Fréttablaðið


Fréttablaðið - 10.12.2009, Qupperneq 45

Fréttablaðið - 10.12.2009, Qupperneq 45
FIMMTUDAGUR 10. desember 2009 3 Í tilefni tíu ára afmælis skart- gripaverslunarinnar Aurum verð- ur boðið upp á fínasta súkkulaði í versluninni í dag. „Árin hafa liðið ótrúlega hratt og kannski er ánægjulegast að sjá hvernig hönnunin hefur þróast og orðið margbreytilegri hér heima,“ segir Guðbjörg Kristín Ingvars- dóttir, sem stofnaði skartgripa- verslunina Aurum fyrir jólin 1999. Hún hefur síðan rekið verslunina í miðborg Reykjavíkur og undan- farin ár í Bankastræti 4. Í tilefni afmælisins býður Guð- björg fólki að koma í verslunina í dag og þiggja gómsætt súkku- laði. „Það var útbúið í samvinnu við Ásgeir í Sandholt en í súkkul- aðinu endurspeglast nýjustu skart- gripirnir mínir,“ segir Guðbjörg. Hún mun enda frumsýna nýjustu skartgripalínu sína í dag en í ár hefur hún þegar hann- að þrjár aðrar línur sem kall- ast Kar- lotta, Móey og L aufey. Nafnið á síðustu línunni verður upplýst í dag en Guðbjörg læðir að blaðamanni þeirri staðreynd að sú sé mjög íslensk. Guðbjörg sækir oft innblást- ur í íslenska náttúru. Hún legg- ur áherslu á léttleika í hönnun sinni og hefur orðið þekkt fyrir þrívíddarform sín. Sumir af nýju skartgripunum eru þó með flat- ara formi auk þess sem þeir eru stærri en hún er vön að hafa þá. Þess má geta að Guðbjörg hlaut Sjónlistarverðlaunin 2008 í flokki hönnunar. Hægt er skoða og kaupa skartgripi Guðbjargar á vefsíð- unni www.aurum.is - sg Aurum í tíu ár Móey. Guðbjörg Kristín Ingvarsdóttir skart- gripahönnuður opnaði verslunina Aurum fyrir tíu árum. Uppblásanlegir brjóstapúðar gætu orðið nýjasta æðið. Við þekkjum aðhaldsnærbux- urnar sem halda inni maganum, aðhaldssokkabuxur sem móta rass og læri og silíkonpúðana sem hægt er að smeygja inn í brjóstahöldin til að gefa fyllri barm. En nú er komið nýtt leyni- vopn í baráttu kvenna fyrir hinu fullkomna útliti. Hér er um að ræða uppblásna brjóstahald- ara sem eru nú seldir í verslun- um Debenhams víða um heim. Konur hafa tekið við sér og hundruð uppblásinna brjósta- halda seldust fyrstu dagana. Tilgangur hins nýja undirf- atnaðar er að veita konum hina fullkomnu brjóstaskoru sem vitaskuld er erfitt að vera án þegar farið er út á lífið. Ótví- ræður kostur er að hægt er að blása upp á örskotsstundu en einnig tekur stutta stund að hleypa loftinu úr allt eftir því hvort sæti gluggaþvottamað- urinn eða fúli múli á móti eru nálægt. Í brjóstahaldinu eru púðar sem líkj- ast útflöttum kjúkl- ingabringum. Með því að ýta á takka pumpast loft í þá. Þannig má stækka brjóst- in um allt að eina ská la - stærð. Draum- ur hverrar konu ekki satt? Nýjasta leynivopnið Hver er hinn fullkomni barmur? Það er stóra spurningin. Hvað á að gefa í jóla-gjöf? er spurning dagsins. Í París eru sumir heppnari en aðrir því tískuhús bjóða nú viðskiptavinum að versla með afslætti, löngu áður en vetrarút- sölur hefjast. Sumum finnst súrt í broti að borga fullu verði það sem í janúar fer á útsölu. Því er verslunin í fínu tískuhúsunum ekki svo mikil fyrir hátíðarn- ar. Alltaf eru þó einhverjir sem hætta sér út á þann hála ís að reyna að klæða vini og vanda- menn og því er oft mikið um skipti milli jóla og nýárs. Fylgihlutir eru auðveldari við- ureignar því ekki þarf að finna réttu stærðina heldur aðeins það sem passar við stíl hvers og eins. Klútar og slæður geta því verið góð hugmynd fyrir dömur og herra og eru upplögð til að hressa upp á gamlar yfirhafnir eða gefa þeim dekkri og hress- ilegra yfirbrað. Verðið er eins margbreytilegt og munstrið. Hjá H & M finnast klútar á tæpar tíu evrur, hjá Kokaï á 35 evrur meðan fínu tískuhúsin eins og Louis Vuitton eða Hermès selja slæður á 350-750 evrur svo dæmi séu tekin um verð. Jólapakkar innihalda einnig oft ilmvötn og helstu framleið- endur senda gjarnan nýju ilm- vötnin á markað fyrir jólin. Hjá Guerlain er Idylle nýjasta afurð- in, Dolce & Gabbana veðjar á Rose the one og Ricci Ricci frá Ninu Ricci gæti bjargað jólunum en þetta er aðeins brot af dýrð- inni. Snyrtivöruframleiðendurn- ir leggja ekki minni áherslu á sífellt dýrari yngingarkrem sem oft eru blönduð sjaldgæfum jurt- um sem eiga að búa yfir ótrúleg- um eiginleikum og að sjálfsögðu kosta sitt. Kremin hafa því hald- ið innreið sína í gjafastríðið, upplagt í jólapakkann fyrir þá sem eiga nokkra tugi ilmvatna. Það frumlegasta er þó nýi vara- liturinn frá l´Oréal sem bland- aður er kremi sem á að vinna gegn hrukkumyndun í vörunum. Ja, allt er nú til, myndi einhver segja! Fyrir þá sem setja mark- ið hærra er auðvitað hægt að skella sér á eins og eitt Rolex með demöntum eða þá nýja blómahringinn frá eðalsk- artgripaframleiðslu Dior. Á krepputímum hækka eðalstein- ar og gull í verði og demanta er alltaf hægt að selja, ólíkt hluta- bréfum sem geta orðið verðlaus á einum degi. Ekki veit ég hvort það tengist auknu verðgildi skartgripa en einn af gömlu skartgripaframleiðendum rúss- neska keisarans, Fabergé, hefur að nýju hafið framleiðslu á eðalskartgripum eftir níutíu ára hlé. Söluaðferð Fabergé er hins vegar gjörbreytt því eðal skart- ið er selt á Netinu en ekki í búðum til að sleppa við að eyða í umgjörðina. Svo eru þeir til sem lifa í takt við breytta tíma. Bio-coop-búð- irnar í París selja bæði mat- væli og allt sem tengist lífrænni ræktun. Þar svarar starfsfólkið ef spurt er um gjafapappír: fólk getur bara pakkað inn í dagblöð! Eðalkrem og steinar í jólapakkana Karlotta. Laufey. ÚR HÁBORG TÍSKUNNAR Bergþór Bjarnason skrifar frá París
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.