Andvari - 01.01.1949, Qupperneq 96
92
Þorkell Jóhannesson
ANDVARI
var barnaskóli settur að Hausastöðum á Álftanesi með styrk
af sjóði þessum, sem kallaður hefur verið Thorkilliisjóður, af
hinu latneska heiti gefandans, en sá skóli stóð stutta hríð, til
1812, og hafði því að vonum ekki mikla þýðingu. Sama má
segja og þó líkast tii öllu fremur um barnaslcóla, er starfaði
um hríð í Vestmannaeyjum um miðja 18. öld, en sá skóli er
að vísu merkur fyrir þá sök, að hann mun mega teljast fyrsti
reglulegur barnaskóli hér á landi. Þessi skóli var stofnaður
að forgöngu prestanna í Vestinannaeyjum, og þó ef til vill ekki
sizt að hvötum prófastsins, séra Ólafs Gíslasonar, siðar bisk-
ups, en hann var nafnkenndur áhugamaður um barnafræðslu
á sinni tíð. Þess má geta, að árið 1744 voru 85 menn taldir
læsir í Vestmannaeyjum af 289 safnaðarmönnum þar. Er það
að vísu ekki stórum verri niðurstaða en gerðist að jafnaði i
Rangárvallaprófastsdæmi. En meðfram vegna aðsóknar ver-
manna um vertíð var sveitarbragur í Eyjum með lakara hætti
og því meiri þörf að leitast við að bæta nokkuð menningu
eyjarskeggja. Skólinn í Vestmannaeyjum var stofnaður 1745,
cn var tekið að hnigna um 1750 og féll með öllu niður fáum
árum síðar. Varð svo skammvinn sveitarbót að þeirri mennta-
stofnun. Olli féleysi og almenn deyfð mestu um þetta, enda
urðu harðindaárin 1752—57 þung í skauti flestum.
Það sem nú var sagt um gjafir til stuðnings barnafræðslu
og lítils háttar byi-jun barnaskóla, sem gerð var á 18. öld, eru
reyndar litilvægar undantelcningar, sem staðfesta þá megin-
reglu, að á öld þessari var yfirleitt aldrei um aðra barna-
l'ræðslu að ræða hér á landi en þá, sem heimilin sjálf, með að-
síoð prestanna, gátu í té látið. Því furðanlegra má það kalla,
að um aldamótin 1800 voru, að því er næst verður komizt,
langflestir landsmenn læsir á bók. Ólæsir eru þá taldir helzt
háaldraðir menn og konur og svo fáráðlingar, sem elckert gátu
lært. Hallgrímur Hallgrímsson magister, sem helzt hcfur rann-
sakað þetta efni, telur, að um 90% landsmanna hafi þá læsir
verið, og hefur menntun eða kunnátta íslendinga undir þessa
grein verið eins og jaá gerðist bezt með Norðurálfuþjóðum
og likast til betri en með nokkurri annarri þjóð. Hér skal enn