Stúdentablaðið - 17.06.1944, Blaðsíða 22
O R S E T A
RÖDD JÖNS F
Ávarp til Islendinga
Islendingar! Nú er þá að síðustu upp runn-
inn sá dagur, að þér ættuð að vakna úr
margra hundraða ára doðadúr, ef nokkur
rödd tímanna nær yður til eyrna, ef margra
alda kúgun og kvalræði hefur eigi gjördrepið
svo allan hug og kjark yðvarn, að þér viljið
helzt kjósa, að Danir, sem nú eru lausir frá
einveldi konunganna og eiga að fara að
stjórna sér sjálfir: að Danir af einberri náð
og miskunn, sem konungarnir hingað til hafa
sýnt landinu, taki að sér hina þöglu, dáðlausu
aumingja úti á íslandi til stjórnar og umönn-
unar héðan af eins og hingað til. Því svo
þekkjum vér miskunnsemi og góðgirni hinnar
dönsku þjóðar, að ekki sleppir hún af oss
hendinni, ef vér með þegjandi samþykki ját-
um oss og niðja vora undir hennar ótakmark-
að einveldi, meðan landið byggist. . . . Það
má einnig vera oss minnistætt, hvað bænar-
skrár eintómar hafa áorkað hingað til hjá
hinni dönsku stjórn. Vér skulum ekki seilast
langt fram i aldirnar, þegar alþingisbækur
vorar sýna árangurslausar bænarskrár. . . .
Fyrir fjórum árum hafið þér ailir mjög sam-
huga beðið um verzlunarfrelsi, en hversu hef-
ur verið farið með þessa samhuga bæn þjóð-
arinnar? Hversu mikils hafa verið metin ráð
og tillögur og bænir alþingis, eigi síður kon-
ungkjörinna þingmanna en þjóðkjörinna?
Blökkumenn á Vestureyjum fengu nýlega
frelsi sitt allt í einu., þegar þeir höfðu gert
upphlaup og þóttu hafa unnið til dráps, og þar
voru engar undanfærslur, engar fyrirspurnir,
engar „mikilvægar, ýtarlegar rannsóknir",
sem aldrei taka enda. En vér, sem biðjum
20
frelsis og sýnum með rökum, að vér bæði eig-
um það og þurfum þess við, sýnum það með
hógværð og stillingu, berum fram ósk vora
samhuga, og skirrumst jafnvel vio að ítreka
hana til að styggja ekki stjórnina, vér megum
bíða fjögur ár og það erfið og þungbær ár án
þess að njóta nokkurrar áheyrnar. Það er
ekki án orsaka, þó vér segðum: Bænir vorar
eru undir fótum troðnar og að engu hafðar,
þær eru minna metnar en þó þær hefðu kom-
ið frá herteknu landi blökkumanna, sem eng-
an rétt þætti eiga á að fá bæn sína nema
fyrir sérlega, fáheyrða náð. Ráð þingmanna
er að vettugi virt, þar eð gengið hefur verið
að kalla fyrir hvers manns dyr í Ðanmörk
og hertogadæmunum til að fá álit um þetta
mál. öll hin gömlu stjórnarráð, kansellí,
rentukammer og tollkammer, stórkaup-
mannafélagið í Kaupmannahöfn, ailir íslenzk-
ir kaupmenn, allar bæjarstjórnir og kaup-
menn í öllum bæjum í Danmörku og hertoga-
dæmunum, að minnsta kosti þeim, sem til
sjávar ná, og nú seinast stiptamtmaðurinn á
Islandi: alla hefur þurft að kveðja til að
rannsaka málið. Lítur það ekki svo út, sem
stjórnin hafi iagt sig í líma til að hugsa upp,
hversu lengi hún gæti flækt það og tafið fyr-
ir því, með þvi að senda það í kring til allra
manna, hvort sem þeim kom það nokkuð við
éða ekki?.. að stjórnin hugsi: „.. ég má
pkki gefa íslendingum frelsi, nema kaup-
'raenn leyfi, þeir eiga einkaréttinn yfir Islend-
ingum, því þeir hafa svo lengi stjórnað land-
inu í raun og veru og bundið það fastast við
Danmörku“?
. . En máske menn bíði þesá, að hinir svo
nefndu fyrirliðar þjóðarinnar, yfirvöldin,
STÚDENTABLAÐ