Andvari - 01.01.1949, Side 78
74
Bergsveinn Skúlason
ANDVARI
er haft fyrir satt, að ef annar lundinn úr holu sé drepinn
eða verði fyrir slysförum, þá komi óðar annar og hjálpi
þeim, sem eftir lifir, við útungun og uppeldi ungans, svo
að hann missi einskis í við fráfall foreldrisins. — Fyrir-
myndar samfélag víða í ríki náttúrunnar. —
Venjulega er lundaunginn ekki fiðraður fj'rr en upp úr
miðjum ágúst — 17 eða 18 vikur af sumri. — Kofan búin,
eins og það er kallað. Hefst þá undirbúningurinn undir
kofnafarið. Oft er þá milcið um að vera, þar sem mikil
kofnatekja er. Allir, sem vettlingi valda, fara í kofnafarið.
— Karlmennirnir leggja frá sér orf og Ijá og ltvenfólkið
hrífuna. Allt annríki heyskaparins er gefið upp á bátinn.
Karlmennirnir fara að brýna kofnagoggana og járnin, sem
höfð eru að vopni í þeirri viðureign, sem í hönd fer. Kven-
fólkið hýr sig undir að reyta kofuna. Svo fær það ærinn
starfa við að bæta og staga fatagarma af karlmönnunum,
scm notaðir eru við þetta verk, en annars ekki hversdagslega.
Einkum þarf að ganga vel frá hnjám og olbogum á fötunum,
því að á þeim mæðir mest, þegar menn velta sér og skríða
á lundabölunum. Húsbóndinn þarf að bregða sér í útieldhús
og draga þar niður hangikjötskrof og magála — venjulega
])að síðasta af ársforðanum — og í hjalla, til að sækja þang-
að harðfisk og hákarl. Kaffi og sykur er haft í frekara lagi;
og svo munu flestir lcofnafarsformenn, a. m. k. meðan kofna-
tekjan stóð með mestum blóma, hafa dregið að sér einhverja
lögg af brennivini og haft með í kútholu, til að hressa menn
sina á, ef illa vildi til með veður eða þá í lok kofnafarsins,
ef allt gckk að óskum. — Nestið í kofnafarið var aldrei
skorið við nögl; en kæmi slíkt fyrir einhvers staðar, þótti
það ekki auka hróður heimilisins.
Þegar svo öllum útbúnaði var lokið, var báti ýtt úr vör
og lagt af stað í úteyjar. — Lundi verpir aldrei svo neinu
nemi í byggðum eyjum. Hann er styggari og varari um sig
en svo.
Sjálf kofnatekjan hefst á því, að kofnamennirnir raða sér
á lundabalann, sem hyrja skal að taka í, fara hljóðlega og