Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1949, Page 52

Andvari - 01.01.1949, Page 52
48 Hákon Bjarnason ANDVARI Skúli Magnússon fékk barrplöntur til Viðeyjar, og tórðu þær í nokkur ár, unz þær vesluðust upp. Nokkrir aðrir munu hafa reynt Htils háttar ti! að gróðursetja tré, þótt lítið viti menn um slíkt nú. Eina tréð, sem gróðursett var á þessari öld og enn hjarir, er reynirinn framan við svonefnt Laxdals- hús á Akureyri. Mun hann vera gróðursettur árið 1797 af Lever kaupmanni á Akureyri. Eggert Ólafsson, Ólavius og' nokkrir aðrir benda á nauð- syn þess að koma í veg fyrir frekari eyðingu birkiskóga. Af þeim orsökum munu nokkrar konunglegar fyrirskipanir bafa verið gefnar út til þess að hefta skógaspjöll, og enn fremur voru gefin út fyrirmæli um gróðursetningu skóga. Slíkar fyrir- skipanir komu ekki að neinu haldi, eins og högum manna var háttað þá. Á 19. öldinni miðaði einnig skammt í þessum málum. Mörg- um góðum og merkum mönnum var ljóst, að eitthvað yrði að gera, en þekking manna og geta var mjög naum. Var því lítið aðhafzt fyrr en líða tók að aldamótunum. Að vísu má ekki gleyma þeim Skriðufeðgum, Þorláki Hallgrímssyni og Jóni Þorlákssyni Kærnested. Þeir settu niður mcrg tré við Eyjafjörð, og lifa sum þeirra ennþá. Árið 1888 kom út lítil bók eftir séra Jón Bjarnason, prest í Vesturheimi. Nefndist hún „ísland að blása upp“. Séra Jón var greindur maður og athugull, og hann hafði hleypt heim- draganum, farið til Ameríku og kynnzt ýmsu, sem ritað var á enska tungu um landspjöll og skemmdir skóga. Sá hann skjótt, að sömu lögmál gilda á íslandi og annars staðar um samhengi og jafnvægi i ríki náttúrunnar. Skrifar hann svo ágætar lýsingar á eyðingu landkosta og jarðvegs á íslandi sam- kvæmt því, er hann hafði sjálfur séð og heyrt. Ritgerð séra Jóns er mjög merk og ekki sízt af því, að þetta mun hið fyrsta, sem ritað er á íslenzlcu, er sýnir sambandið milli búsetu og uppblásturs. En séra Jón dregur allt of víðtækar álvktanir af niðurslöðum sínum. Hélt hann því fram, að enginn mann- legur máttur gæti forðað landinu frá því að leggjast í auðn sakir uppblásturs. En séra Jóni er nokkur vorkunn, því að á

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.