Andvari

Árgangur

Andvari - 01.01.2006, Síða 30

Andvari - 01.01.2006, Síða 30
28 INGVAR GÍSLASON ANDVARI Alþýðuflokkur samþykktu að aukaþing um sumarið afgreiddi fjárlög fyrir næsta ár, 1932. Tryggvi Þórhallsson var áfram forsætisráðherra og samráðherrar Ásgeir Ásgeirsson og Jónas Jónsson. Þessi stjórn sat u.þ.b. 10 mánuði, nánast sem starfsstjórn. Eigi að síður varð ríkis- stjórnin að sinna erfiðum og aðkallandi málum, sem réðust af áhrifum heimskreppunnar sem fór vaxandi 1931-1932. Ekki varð hjá því kom- ist að grípa til innflutningshafta og draga verulega úr ríkisútgjöldum, þ. á m. til verklegra framkvæmda. Mjög tók að bera á atvinnuleysi meðal verkamanna og sjómanna. Viðskiptaástand um heim allan var afar óhagstætt. Islendingar voru ekki einir um að þola viðskipta- og innflutningshömlur. Viðskiptafrelsi heimsins var í fjötrum jafnt austan hafs sem vestan, þótt ástandið í Bandaríkjunum væri hvað verst. Á Islandi var kreppan ekki síst fólgin í sölutregðu á mikilvægustu útflutningsgrein landsmanna sem var saltfiskur. Að því kom að salt- fiskmarkaður á Spáni hrundi vegna styrjaldarástands í því landi auk kreppuáhrifa. Þessu voru hvorki stjórnvöld né framleiðendur viðbúnir. Við þessu fundust ekki önnur ráð en viðskiptahömlur og samdráttarað- gerðir. Pólitísk staða ríkisstjórnar Tryggva Þórhallssonar þá 10 mánuði sem hún átti eftir að sitja að þessu sinni var vitaskuld veik. Hún gat ekki framfleytt sér til lengdar á frægum kosningasigri. Nauðsynlegt var að styrkja stjórnarfarið með samstjórn fleiri flokka. Tryggvi Þórhallsson varð skyndilega fyrir heilsuáfalli, sem neyddi hann til að biðjast lausnar frá ráðherrastarfi. Eftir talsverð átök í þingflokki framsóknarmanna varð það að ráði að Ásgeir Ásgeirsson freistaði þess að mynda sam- steypustjórn. Hann hafði til þess stuðning Tryggva gegn andstöðu Jónasar og nokkurra náinna samherja hans. Jónas sjálfur kom ekki til greina sem forsætisráðherraefni og mun hann raunar hafa talið að gefa ætti formanni Sjálfstæðisflokksins umboð til stjórnarmyndunar. Ekki mun sú tillaga hafa átt mikinn hljómgrunn í þingflokknum, enda tókst Ásgeiri eftir nokkurt þóf að mynda þriggja manna stjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks. Þegar Ásgeir leitaði formlegs stuðnings þingflokks síns við þessa lausn, greiddu fimm þingmenn atkvæði gegn stjórnarmynduninni, þ. á m. Jónas Jónsson. Þetta var fyr- irboði frekari ágreinings í flokknum sem átti eftir að leiða til klofnings hans einu og hálfu ári síðar. Ríkisstjórn Ásgeirs Ásgeirssonar settist að völdum 3. júní 1932. Eftirminnilegast um gerðir þessarar ríkisstjórnar var að Alþingi samþykkti verulegar breytingar á þingmannafjölda. Þingmenn urðu 49 í stað 42, landkjör var fellt niður, en úthluta skyldi
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170
Síða 171
Síða 172
Síða 173
Síða 174
Síða 175
Síða 176
Síða 177
Síða 178
Síða 179
Síða 180
Síða 181
Síða 182
Síða 183
Síða 184

x

Andvari

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.