Andvari - 01.01.1949, Page 30
26
Barði Guðmundsson
ANDVARI
nafni Víga-Hrapps og viðurnefni afa hans. Böðmóður gerpir
og hóhninn Örgumleiði ættu að nægja, þvi að bak við ætt-
færslu Hrapps liggja bersýnilega hugrenningar, sem varða
Svarfdæli og málefni þeirra.
Þótt það séu aðeins líkur, sem benda til þess, að hólminn
Örgumleiði hafi legið í eða hjá Grundarengjum, er reynandi
að athuga, livað kunnugt sé um Grund frá tímum Njáluhöf-
undar. Það er sjálfgefið, að örnefnið Örgumleiði muni
naumast hafa verið þekkt af öðrum en Svarfdælum og svo
einhverjum utanhéraðsmönnum, sem aðild áttu að eignamál-
um þar í sveit. I siðarnefndum flokki verður að ætla, að
Njáluhöfundur hafi verið. Grund kemur tvisvar við sögu á
13. öld. Eftir Örlygsstaðabardaga lét Kolbeinn ungi Arnórs-
son „heyja skuldadóm eftir Sighvat Sturluson í Eyjafirði.
Var þá dæmt af örfum allt fé það er Sighvatur hafði átt,
bæði lönd og Iausafé.“ Halldóru ekkju hans og Tuma syni
þeirra „var fengin Grund í Svarfaðardal, og bjuggu þau þar
fyrst,“ segir Sturla lögmaður Þórðarson í íslendingasögu
sinni. Einnig er Grundar getið í sögu Þorgils skarða. Sið-
sumars 1255 höfðu þeir þar stefnumót frændurnir Þorvarður
Þórarinsson og Þorgils skarði Böðvarsson. Er komizt svo að
orði: „í þenna tíma kom austan úr fjörðum Þorvarður Þór-
arinsson og með honum Finnbjörn Helgason. Þorvarður sendi
orð Þorgilsi, að þeir skyldu finnast í Svarfaðardal. Fór Þor-
varður þingum um alla sveit og leitaði sér viðtölcu og fékk
eigi. Reið Þorgils norður Heljardalsheiði. Fundust þeir á
Grund i Svarfaðardal."
Vart getur leikið efi á því, að Grund í Svarfaðardal hafi
verið meðal þeirra jarða, sem Sighvatur Sturluson hafði átt.
Þess vegna fær ekkja hans að hafast þar við eftir skulda-
dóminn. Sumarið 1245, þá er Kolbeinn ungi var að dauða
kominn, voru Þórði Sighvatssyni kakala „uppgefnar sveitir
fyrir norðan Öxnadalsheiði og svo öll hans föðurleifð.“ Firnm
árum siðar fór hann alfarinn af landi burt og andaðist í Nor-
egi þann 11. olctóber 1256. Er fregnin um andlát hans barst
til íslands, hóf Steinvör á Keldum, tengdamóðir Þorvarðar