Andvari - 01.01.1949, Síða 11
andvari
Magnús Sigurðsson bankastjóri
7
Varð Magnús málfærsluraaður við Landsyfirréttinn, og hafði
hann fljótt mikið að gera. Vakti hann traust á sér fyrir
giftudrjúga málfærslu. Voru honum á málfærsluárunum falin
til flutnings mörg stórmál og þótti jafnan sigursæll. Um eitt
skeið höfðu þeir málfærsluskrifstofu saman, Magnús og
Sveinn Björnsson, sem nú er forseti íslands; biðu beggja
þeirra manna stórbrotin störf í þágu lands og lýðs, og vissu-
lega hefur málfærslan reynzt góður skóli til kynningar um
hagi þjóðarinnar og undirbúnings því, er verða skyldi. — A
fyrstu árum málfærslu sinnar (1908) hvarf Magnús frá því
slarfi um stundarsakir, er hann var settur sýslumaður i
Gullbringu- og Kjósarsýslu og jafnframt hinn fyrsti bæjar-
fógeti Hafnarfjarðarkaupstaðar. En er embætti það var veitt,
tók hann aftur til óspilltra málanna við lögfræðistörfin í
Reykjavík. Gegndi hann þeim síðan óslitið þar til hann varð
bankastjóri Landsbankans.
Á málfærsluárum Magnúsar Sigurðssonar urðu miklar
sviptingar og hörð átök um forustu Landsbankans. Mun varla
verða sagt, að stefnubreytingar um verkefni bankans og
starfsemi hafi valdið þessu. Hið gamla og nýja þóf stjórn-
málaflokkanna og forráðamanna þeirra fann þarna vettvang
til skylminganna, og gekk þá á ýmsu. Sat Magnús þar á á-
horfendabekk og átti nokkurn kost á að kynnast því, er
fram fór. Var hann m. a. eitt sinn skipaður til rannsóknar
um ásigkomulag bankans og heimilisháttu þar. Eigi var
skýrsla hans birt, en vissulega fékk hann með þessu og á
margan annan hátt aðstöðu til að kynnast málefnum bank-
ans, hvað að væri og hvað gera þyrfti honum til aukins
vegs og frama. — Áttu ýmsir á þessu tímabili högg í annars
garð, merkir og mikilhæfir menn að vísu, en eigi þess um-
komnir að friða bankann til fulls eða treysta honum það
virðingarsæti, er hann verðskuldaði sem þjóðbanki ís-
lendinga.
Eftir alþingiskosningarnar 1916 varð nokkur sveifla á
flokkafylkingum Alþingis. Fyrir tilstilli „óliáðra bænda“, sem
voru nýliðar á sviðinu, náði Sigurður Jónsson landkjöri og