Andvari - 01.01.2006, Blaðsíða 121
ANDVARI
HAMLET VIÐ HEIMSKAUTSBAUG
119
Efnisskipun í Amlóða sögu
1. Leikaramir kynna sig. Er þetta hinn fyrsti morgunn eða bara hópur leikara
að reyna að segja sögu, búa til samfélag þar sem frelsi, jafnrétti og bræðralag
gildir?
2. Ríkisráðsfundur. Ef hinar göfugustu ræður um hvernig við getum best
lifað saman hér á jörð verða innihaldslausar, ef dýrustu hugsanir um mann-
réttindi verða orðin tóm, getur sitthvað óvænt hent, til dæmis valdarán.
3. Dansleikur. Hylla skal hina nýju stjórn, en dansinn stirðnar og minnir á
hellnaristur. Ekkjudrottningin reynir að minnast þess þegar hún var ung og
tilveran ljós og björt með blómum og fiðrildum. Kóngur reynir að hugga hana
og kemur með aðstoð forsætisráðherra síns, Gamalíels, nýjum skikk á sam-
kvæmið. Erfðaprinsinn, Amlóði, er til vandræða og með uppsteyt, en reynt er
að breiða yfir hneykslið með því að slá í vikivakadans.
4. Amlóði leystur. Sagnadans. Örvænting Amlóða. Honum finnst móðir sín
og allur heimurinn hafa svikið sig. Sjálfur er hann ekki reiðubúinn að stýra
landinu upp á gömlu býtin, auga fyrir auga og tönn fyrir tönn. Hann reynir
að ná tengslum við þegnana, en án árangurs. Hann makar andlit sitt sóti og
þykist vera galinn, sker út í tré, segist heita Brjánn og hefna föður síns.
5. Herkvaðning. Ekkert þjappar þjóðum jafn vel saman og vel lukkuð stríð.
Kóngur ávarpar þjóðina. Handan við ána býr fólk sem hagar sér öðruvísi en
við, trúir á annað og ræktar annars konar korn. Af hverju geta þau ekki verið
eins og við? Menningarhætta! Klókast er, enda löngu sannprófað, að ráðast
gegn þeim sem gætu ráðist gegn okkur! Og prinsinn ungi á að leiða herinn.
En, æ æ æ. Hann neitar að taka sér vopn í hönd. Og vægast sagt á óvirðulegan
máta. Oj bara. Landráð. Gamalíel verður að taka að sér herforystuna.
6. Fyrsti seiður. Seiðkonan birtist og kóngur býður hana velkomna. Hann
vill vita, hvernig af reiðir í hernaðinum og hvernig stjórnmálin síðan þróast.
Hún svarar í gátum, að sá sem ekki er vakinn, muni sofa lengi. Gamalíel og
herinn koma aftur með sigurbros á vör og kóngur gleymir seiðkonunni og
eltir stríðsmenn sína í blindri hrifningu. Hún fer þá með Buslubæn, sem eru
formælingar. Amlóði fikrar sig til hennar og segir kóng vera að fara á fjörur
við móður sína sem hann hafi sjálfur gert að ekkju. Spákonan segir þá fyrir
um að kóngur muni héreftir eiga erfitt með að gagnast konu. I einskonar
rítúellum dansi skiptir hún andliti Amlóða í tvo hluta, þann grimma og þann
blíða, hann er hálflitamaður, eins og góða sálin í Sezúan.
7. Lífið við hirðina. Gamalíel vill koma Amlóða sem fyrst fyrir kattarnef,
en kóngur kveðst fyrst þurfa að krækja í ekkjuna og tryggja aðrar ríkiserfðir.
Amlóði er hvort sem er galinn.
8. ídyngju drottningar. Fyrsta œvintýri. Spá seiðkonu rætist. Þegar drottn-
ing spyr Horvandil hvort hann sé getulaus, tryllist hann og segist vera mjög