Rauðir pennar - 07.12.1935, Page 247
in! Öll sósíalistisk blöð hafa verið bönnuð, prentsmiðj-
um þeirra lokað, öll æsingarit liafa verið gerð upptæk!
Lögregluvagnar og hraðboðar á mótorhjólum þjóta um
göturnar i hundraða tali!
Rolf: Eru höfuðin farin að fjúka? Er kommúnism-
inn upprættur í eitt skipti fyrir öll og liið nýja þús-
undárariki stofnað? Hvað hafið þér fleira af orustu-
vellinum að segja?
Mamlock (upp úr einu dagblaðinu): Yfir 200 starfs-
menn Kommúnistaflokksins liafa verið handteknir i
Berlín einni saman ....
Seidel: Læknar, kommúnistar, friðarsinnar, alþjóða-
hyggjumenn, Gyðingar ....
Mamlock: Gyðingar? — Ertu genginn af vitinu?!
Seidel (gengur fyrir liann): Hans, ég kem liingað
sem vinur þinn, og ég ráðlegg þér eindregið að yfir-
gefa borgina í nokkra daga ....
Mamlock: Og flýja frá skyldu minni ....
Seidel: Fjöldinn er gripinn af hamslausri þjóðernis-
legri æsingu — það er allsherjar herkvaðning þjóðar-
innar, eins og 1914, stórfengleg, blóðræn, örlögþrung-
in, tröllaukin, eins og náttúrufyrirbæri: „Nú vaknar
þjóð við þrumugný!"
Dr. Hirscli ryðst inn úr dyrunum með ferðatösku í hendinni.
Dr. Hirsch: Hafið þið lieyrt það, hafið þið lieyrt það?!
Rolf: Hafið þér dýnamit, sprengiefni eða ólöglega
bæklinga þarna í ferðatöskunni?
Dr. Hirscli (leggur frá sér töskuna í ofboði): Hvern-
ig dettur yður það í hug?! Það eru nærfötin mín ....
(opnar töskuna), tannbursti, sápa, nokkrar skvrlur,
nærföt, gerið þér svo vel!
Mamlock: Þér ætlið ef til vill að slást í för með
dr. Hellpach?
Dr. Hirsch (lílur i kring um sig): Er hann hér?
Hvar?! — Óskiljanlegt þetta ofsóknaræði, lierrar mín-
ir, það grípur um sig, eins og litarefni sé drevpt í vatns-
247