Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1949, Side 89

Andvari - 01.01.1949, Side 89
andvahi Alþýðinnenntun og skólamál á íslandi á 18. öld 85 °S svo almenna fræðslu í landinu. Þegar Steinn biskup Jóns- son á Hólum andaðist undir árslok 1739 og til umræðu kom, bvern skipa ætti í sæti hans, var það tillaga Jóns að skipa crlendan mann i embættið. Hefur sú afstaða hans hlotið mis- JAfna dóma og verið metin honum til ræktarleysis við land sitt °g þjóð. Aðrir telja, að með þessari fráleitu tillögu hafi hann Vjljað draga það á {anginn, að skipaður yrði maður i bisk- npssæti á Hólum, meðan tillögur hans um endurbætur á skól- tinum og öðru, er við kom biskupsembættunum, lágu í salti. hn kalla mátti, að allfast væri eftir því sótt, er tveir prestar heiman af íslandi sigldu til Kaupmannahafnar 1740 til þess að reyna að krækja í biskupsembættið, þeir Halldór Brynjólfs- ^on, siðar biskup, og Björn Magnússon, siðar prestur á Grenj- aðarstöðum. Víst er, að í samráði við Jón Þorkelsson benti hirkjustjórnarráðið á lausn á þessu máli, er ríkisstjórnin féllst siðan á og fullkomlega svaraði tilgangi Jóns og vilja og mætti þvi vera runnin beint frá honum sjálfum. Var ákveðið, að sijórnin sendi trúnaðarmann sinn hingað til þess að kynna ser af eigin raun hagi skólanna og svo kirkjustjórn og kristni- hald í landinu. Þessum trúnaðarmanni skyldi falið að fara oieð biskupsvald í Hólabiskupsdæmi um sinn. Valinn var til sendifarar þessarar danskur prestur, Ludvig Harboe, síðar hiskup í Þrándheimi og á Sjálandi, hinn ágætasti inaður fyrir hlestra hluta sakir, en aðstoðarmaður hans, meðan hann dveldist á íslandi, var ráðinn Jón Þorkelsson. Skyldi nú séð, hversu haldgóðar reyndust lýsingar hans á högum skólanna, °8 hversu tillögur hans til umbóta hæfðu háttum og högum a íslandi. Var Jón Þorkelsson tregur þessarar farar og bar Vlð heilsubresti, en fékk þó ekki undan þessu skorazt. Sjaldan niun ólíkari mönnum hafa skipað verið til svo vandamikils °g langvaranda samstarfs. Harboe var inanna mildastur, en glöggskyggn mjög á menn og málefni, þrautgóður og fast- lyndur. Jón var ákafamaður, harðlyndur og þó veikgeðja í senn. Er mjög skemmtilegt að athug^i það, hvernig bráðlæti, ahafi og harka Jóns mildast, svignar og mýkist við áhrif Harboes, svo að allt fellur loks í ljúfa löð, er í upphafi horfði

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.