Fálkinn - 04.01.1965, Page 21
Þorsteinn Thorlacius hefur
brugðið sér í þægilegan
frakka frá Elg er kostar
kr. 2.685.00. Hann er með
amerískan hatt á höfði úr
svínaskinni; vinsælt
höfuðfat, sem gott er að
þrífa. Verðið er kr. 820,00.
Á höndum hefur hann
hanzka úr fóðruðu svína-
skinni er kosta kr. 446,00
og um liálsinn trefil úr
ull og silki er kostar
kr. 300,00.
FÁLKINN
NÆSTA MÁNUDAG
DAGDR
FLUGFREYJUNNAR
Ferð til Glasgow og Kaupmanna
hafnar með Svölu Guðtmunds-
dóttur flugfreyju hjá Fhigfélagi
Íslands
Steinunn S. Briem brá sér til Glasgow og Kaupmanna-
hafnar fyrir skömmu á vegum Fálkans. Steinunn lýsir
einum degi í lífi flugfreyjunnar, allt frá því að hún vakn-
ar árla morguns á dimmum og köldum vetrarmorgni og
þar til hún gengur til náða á Hótel Imperial í Kaupmanna-
höfn. Greininni fylgja margar myndir úr ferðinni.
f þessari ferð kom Steinunn víða við og aflaði fróðlegs
og skemmtilegs efnis fyrir Fáikann og mun það efni birt-
ast í næstu blöðum.
★ ★ ★
Ýmsar breytingar eru á döfinni hjá okkur og koma þær
fram í næstu blöðum. Of snemmt er að gera grein fyrir
þessum breytingum enn sem komið er, en ef lesendur
hafa einhverjar kvartanir fram að færa í sambandi við
efnisval þá viljum við gjarnan fá að heyra tillögur lesenda.
Við getum skýrt frá því strax, að bráðlega hefst í blað-
inu ný framhaldssaga eftir Ingibjörgu Jónsdóttur er nefn-
ist Röndótti trefillinn. Þetta er spennandi sakamálasaga
er gerist í Reykjavík.
Sá vandi fylgir útgáfu vikublaðs að gera sem flestum
til hæfis. Við munum reyna af fremsta megni að velja fróð-
legt, en um leið skemmtilegt efni, sem allir meðlimir fjöl-
skyldunnar geta notið. í febrúar ætti að sjást í stórum
dráttum hvernig við hugsum okkur að vinna blaðið í
framtíðinni.
FÁLKINN 21