Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1949, Page 63

Andvari - 01.01.1949, Page 63
andvari Framtið skógræktar á íslandi !>í) skaga. Þær hafa daí'nað ágætlega, bæði i Fossvogi við Reykjavík, í görðum einstakra manna og á Tumastöðum í F'ljótshlíð. Síðar hefur komið hingað fræ frá ýmsum héruð- um við Vilhjálmsflóa og af Ivenaiskaga, en plöntur af því 'ræi eru allar ungar enn. Vaxa þær yfirleitt ágætlega vel. í*ess má geta, að sitkagrenið frá Kenaiskaga, sem vaxið hefur íl bersvæði á Tumastöðum í 5 ár, hefur aldrei látið hið minnsta á sjá vegna veðurs, og kal er alveg óþekkt enn sem komið er. Þó hafa sum vorin verið köld og þurr. Á. Hall- °rnisstað hefur sitkagrenið vaxið siðan 1938, en því miður niJÖg hægt. Orsökin getur ekki verið önnur en sú, að þar er aHt of lítil úrkoma fyrir grenið. Bendir það í þá átt, að ræktun sitkagrenis sé hæpin norðan lands og austan, þar sem úr- koman er miklu minni en sunnan lands. Fjallaþöll (Mountain hemlock, Tsuga mertensiana, Sarg.) ei mjög harðgert en nokkuð seinvaxið tré. Hún vex á sömu smðum og sitkagrenið, en víkur alls staðar fyrir þvi á frjó- soniustu og skjólsælustu stöðunum. Hins vegar vex hún alls staðar ofan við það í fjöllum og nær lengra inn í landið, þar sem úrkoman mir.nkar. Fjallaþöllin er mildu harðgerari en sitkagrenið, og því er ræktun hennar trygg, bæði þar sem sitkagrenið þrífst og eins þar, sem sumur eru styttri og úr- konia minni. Fyrir því er ekki minnsti vafi á, að þessi tegund getur átt mikla framtíð hér á landi. Viður þallarinnar er harður, en nokkuð stökkur. Fyrsta fjallaþallarfræið barst bingað til lands árið 1944, og eru plöntur af því enn mjög smáar. Er þvi engin reynsla enn fengin fyrir vexti fjalla- þallar hér, en ekki þarf að efa, að hún muni reynast vel. Því miÖur eru enn aðeins til fáein hundruð plantna þessarar teg- undar, og því mun enn löng bið, áður en unnt verður að gróðursetja hana í stórum stíl. Hvítgreni (Picea canadensis, Mill.) vex niður að sjó við Cooksfjörð. Annars er þetta meginlandstré, sem vex yfir þvert meginland Norður-Ameríku. Gæði viðarins eru lík rauðgreni- VlÖi- Hvítgrenið er miklu smávaxnara og seinvaxnara en sitkagrenið. Sennilega mundi það gefast vel á Norðurlandi,

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.