Vaka - 01.11.1928, Qupperneq 13
Ivaka]
UTAN ÚH HEIMI.
207
sýnn maður telji gagnslaust, segi ég: „Allt sem Og hefi
afrekað, á ég bókunum að þakka, lindum hins skyn-
samlega og góða.
Ég finn hvöt hjá mér til að segja: Elskið og virðið
hverja góða og ærlega bók. Hún mun gera yður lifið
léttbærara; hún inun, eins og vinur, hjálpa yður lil
skilnings á tilfinningum, hugsunum og viðburðum;
liún mun kenna yður að virða manninn og sjálfa yður,
mun auðga bæði skynsemi og hjarta að ást til heims-
ins, til mannsins.------
Elskið bókina, þekkingarlindina. Þekkingin ein gelur
frelsað; hún ein getur gert oss að andlega hraustum,
ærlegum, viti bornum mönnum, færum um að elska
manninn, virða verk hans og gleðjast af heiluin hug
yfir ávöxtum hinnar miklu, hvíldarlausu starfsemi
hans“.
— Saga Maxim Gorkis er hetjusaga, hin sóríengleg-
asta sem til er frá vorum dögum. Ekkert mikilinenni
nútimans hefir hafizt af sjálfum sér úr svo drepvæn-
Iegu andlegu andrúmslofti, svo lágu umhverfi til hárrar
menningar og æðstu snilldar. Hann þakkar bókunum
allt, þ. e. hæfileika sínum til að færa sér bókmenntir
í nyt, gera þær að sterkri stoð til „viðnáms gegn um-
hverfinu". Það sem gert hefir gæfumuninn milli hans
og þúsunda af bókhneigðum og gáfuðuin alþýðumönn-
um, er ekki eingöngu yfirburðir gáfnanna, heldur
fremur öllu öðru viljinn lil viðnáms gegn bælandi og
lægjandi áhrifum, kynjasterk, óbugandi ástriða að
hefjast, vaxa, skapa úr sjálfum sér, miða hátt. Hvað
sigurinn hefir kostað hann, — um það þegja endur-
minningar hans. En liðlega tvítugur skrifar hann smá-
sögur, sein eru meistaraverk, ritaðar með fullu og
frjálsu valdi menntaðs listamanns yfir efni og formi.
Hann liefir verið harður kennari sjálfs sín, ekki kveink-
að sér við að gjalda andlega menningu sína fullu verði
með ströngu sjálfsnámi.