Stúdentablaðið - 17.06.1944, Blaðsíða 15
Jóhannes úi Kötlum:
ÍSLENDINGALJÓÐ
17. júní 1944.
Land míns föQur, landið mitt,
laugað bláum straumi:
eilíft valúr auglit þitt
ofar tímans glaumi.
Þetta auglit elskum vér,
— ævi vor á jörðu hér
brot af þínu bergi er,
blik af þínum draumi.
') c
Þegar svalt við Sökkvabekk
sveitin dauðahljóða,
kvað í myrkri um kross og hlekk
kraftaskáldið hljóða.
Bak við sára bœnarskrá
bylti sér hin forna þrá,
þar til eldinn sóttu um sjá
synir vorsins góða.
Hvíslað var um hulduland
hinzt í vesturblœnum:
hvítan jökul, svartan sand,
söng í hlíðum grænum.
Ýttu þá á unnarslóð
Austmenn, vermdir frelsisglóð,
fundu ey og urðu þjóð
úti % gullnum sænum.
Síðan hafa hetjur átt
heima í þessu landi,
ýmist borið arfinn hátt
eða varizt grandi.
Hér að þreyja hjartað kaus,
hvort sem jörðin brann eða fraus,
— flaug þá stundum fjaðralaus
feðra vorra andi.
STÚDENTABLAÐ
Nú skal söngur hjartahlýr
hljóma af þúsund munnum,
þegar frelsisþeyrinn dýr
þýtur í fjalli og runnum.
Nú skal fögur friðartíð
fánann hefja ár og síð,
varya nýjum Ijóma á lýð
landsins, sem vér unnum.
Hvort sem krýnist þessi þjóð
þyrnum eða rósum,
hennar sögur, hennar Ijóð,
hennar líf vér kjósum.
Ein á hörpu íss og báls
aldaslag síns guðamáls
æ hún leiki ung og frjáls
undir norðurljósum.