Vikan - 12.09.1963, Blaðsíða 11
Anita Ekberg hefur prýtt þessa síðu áður, en ýmsum fannst
kynbomban vera heldur beljuleg í það sinn. — Til að bæta
úr þessu, birtum við nýlega mynd af Anitu, en hér sjáum við
hana ásamt eiginmanninum, Rik von Nutter. Myndin er tekin
<1 á sveitasetri þeirra í grennd við Róm.
Stórveldin hafa notað geimfarana sína eins
og hver önnur áróðursvopn, en það geta smá-
veldin vitanlega ekki ennþá. Þau verða því
að finna upp á einhverju í staðinn og hér
sjáið þið aðal mannvopnið hans Castros. Hún
heitir Bertina Acevedo og er kvikmyndaleik-
kona á Kúbu. Þarna er Bertina stödd á
Rauða torginu í Moskvu og eins og sjá má
ber hún alvæpni.
A
Vafalaust teljið þið þetta vera
Picasso þann fræga listamann, en
það er mesti misskilningur. Þetta
er enginn annar en kvikmyndaleik-
arinn Robert Mitchum sem þarna er
verið að sminka. Þessa meðferð
verður hann að þola í þrjá tíma
samfleytt, en þá er henni loks lokið.
Sminkunin er gerð í tilefni af þátt-
töku hans í nýrri kvikmynd en í
henni leika m. a. Frank Sinatra,
Burt Lancester og Kirk Douglas,
sem einnig verða að þola sömu með-
ferð. Þetta hlýtur að vera einhver
sérstök sminkun, hún kostar nefni-
lega 100 þúsund dollara vegna aðal-
leikaranna.
O Gamanleikkonan Kay Stevens, hefur verið nefnd
„Danny Kaye kvenþjóðarinnar“. Nú er komið að því
að hún og Danny leiki saman í kvikmynd, en myndin
liér til hliðar er tekin skömmu“fyrir fyrstu upptöku.
Það er eins og Danny sé að hugsa hvað þau eigi sam-
eiginlegt. En hann komst fljótlega að því, er þau fóru
að leika, hún var nefnilega engu síður skemmtileg
en hann sjálfur. — Danny Kaye er duglegur áhuga-
ljósmyndari. A litlu mynd-
inni hér að neðan er hann
að taka myndir af sam-
leikurum sínum án þeirra
„Ég elska hann Nonna vitundar. Það gerir hann
minn, þó aðrir tali illa ósialdan og kemur þeim
um hann,“ segir Valerie síðar á óvart með ^ví að
Hobson eiginkona Johns Sefa þeim myndirnar til
Profumo, sem hún minningar um samstarfið.
Kristine Keeler gerði
vitlausan í sér. Frú
Valerie virðist vera um-
burðarlynd gagnvart
eiginmanninum, varla ®
mundu allar konur þola
svona nokkuð. Myndin
af þeim hjónum er tek-
in suður í Mílanó á
Ítalíu, en þar komu þau
við á ferðalagi því, sem
þau fóru í strax þegar
Nonni var búinn að
segja af sér. Sumir
segja að þetta sé eins
konar brúðkaupsferð
hjá þeim, þau séu að
endurnýja hveitibrauðs-
dagana. Vonandi verða
þeir skorpulausir.
V
w
Við íslendingar erum
ekki lengi að tileinka okk-
ur ýmsa siði eða ósiði sem
aðrar þjóðir taka upp á.
En eitt höfum við ekki
apað eftir nágrannaþjóð-
unum ennþá (svo vitað
sé), en það er striplinga-
skapurinn. Þetta „aftur-
hvarf til náttúrunnar, eins
og striplingarnir nefna þaðl-
er að verða mjög algengt
erlendis og þar finnst bert
fólk í tuga og hundraða-
tali. Meðfylgjandi mynd
er tekin í Svíþjóð, en þar
cru striplingar taldir í
kringum 1000.
V
VIKAN 37. tbl.
11