Andvari - 01.01.1949, Qupperneq 9
ANDVAÍU
Magnús Sigurðsson bankastjóri
5
urði og stækkað frá því, sem verið hafði, og verzluninni
haldið áfram. Stendur Liverpoolshúsið enn, i svipuðu horfi
og Sigurður endurreisti það, þótt nokkuð hafi það verið
stækkað síðar. Þegar Magnús Sigurðsson fæddist, bjuggu for-
eldrar hans í Kristjánshúsi við Fischerssund, og ólst hann
síðan upp á heimilum þeirra í Reykjavík. Var Sigurður kaup-
maður Magnússon valmenni, en reyndist valt veraldargengið,
er hann vegna verzlunaróhappa og viðsjálla kaupunauta varð
öreigi og lét af verzlun. Ólst Magnús bankastjóri síðan upp
við fátækt, og verður ekki hjá því stýrt, að þess sé getið
hér, því að skapgerð hans mótaðist að ýmsu leyti af þeim
lifskjörum, og hinn stálminnugi maður mundi ætíð síðan,
hvað fátæktin er og byrði hennar. Eru fátækir stúdentar
og aðrir umkomulitlir, er siðar heimsóttu hann í bankann,
þar til vitnisburðar. Á bankastjórnarárum Magnúsar var
hann sæmdur mörgum heiðursmerkjum, sem ég ætla, að hann
hafi metið nokkurs, en stjörnukrossinum á brjósti hans,
sem blikar þótt i myrkri sé, er hann sæmdur af fátækum
ínönnum, er hittu fyrir bróður og vin, þar sem hann var.
Þannig var minni hans og hjartalag. Hér gætti bæði veikleika
og styrkleika hins gætna bankastjóra.
Heimili foreldranna var þungt og þar fyrir að sjá uppeldi
liarnanna og menntun þeirra. Voru þau systkini 5: Jón
Hjaltalín, er síðar varð prófessor, Magnús, Ingibjörg kennslu-
kona, Guðrún, er jafnan var heilsuveil og nú er látin, og
Ingvar cand. phil. og rithöfundur. Var Ingvari létt af heim-
ilinu, er heiðurskonurnar Kristín Sigurðardóttir og Anna Þ.
Pétursdóttir í Kristjánshúsinu tóku hann í fóstur og lcost-
uðu til mennta. En nógu var samt fyrir að sjá. — Var Berg-
ljót Árnadóttir kvenhetja og verðskuldar að skrást á fremstu
siðu þar sem góðra mæðra er getið.
Að vinna og gera það, sem hægt er, var einkunnarorð syst-
kinanna. Fór Magnús ungur í vegavinnu á sumrin og lcom
lieim að haustinu, útitekinn, vaxinn upp úr fötunum og svo
með ltrónurnar, sem hann rétli móður sinni og komu i góðar
þarfir.