það er athyglisvert að
Tíminn kennir sig ekki við Framsóknarflokkinn, gerir meira úr stuðningi
sínum við ríkisstjórnina og Sigurð Jónsson en við flokkinn, og í stað stefnu-
skrár Framsóknarflokksins birtir Tíminn sína eigin stefnuskrá, bæði í fyrsta
tölublaði og í upphafi annars árgangs.
Arið 1917 tók Jónas líka við ritstjórn Tímarits samvinnufélaganna — sem
staðgengill Sigurðar í Ystafelli. Hann lét af ritstjórn Skinfaxa, en var kjörinn
sambandsstjóri Ungmennafélags íslands og var æðsti leiðtogi ungmennafé-
laganna næstu fjögur ár.
Hallgrímur Kristinsson kom í þessum svifum til Reykjavíkur til starfa fyrir
Sambandið og Landsverslun. Þeir Jónas gerðust mjög samhentir, og hafði
Sigurður í Ystafelli af þeim mikla stoð sem ráðgjöfum. Á næsta ári, 1918,
fékk Hallgrímur því framgengt að Jónas varð starfsmaður Sambandsins,
einkum sem skólastjóri hins nýstofnaða Samvinnuskóla, og varð það aðal-
starf hans. Starfið hjá Sambandinu jók tengsl hans við forvígismenn Fram-
sóknarflokksins, sem margir voru einnig í forsvari fyrir kaupfélögum. (Hitt
kom síðar að tengsl Jónasar við nemendur Samvinnuskólans yrðu verulegur
þáttur í áhrifavaldi hans.)
f*að var líka 1918 sem þeir Hallgrímur, ásamt Tryggva Þórhallssyni, voru
valdir í miðstjórn Framsóknarflokksins. Þeir höfðu þá mótað „Tímaklík-
una“, óformlegan hóp u.þ.b. sjö manna sem spannaði allt í senn: fram-
kvæmdastjórn Sambandsins, blaðstjórn Tímans, miðstjórn Framsóknar-
flokksins og forstjóra Landsverslunar. Einn af stofnendum Framsóknar-
flokksins, Jón Jónsson á Hvanná, sagði sig nú úr flokknum af því að hann
saetti sig ekki við áhrif Tímamanna á ráðherra flokksins.15 Úrsögn hans má
hafa til marks um það að nú var Jónas frá Hriflu örugglega kominn í fremstu
röð áhrifamanna í Framsóknarflokknum. En þá áhrifastöðu hafði hann orðið
að vinna sig upp í eftir að flokkurinn varð til.