Andvari

Volume

Andvari - 01.01.2006, Page 144

Andvari - 01.01.2006, Page 144
142 STEINUNN INGA ÓTTARSDÓTTIR ANDVARI átti eftir segja ítarlegar frá (t.d. bls. 85, 179 og 192). Fylla má í sumar eyðurnar með bréfum sem Tómas skrifaði föður sínum og fleirum frá þeim borgum sem hann fór um. I stærstum hluta bókarinnar eða á rúmlega 250 blaðsíðum segir frá upphafi ferðarinnar, dvölinni í Berlín sumarið 1832 og frá hinum við- felldnu Þjóðverjum og þýskri hámenningu sem heillaði Tómas mjög. Þá segir af ferðinni til Prag og Múnchen. A landamærum Bæheims og Bæjaralands sat Tómas 5 daga í sóttkví vegna kólerufaraldurs sem geisaði um Evrópu og þar fellur ferðasagan niður um hríð. Um framhald ferðarinnar má lesa í bréfi Tómasar til föður síns.15 Kemur þar fram að hann dvaldi í tvo mánuði í Vín og hélt þaðan áleiðis til Rómar. Hann tekur svo upp þráðinn í ferðabókinni þegar hann er í þann mund að fara frá Róm, svo sáralitlar heimildir er að finna um fjögurra mánaða dvöl hans þar. Á einum stað kallar hann Róm unn- ustu sína eða amorosa (sbr. 257) og á öðrum stað skrifar hann: „Áður en eg vissi af eður vildi var mig borið að þeim tímanum er eg skyldi yfirgefa hina indælu Rómaborg, hvar eg hafði átt næstum 4ra hina ánægjuligustu mánuði og sælustu daga ævinnar" (253). Tómas hafði frétt af skemmtisiglingu um Miðjarðarhaf með gufuskipi sem lá við bryggju í Napólí. Þangað ætlaði hann að fara þótt hann ætti reyndar ekki fyrir farinu og treysti bara á að gæfan yrði sér hliðholl. Hann var vanur að taka slíka áhættu; „Ætti maður aldrei að tefla á tvær hættur, kemst maður heldur ekkert" átti hann til að segja.16 Það varð úr að Tómas komst einhvern veginn með þessu skipi en þar endar ferðasagan með kaflanum „Ályktan bókarinnar" sem hefur átt að vera lokakafli hennar. I bréfum Tómasar kemur fram að hann sigldi um Miðjarðarhafið tæpa fjóra mánuði, hélt síðan landleiðina frá ftalíu til Frakklands; til Parísar (þar sem hann veiktist af berklunum) og eftir átta vikna erfiða sjúkdómslegu komst hann til Lundúna og Hamborgar og þaðan til Kaupmannahafnar í maí 1834. Ferðalag hans hafði tekið tæp tvö ár og hann sneri aftur fullur eldmóðs og reynslunni ríkari en það var dýru verði keypt. Upp frá því var Tómas Sæmundsson merktur dauðanum, ævistarfið og ferðabókarskrifin örvænt- ingarfullt kapphlaup við tímann. í bréfi til Jónasar, dags. 6. september 1835, segist Tómas ekki hafa tíma til að sinna ritstörfum vegna búskaparstarfa og prestverka og Ferðabókin sitji alltaf á hakanum.17 Ég er oft hálfmelankólskur að hugsa um, til hvers guð hafi látið mig lifa svo lengi, ef æfi mín á ekki að verða til neins nema rétt með mæðu og óþægð að hafa af fyrir lífinu! Síðan ég fór norðan í vor um sumarmálin hefi ég ekki komist til að taka á ferðabókinni og mér finnst ég vera búinn að gleyma því öllu, og ekki finst mér ég hafa lyst til að sýsla þar neitt við, því ég sé mér engan tíma til að stúdera svo mikið sem það útkrefur. Þokuandarnir eru þannig strax búnir að taka úr mér allan kjark...18 í bréfi til Konráðs Gíslasonar frá 29. júlí 1840 er Tómas enn að hugsa um Ferðabókina og gerir sér fyllilega ljóst að tíminn er að renna út: „Þegar ég er
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.