Andvari - 01.01.2006, Page 55
andvari
EYSTEINN JÓNSSON
53
sem fest hefur svo í sessi að það er notað í íslandssöguriti Sögufélagsins
{Island á 20. öld) um þessa viðleitni íhaldsandstæðinga að halda
Sjálfstæðisflokknum í skefjum.
Kosningabandalag Framsóknarflokks og Alþýðuflokks náði ekki
hlgangi sínum, en eftir kosningar vorið 1956 var mynduð vinstri
stjórn, sem nýstofnað Alþýðubandalag stóð að með Alþýðuflokki og
Framsóknarflokki. Hermann Jónasson var forsætisráðherra og lagði sig
allan fram um að stjórnin héldi saman sem lengst. En stoðir þessarar
nkisstjórnar voru ekki traustar, þar bar allmargt á milli svo að hún
héldi velli. Saga þessarar ríkisstjórnar er vel kunn og verður ekki rakin
hér frekar. Helst er þó að minna á að eftir þetta millispil um umbóta-
bandalag Framsóknarflokks og Alþýðuflokks, sem ekki heppnaðist,
hófst þriggja kjörtímabila langt stjórnarsamstarf Sjálfstæðisflokks og
Alþýðuflokks og lauk ekki fyrr en með myndun ríkisstjórnar undir
forsæti Ólafs Jóhannessonar sumarið 1971. Að þeirri stjórn stóðu
Framsóknarflokkur, Alþýðubandalag og Samtök frjálslyndra og vinstri
manna. Þessi stjórn stóð þrjú ár og var athyglisverð tilraun til lífvænlegs
samstarfs vinstri sinnaðra manna í landinu. Hún gekkst fyrir mörgum
góðum málum, rak markvissa landsbyggðarstefnu, færði landhelgina
ht í 50 mílur og lagði grunn að stórbættu heilbrigðiskerfi, svo nokkuð
sé nefnt. En enn fór sem fór, grunnstoðir og innviðir brustu. Stjórninni
varð ekki haldið saman. Stjórnarsamstarfinu lauk með þingrofi vorið
1974. Þótt það sé utan eiginlegs tímaramma þessarar ritgerðar má
minna á að enn var efnt til vinstri stjórnar haustið 1978 (eftir alllangt
stjórnarmyndunarþóf). Ólafur Jóhannesson lét hálfnauðugur undan
rneð að stýra stjórn þessari, en hún var skammlíf. Alþýðuflokksmenn
höfðu forgöngu um að slíta samstarfinu eftir ár, enda baðst Ólafur þá
lausnar fyrir sig og ráðuneytið í heild. - Saga vinstri stjórna bendir
ekki til að þeim sé ætlað langlífi. Sýnist það verðugt verkefni stjórn-
málafræðinga að skýra þá staðreynd, því mörgum hlýtur að vera sárt
una þá tilhugsun að aldrei verði unnt að mynda langlífa stjórn nema
Sjálfstæðisflokkurinn sé með í leiknum - og Framsóknarflokkurinn!
Eysteinn Jónsson varð ekki ráðherra eftir 1958. Hann hélt forustusæt-
Urn sínum í flokknum og þingflokknum, var flokksritari þar til hann
tok við af Hermanni Jónassyni sem formaður Framsóknarflokksins
1962 og gegndi formannsstarfi til 1968. Hann hélt áfram formennsku
þþingflokknum til 1969 og hafði þá gegnt því starfi óslitið frá 1943.
Olafur Jóhannesson var formaður Framsóknarflokksins eftir starfslok