Andvari - 01.01.2006, Blaðsíða 111
ANDVARI
„KVÆÐIÐ UM GUTTA RÉÐI ÖRLÖGUM MÍNUM"
109
Kormákur horfði á bróður sinn og glotti. - Ég skil, sagði hann.
- Nei, þú skilur ekki. Ég öfundaði þig lengi af sjónarmiðunum þínum, réttsýni þinni
og dómgreind. Þú stalst því öllu frá mér, eins og mér fannst þú stela frá mér hamingju
minni með fríðleik þínum, gáfum þínum og ljúflyndi þínu. Ég hafði þig alltaf fyrir
rangri sök og vissi það sjálfur.21
Allt frá barnæsku er hatur Snorra á bróður sínum tilhæfulaust og nánast
sjúklegt. Framkoma hans við Svövu, Jóku, föður sinn og Guðlaugu er oft lítt
afsakanleg. Stjórnmálaskoðanir hans byggja framan af á persónulegum duttl-
ungum.
Lýsing sögunnar á Snorra er lýsing manns sem er á valdi þunglyndis, sjálfs-
vorkunnar og ranghugmynda svo jaðrar við geðveiki. Og það tekst að gera
hana fullkomlega sannfærandi samkvæmt upplagi hans og umhverfisáhrif-
um.
Og þrátt fyrir allt fá lesendur ákveðna samúð með Snorra og skilning á því
hvers vegna hann hlýtur að breyta á þann veg sem hann gerir og á oft ekki
annars kost.
Skömmu eftir að Stefán hóf að rita Veginn að brúnni lýsir hann yfir í dagbók
sinni tilgangi sínum með sögunni.
Greip í að skrifa söguna, sem ég er að glíma við. Ég er í vandræðum með hana, því svo
mikið á hún að segja. Ég lít svo á að það séu svik og lítilmennska af rithöfundi að taka
ekki til meðferðar vandamál samtímans og félagsleg viðhorf hans.22
Fyrri heimsstyrjöldin, byltingin í Rússlandi, flutningur úr sveit í borg, hörð
stéttabarátta kreppuáranna og uppgangur kommúnisma og nasisma mynda
sögulegt baksvið Vegarins að brúnnni. Milli þess tíma sem sagan á að gerast
og ritunartíma hennar eru heimsstyrjöldin síðari, hernám Breta á Islandi og
herverndarsamningurinn við Bandaríkin, stofnun lýðveldisins, kjarnorku-
sprengjan í Hirosima, innrás Sovétmanna í Ungverjaland og uppgjörið við
stalínismann. Sumra þessara „vandamála samtímans og félagslegra viðhorfa
hans“ má sjá stað í sögunni þó þeir snerti ekki atburðarás hennar.
Þegar Snorri kemur til Reykjavíkur er hann fylgismaður Kristilega
þjóðræknisflokksins, m.a. fyrir áhrif frá læriföður sínum séra Gísla á Stað.
Flokkurinn boðar að hann sé sterkur miðflokkur sem slái á öfgarnar til hægri
og vinstri. Snorri gerist starfsmaður flokksins undir stjórn Jósafats Jónssonar,
sem síðar verður tengdafaðir hans. Hann kemst fljótt að raun um að það er
hentistefna en ekki hugsjónir sem ráða ferðinni í flokknum og hrossakaup,
mútuþægni og fjársvik eru meðal þess kristilega þjóðræknistarfs sem þar fer
fram.
Hreyfing ungnasista skákar í skjóli ríkjandi afla í þjóðfélaginu. Þeir eru