Vikan - 15.12.1960, Qupperneq 2
MIBUNUCmUR í KVIKHYHDAHUSUH
Af hverju getur fólk ekki beðið eftir því að myndinni
ljúki, spyr Maggi
líka áþreifanlegar sannanir fyrir þvf, að í
Reykjavík er aragrúi fólks, sem aldrei hefur
í Listasafnið komið og hefur engan hug á
að leggja leið sína þangað, þrátt fyrir lista-
verkagetraunina okkar.
Letileg hljóðfæri
Kæra Vika!
Eitt er það, sem mér finnst að Pósturinn ætti
að taka alvarlega fyrir, þvi mér sýnist að hann
láti sér fátt mannlegt óviðkomandi, það er
þessi bölvaður æðibunugangur í fólki i bíó. Um
leið og hillir undir, að myndinni fari að Ijúka, er
eins og allir sitji á nálum eða eldsvoði sé á
ferð. Það er farið að aka sér í sætunum, snýta
sér svo drynur i, geispa og gera alls konar
hundakúnstir. Konur hnýta á sig höfuðklúta og
karlmenn kveikja sér í sigarettum. Svo þegar
kemur að þvi að tónlistin verður sterkari, eins
og oft er undir lokin, brýzt loks „eldsvoðinn“
út fyrir alvöru, og allir taka að ryðjast með
pústrum og hrindingum í átt til dyra.
Þvi er nú eitt sinn þannig farið, að oft er
endir kvikmynda ekki síður listrænn en það
sem á undan er gengið. Við, þessar fáu hræður,
sem förum í bíó til þess að sjá myndina til enda,
tiltaka nakvæmlega, hvenær sýningu lýkur á
hverri mynd, svo að gestir geti fyrirfram fund-
ið út, hve lengi þeir verða að vera hverju sinni,
og sitji svo kyrrir, þar til sýningu lýkur?
Maggi.
Tillögunni er hér með komið á framfæri
með fullum stuðningi Póstsins.
Getraun eða happdrætti
Kæra Vika.
Þökk fyrir margvíslegt og skemmtilegt lestrar-
efni sem þú birtir, en ekki finnst okkur úti á
landi réttlátt að visa Reykvíkingum á hvar
myndirnar í getrauninni er að sjá, það er engin
getraun fyrir þá bara happdrætti. Okkur úti á
landi virðist réttlátt, að hið sama gildi fyrir þá
og okkur, að þeir verði að þekkja eða gizka á
rétt listamannsnafn.
Konur í klúbb.
Kæra Vika!
Gætirðu ekki komið þvi á framfæri við hljóm-
sveitirnar á skemmtistöðum í Reykjavík, að þær
létu einhvern eða einhverja spila fyrir sig, þegar
þær taka sér langa hvíld. Það er ekkert gaman
að sitja og biða eftir því að þeim þóknist að
koma aftur úr kaffi og horfa á iðjulaus hljóð-
færin á meðan.
Helga.
höfum ekkert næði til þess, því að annaðhvort
eru allir risnir úr sætum og skyggja á, eða þeir
eru á leið til dyra með ys og gný. Ég veit þess
meira að segja dæmi, að mikill hluti bíógesta hafi
verið kominn út, þegar myndin náði hámarki í
endann.
Er ekki hægt að fá kvikmyndahúsin til þess að
Konur í klúbb! Mér finnst svolítils mis-
skilnings gæta í þessu bréfi. Við bentum
öllum landsmönnum og öðrum lesendum Vik-
unnar á, hvar myndirnar í getrauninni er að
sjá, en ekki bara Reykvíkingum. Hitt er svo
hlutur, sem við hér á Vikunni eigum enga
sök á, að Listasafn ríkisins skuli vera stað-
sett í Reykjavík en ekki úti á landi. Við höfum
Þessi tillaga er líka studd — og henni komið
á framfæri.
Minnkun í að læra dans?
Kæra Vika!
Hvernig stendur á þvi, að strákum þykir
___________________________-— _____x,
ORION
Universal
ORION BARNAFÖT
ORION UNIVERSAL tveggja nálaborða er löngu viðurkennd
sem ein allra fullkomnasta heimilisprjónavélin sem framleidd
hefur verið. ORION UNIVERSAL er óvenju sterkbyggð, ná-
kvæm, handhæg og lipur i meðförum og skilar frábærlega
jöfnu prjóni. Umferðateljarinn auðveldar vinnuna til muna,
þar sem ekki þarf að leggja umf. á minnið. Með því að snúa
hnöppum á hvorum sleða vélarinnar prjónar ORION UNI-
VERSAL sjálfkrafa einf. eða tvöfalt „garðaprjón" sem svo
mjög er í tizku nú. Með þvi aðeins að snúa 2 hnöppum á vél-
inni prjónar hún hringprjón án þess að á hana þurfi að
setja nokkur auka-áhöld. Þannig má losna við saum á sokk-
um, tvöföldum treflum og öðru þvíliku.
ORION 220 er nýjasta gerðin af
ORION-PRJ ÓNAVÉLUM. Hún er
sérstaklega gerð vegna fjölmargra
óska um hentuga og ódýra prjóna-
vél fyrir fólk sem gripa vill í
prjónavél endrum og eins. ORION
220 hefur eitt nálaborð.
2 VIKAN