Vikan - 15.12.1960, Page 26
Öllum börnum finnst gaman að gefa eitthvað sem þau hafa búið
til sjálf og hvers vegna ekki að spara peningana fyrir jólakortunum
í ár og búa þau til sjálf. Hérna eru tvö kort í réttri stœrS, sem þiS
getið málað, klippt út og limt á pappa. Ilugsið ykkur hvað þau munu
líta vel út, þegar þið eruð búin að mála jólasveinana rauða, trén græn
ljósið gult og himinn bláan. Annars ráðið þið alveg hvernig þið hafið
þau á litinn. En notið ekki vaxliti eða pastelliti, þeir smita bara út
Ef þú þarft fleiri kort en þessi, geturðu tekið eftir þeim og ef
þið eruð mjög dugleg getið þið teiknað eftir þeim, annars leggið þið
þunnan pappir yfir, áður en þið málið, og teikniS eftir strikunum og
þegar þið teiknið i gegn, getið þið breytt teikningunum eftir vild,
sleppt einhverju eða bætt einhverju við. Þetta er t. d. alveg tilvalið
fyrir börn í skólum sem þurfa að senda ógrynnin öll af kortum.
r@\l /
•9
Þennan skemmtilega sprellikarl geturðu auðveldlega búið til á eftir-
farandi hátt: Stækkaðu fyrst fyrirmyndina á rúðupappírnum og not-
aðu rúðurnar þér til hjálpar. Þú hefur pappírinn jafnlangan og jafn-
breiðan og rúðurnar eiga að vera 2x2 cm. Þegar þú hefur lokið við
að stækka fyrirmyndina, tekur þú myndirnar upp á pappa og notar
við það kalkipappir. TeikniS upp einn búk með höfði, tvo hand-
leggi og tvo fætur (neðst til hægri). Klippið svo hlutina út og litið
annaðhvort með vatnslitum eða öðruvisi litum. MuniS eftir aS
hafa hægri og vinstri hönd ekki eins, eins er með fæturna. Búkur,
hendur og fætur eru nú sett saman með seglgarnsspottum, sem þú
bindur hnúta á, og á milli handa og fóta gerir þú stórar lykkjur, og
þegar þú togar i þær . . . Já, þá hvað? ^
L L I K A R L
1
t<
26 vixan