Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.2006, Side 142

Andvari - 01.01.2006, Side 142
140 STEINUNN INGA ÓTTARSDÓTTIR ANDVARI Sjóferðin var erfið, tók rúmar þrjár vikur og lá Tómas mest „á spýjustokknum“ á leiðinni, gat hvorki staðið né setið, borðað né sofið, seldi stöðugt upp en gat helst haldið niðri nýju sauðaketi sem kapteinninn var svo notalegur að gefa honum. í bréfinu til föður hans kemur vel fram hvaða áhrif stórborgin hefur á Tómas við fyrstu kynni. Það sem honum sýndist af sjónum vera „brunahraun, kolsvartir hólar og þverhnýpt niður af“ reynist vera skóglendi þegar betur er að gáð.6 Og þegar í land er komið veit Tómas ekki hvort hann fer um göturnar í leiðslu eða draumi „þar [eð] ég aldrei hefði getað rúmað í höfði mér slíkan skarkala, org og ósköp, sem hér í einu umkringdu mig á allar síður“.7 Tómas lét borgarglauminn ekki glepja sig frá námi og skyldustörfum í Kaupmannahöfn. Hann tók bæði „fyrsta lærdómspróf (artium) og eins hið annað (philosophicum) með lofi“, las síðan guðfræði af miklu kappi og lauk glæsilegu embættisprófi árið 1832.8 Sama ár imprar hann á furðulegri hugdettu í bréfi til föður síns (23. apríl 1832) og biður hann að ábyrgjast lán til að kosta framkvæmd hennar.9 Hugmynd Tómasar var sú að leggja í langferð um helstu lönd Evrópu sér til menntunar, skemmtunar og fróðleiks. Tómas segir sjálfur að bóklegt nám hans vanti jarðtengingu og að hann skorti enn reynslu og þekkingu til að geta orðið að því gagni í lífinu sem hann vill: „Guðfræðin og heimspekin, sem ég hingað til hefi lifað á, halda manni fyrir ofan alt það jarð- neska og í því þær draga mann upp á við, gleymir maður því, sem fyrir neðan er. Manna-, þjóða- og veraldarþekkingin, sem er svo aldeilis nauðsynleg, til að geta verkað gagnlega í svo mörgum embættisstöðum í lífinu, er það, sem mig sér í lagi enn þá vantar...“ skrifar hann.10 I minningarorðum um Tómas segir Jónas Hallgrímsson að Tómas hafi farið fyrst og fremst í reisuna af föður- landsást: „Aðaltilgángur þessarar ferðar var að kjinna sjer ástand og siðu hinna frægstu þjóða og vísustu, bæði til að fræðast sjálfur og til að gjeta borið það síðan allt saman við ástand og siðu Íslendínga - þeirra er ferðin í raun rjettri var farin öll firir“.n Tómasi tókst að útvega nægilegt fé til fararinnar og lagði af stað í einskonar „Grand-Tour“ eða menningarreisu um Evrópu að hætti ungra sjentilmanna þeirra tíma þann 7. júní 1832.12 Hann bjó sig vel úr garði, með passa í lagi, átti úttektarnótur hjá helstu stórkaupmönnum í heimsborgum Evrópu og var með hæfilega mikinn farangur. Hann ásetti sér að „auðga sinnið sem mest með nytsömum, fögrum og háum minningum, er gæti héðan í frá gjört mér lífið notadrjúgt og ánægjusamt,.. .“.13 Leið hans lá um helstu stór- borgir, s.s. Berlín, Prag, Vín, Flórens, Róm, Konstantínópel og París. Tómas skrifaði stærstan hluta ferðasögunnar veturinn eftir að hann kom heim til íslands (1834-5)14. Sennilega skrifaði hann eftir minnisgreinum eða dagbókarfærslum frá ferðum sínum. Tómas lauk aldrei við bókina, hann dó úr berklum aðeins 34 ára gamall. Mikið vantar á að sagt sé frá ferðinni allri. Hér og þar í bókinni eru innskotsgreinar um efni sem hann átti eftir að bæta inn í og kynna sér betur og „etc.“ eða punktalína er við staði og fyrirbæri sem hann
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.