Vikan - 15.12.1960, Qupperneq 41
Jólabakstur og
jólasælgæti
Framhald af bls. 16.
Eggjahvíturnar eru stífþeyttar.
Flórsykri og kókósmjöli er blandað
varlega saman við. Bakað er í kringl-
óttu eða ferköntuðu tertumóti við
hægan hita (um 1 klst.), þar til rend-
ur kökunnar eru farnar að dökkna og
kakan fallega gulbrún. Þá er hún
kæld.
KremiO: Rauðurnar eru hrærðar
með flórsykrinum, Þar til þær eru
ljósar og léttar. Smjör og súkkulaði
brætt saman yfir gufu, hrært saman
við, látið yfir kökuna, þegar það er
farið að þykkna. Á jólunum er fallegt
að skreyta kökuna með grænum
marsípanblöðum eða marsípanstöfum.
Smákökur
Vaniljuhringir.
250 gr hveiti, 150 gr sykur, 150
gr smjörlíki, 1 egg, 50 gr möndl-
ur, 1 tesk. vanilja, hjartasalt á
hnifsoddi.
Möndlurnar eru afhýddar og sax-
aðar mjög smátt. Hveiti, sykri og
hjartasalti er blandað saman, smjör-
líkið mulið í, vætt í með eggi og
vanilju, hnoðað saman með möndl-
unum, kælt, hakkað og mótað í
kransa, sem eru látnir á smurða
plötu og bakaðir við jafnan, hægan
hita ljósbrúnir.
Kókoskökur.
375 gr hveiti, 250 gr kókosmjöl,
375 gr sykur, 1 tesk. hjartasalt,
250 gr smjörliki, 125 gr rúsínur,
2 egg.
Hnoðaö deig, rúllað í lengjur, sem
eru mótaðar kantaðar, — kældar,
skornar í sneiðar, bakaðar við góð-
an hita.
Hnetukökur.
3 bollar haframjöl, 1% bolli
hveiti, 1 tesk. hjartasalt, 1 bolli
púðursykur, 1 bolli strásykur,
250 gr smjörlíki, 1 bolli hnetur,
2 egg, 1 tesk. vanilja.
Smjörlíkið er hrært með sykrinum,
eggin hrærð saman við eitt og eitt.
Hveitið og hjartasaltið er sáldað
saman við haframjölið, hneturnar
saxaðar smátt og látnar saman við.
Allt er hnoðað saman ásamt vanilj-
unni. Deigið er blautt, svo að betra
er að sálda dálítið hveiti á borðið,
meðan það er mótað i lengjur, kælt
og geymt til næsta dags, skorið í
sneiðar og bakað við jafnan hita, þar
til kökurnar eru dekkri á röndunum.
Mömmukökur.
125 gr smjörliki, 100 gr sykur, 250
gr síróp, 1 egg, 500 gr hveiti, 2
tesk. engifer, 1 tesk. natrón.
Smjörið, sykurinn og sírópið er
sett í pott og hitað, — kælt. Þegar
það er næstum kalt, er eggið hrært
saman við, Hveitið er sáldað með
kryddinu og natróninu og því hrært
saman við, látið standa eina nótt,
breitt þunnt út, skorið með litlu,
kringlóttu móti, bakað við góðan
hita, tvær og tvær lagðar saman með
smjörkremi eða öðru kremi.
Smjörkrevi: 100 gr smjör hrært
lint, 150 gr flórsykur sáldaður og
hrærður saman við ásamt 1 eggja-
rauðu og 1 tesk. af vanilju.
Súkkulaðimarange.
1 eggjahvita, 20 gr kakó, 250 gr
flórsykur, 1 tesk. vatn.
Flórsykur er sáldaður ásamt kakó-
inu, vætt með eggjahvítunni og vatn-
inu, hnoðað, mótað í hakkavél í af-
aflangar, þunnar lengjur, sem eru
skornar á ská (um 7 cm), látnar á
hveitistráða plötu og bakaðar við
hægan hita.
Bornar íram með kaffi, einnig
ágætar með ís.
Brúnar kökur.
% dl síróp, 1% dl sykur, 75 gr
smjörlíki, % dl rjómi (má vera
súr), 1 tesk. negull, % msk. kan-
ill, 1 tesk. engifer,’ 400 gr hveiti, 1
tesk. matarsódi, 75 gr möndlur.
Smjörlíkið er hrært lint, sykurinn
hrærður saman við ásamt sírópinu,
hveitið, sódaduftið og kryddið sáld-
að á borð, rjóminn þeyttur, allt
hnoðað saman í þétt deig (hveiti bætt
við, ef með þarf), flatt út í þunnar
kökur, skorið með kringlóttu móti,
penslað með vatni, % mandla sett
á miðju hverrar köku, bakað við hæg-
an hita.
Ef kökurnar renna út, er hveiti
hnoðað upp í deigið. Or þessu deigi
má búa til stjörnur, hjörtu, jóla-
karla, dýr o. fl.
Jólasælgæti
Marsípan nr. I.
25 gr smjörlíki, 40 gr hveiti, um
% dl rjómi, möndludropar, 2—
300 gr flórsykur.
Smjorlíkið er brætt, hveitið hrært
saman við, þynnt með rjómanum,
kælt, flórsykurinn sáldaður, hnoöað
upp í deigið.
Marsípan nr. II.
1 dl hveiti og 1 dl rjómabland soð-
ið saman, kælt, hnoðað ásamt 200
gr af flórsykri og möndludropum.
Heimatilbúið marsípan er ágætt að
nota í konfekt. Þá eru sett í mis-
munandi bragðefni, svo sem súkku-
laði brytjað, saxaðar möndlur eða
hnetur, gráfikjur, rúsmur, döðlur
o. s. frv. saman við og hjúpað
með hjúpsúkkulaði, ef vill, —
skreytt með því, sem í er. E'inn-
ig má búa til eftirlikingar af græn-
meti og ávöxtum úr þessum massa
og nota mislit bréf til skreyting-
ar. Þetta marsípan er einnig ágætt
utan um kökur, er þá flatt út á smjör-
pappír.
Hraun.
125 gr kókossmjör eða jurta-
feiti, 65 gr flórsykur, 50 gr kakó,
65 gr hrís eða kornflök (corn
flakes).
Allt hitað saman í potti, þar til
feitin er bráðnuð, sett á smurðan
smjörpappír og látið storkna. Nota
má hnetur, möndlur og rúsínur í
staðinn fyrir hrísinn. Geymist á
köldum stað.
Piparmyntukonfekt.
250 gr ílórsykur, 1 eggjahvíta,
1 msk. rjómi, 2 dropar pipar-
myntuolia.
Flórsykurinn er sáldaður, vætt í
með hvítu, rjóma og dropum, hnoð-
að i lengjur og skorið í litla bita,
sem eru látnir storkna.
Kókosbollur.
% dl rjómi, 50 gr smjör, 25 gr
kakó, 150 gr flórsykur, 200 gr
kókosmjöl.
Smjöri, kakói og rjóma er blandað
saman í potti og hitað, flórsykri
vikan 41