Vikan - 15.12.1960, Blaðsíða 22
Gamall
draumur
Sture Lagerwall heitir maðurinn með byssuna, og í janúar
næstkomandi rætist gamall draumur hans. Frá því að hann var
sárungur, hefur hann langað stórlega til þess að fara til Nairobi
og veiða ljón af fílsbaki, og nú er það ákveðið, að hann leggi
af stað i janúar. Hann er þegar byrjaður að æfa sig með skot-
vopnið heima hjá sér, og Anna María konan hans fylgist vand-
lega með. Enda ætlar hún að fylgja manni sínum til Nairobi,.
til þess að fullvissa sig um, að ljónin hafi ekki endaskipti á hlut-
verkum og veiði karlinn hennar.
Negrasöngkonan Ertha Kitt er nú komin til London til þess.
að fara með aðalhlutverk í kabarettleik, sem í (mjög) laus-
legri þýðingu mundi heita „Orðrómurinn“. Fyrir utan að'
syngja þar öllum til ánægju, vekur hún yl í brjóstum karl-
manna með því að koma fram í búningi, sem virðist verai
fulllítill á hana, og orðrómur gengur um það, að hún megii
ekki draga andann djúpt, því þá verði hún að laga saumsprett-
ur þegar sýningunni lýkur. Úr þvi að við erum að tala umi
búninginn hennar, er rétt að geta þess, að hann kostaði um:
700.000.00 kr. ísl. — svo það er betra að hún dragi andann ekkii
allt of djúpt.
Einu sinni átti Ertha tvær óskir: í fyrsta lagi ætlaði húm
að ná sér í hvítan og góðan mann. Það heppnaðist. Hún giftist;
kaupmanni að nafni William McDonald. Hin óskin: Að eign-
ast tvö börn, sem bæði hefðu ljósa hárið hans pabba síns. Sái
draumur hefur enn ekki ræzt, en vonandi vcrður þess ekkii
langt að bíða. ic
Ertha viö hljóönemann í 700 þús. kr. kjólnum.
Ertha og maöur hennar, William McDonald.
22 VIKAN