Andvari - 01.01.1949, Blaðsíða 27
andvahi
Örgumleiði, gerpir, Arnljótarson
23
nafn hins laxdælska Víga-Hrapps í huga, er hann feðraði
hinn nýja Víga-Hrapp og kallaði Örgumleiðason. Nafnið
^umarliði var sannarlega vel til þess fallið að minna á heitið
Orgumleiði. Bæði nöfnin eru eins liðuð, jafnlöng og hljóma
hkt, enda hafa þau sex bókstafi sameiginlega. En hér kemur
°g fleira til greina. Um 1190 bjó að Tjörn í Svarfaðardal
^aður að nafni Sumarliði Ásmundsson. Fjallar einn af þátt-
unx sögu Guðmundar dýra um Sumarliða og Ingimund nokk-
Urn frænda hans. í upphafi þáttarins er greint frá kvenna-
niálum Ingimundar og vígaferlum, sem af þeim hlutust.
Heiniild þessa hefur Njáluhöfundur þekkt og haft í huga, þá
er hann samdi þáttinn af Hrappi Örgumleiðasyni. Ingimund-
ur er orðaður við tvær konur, svo og Hrappur. í báðum til-
tellum er önnur konan ekkja, sem á gifta dóttur. Um sam-
hand Ingimundar og ekkjunnar Þorgerðar á Brattavelli er
homizt svo að orði: „Og síðan var hann þar mjög lengi, og
vnr það mælt, að hjal væri á með þeim.“ En um Hrapp og
Hallgerði er orðanna hljóðan þessi: „Hann var þó lengstum
Grjótá, — það mæltu sumir, að vingott væri með þeim
Hallgerði og hann fífldi hana, en sumir mæltu því í móti.“
á hinn bóginn leikur ekki á tveim tungum um viðhorf hinna
hvennanna tveggja, þeirra Ásgerðar á Kálfskinni og Guðrúnar
Huðbrandsdóttur, til Ingimundar og Hrapps.
Víga-Hrappur vegur Ásvarð gæzlumann Guðrúnar, er hann
vildi hlutast til um samskipti þeirra. Ingimundur drepur
Helga prest Halldórsson í Árskógi fyrir þá sök, að hann lét
0rð falla um sambúð Þorgerðar og Ingimundar. Drápið á sér
stað með öxarhöggi í stofunni í Árskógi. „Þá var karlfátt
heima, og hvíldu allir menn í stofu.“ Komst Ingimundur á
hlaupi undan. Hrappur vegur Ásvarð með öxi og gengur
siðan í stofu Guðbrands föður Guðrúnar, „og var fátt manna
i stofunni.“ Einnig hann kemst undan á hlaupi. Eftir ódæði
sitt hélt Ingimundur á fund Brands biskups Sæmundssonar,
»en biskup vildi ekki skrifta honum, kallar hann þess verð-
an, að hann væri af lifi tekinn." Samt sendi biskup þennan
fordæmda óbótamann til Sumarliða á Tjörn, og dvaldi hann