Vaka - 01.11.1928, Blaðsíða 131
[vaka]
ÖRÐABELGUR.
385
eftir því sem þeir væru menn til. En reyndar verður
það með hverjum deginum auðveldara að ná tii kjós-
enda um Jand alit í ræðum og riti, og þar með kjósend-
um auðveldara að kynnast sem flestum þingmannaefn-
um. Þar sem Th. Th. heldur, að klíkuvald flokkanna
yrði of ríkt með því að hafa landskjör, þá mun það
koma af þvi, að hann gerir ráð fyrir hlutfallskosningu
og að flokkarnir einir tilnefni menn til kjörs, en svo
yrði ekki eftir mínum tillögum, heldur væri einmitt
hægt að safna atkvæðum um menn utan flokka og þar
með hamla á móti klíkuróðrinum.
Enn er sá kostur þessa skipulags, að ákveða má tölu
þingmanna eftir því einu, hve marga menn mundi þurfa
til að vinna þau verk, sem þinginu er ætlað að inna af
höndum, og þarf ekki sifellt að fjölga þeim, til að jafna
mismun, er verður á mannafjölda kjördæmanna.
Eg vona því, að þeir, sem óánægðir eru með kjör-
dæmaskipun vora, íhugi vandlega skipulag það, er hér
er haldið fram, áður en þeir taka stefnu í þessu máli.
Guðmundiir Finnboyason.
ÍSLENZK FRÆÐI í BRETLANDI. Þó að Bretar hafi
að vöxtum lagt miklu minna til rannsókna íslenzkra og
norrænna fræða en Norðurlandabúar og Þjóðverjar, er
skerfur þeirra að ýmsu leyti merkilegur. Thomas Gray
(1710—1771) var fyrsta erlent skáld, sem gerði sér grein
fyrir þeirri anðlegð frumlegra yrkisel'na. sem fólgin
væri í fornritum vorum, og reyndi að færa sér þau í
nyt. Hafði dæmi hans síðan víðtæk áhrif á þýzkar og
norrænar bókmenntir. England er eina land í Norður-
álfu, fyrir utan Danmörku, sem kvatt hefur islenzka
fræðimenn til dvalar og starfs við höfuðháskóla sína.
Þeir Guðbrandur Vigfússon og Eiríkur Magnússon leystu
þar háðir mikilvæg verk al' höndum, að nokkuru leyti
í samvinnu við enska rithöfunda. Síðan komu þeir W.
P. Ker og W, A. Craigie til sögunnar, háðir hinir lærð-
ustu menn í fornum fræðum og kunnugir íslenzku nú-
tíðarmáli og nútímalífi, og kenndu þeir um langt skeið
islenzk fræði í Lundúnum og Oxford. Epic and Romance
eftir W. P. Ker er enn í dag að ýmsu leyti hezta rit,
25