Vikan


Vikan - 12.09.1963, Blaðsíða 32

Vikan - 12.09.1963, Blaðsíða 32
nylon nankin vinnufötin henta vel vio öll ALGENG STDRF TIL LANDS DG SJÁVAR. IZHHyj □ G yiJjl TRYGGJA VANDAÐ EFNI DG GDTT SNIÐ NYLON N AN Kl r^J STÓRAUKIN SALA SANNAR VINSÆLDIR VÖRUNNAR VIK ii * _ 4 'biimap Stjörnuspáin gildir frá fimmtudegi tii fimmtudags. ©Hrútsmerkið (21. marz—21. apríl): Þú munt þurfa að sinna ýmsu í vikunni, sem þú hefur látið sitja á hakanum undanfarið, og er vissulega ekki seinna vænna. Þér gefst tækifæri til að launa vini þínum greiða, sem hann gerði þér fyrir skömmu. Nautsmcrkið (22. apríl—21. mai): Þetta verður fremur tíðindalítil vika. Þú munt sitja mikið heima og una þér vel. Þú munt lítið hitta kunningja þína í vikunni, en allt bendir til, að þú hafir ekki nema gott af einverunni. Tvíburamerkið (22. maí—21. júní): Þú munt tefla á tvær hættur í sambandi við mál, sem þér hefur verið mjög kærkomið undanfarnar vikur, og ef að líkum lætur, mun allt fara vel, þótt ekki verði það þér að þakka. Happatala er sex. Gættu þín á gesti, sem gæti heimsótt þig á mánudags- eða þriðjudagskvöldið. Krabbamerkið (22. júní—23. júlí): Þú munt verða áþreifanlega var við það, að ákveð- in manneskja vill kynnast þér nánar. í fyrstu kann þér að virðast, að þú kærir þig ekki um slíkan kunningsskap, en sannaðu til: Úr þessu gæti orðið hin ágætasta vinátta. Ljónsmerkið (24. júlí—24. ágúst): Þetta verður fremur tilbreytingasnauð vika, eink- um, ef þú reynir ekkert til þess að koma lífi í tuskurnar. Ef þér leiðist heima, skaltu umfram allt reyna að komast að heiman og skapa þér ein- hverja tilbreytingu. Þú virðist ekki taka nóg tillit til eins fjölskyldumeðlimsins. Meyjarmerkið (24. ág.—23. sept.): Þú munt eiga skemmtilega daga, einkum þó um og eftir helgina. Mánudagurinn verður sennilega dag- ur, sem þú munt lengi minnast, enda skiptir hann þig og þína nánustu mikið. Amor verður mikið á ferli, einkum meðal fólks milli fimmtán ára og þrítugs. Vogarmerkið 24. sept.—23. okt.): Ef þér finnst þú bera of þunga byrði á baki, ætt- irðu ekki að láta það á þig fá, því sá sem ekkert leggur á sig, ber heldur ekkert úr býtum. Þú ættir að snúa þér að því verkefni, sem þú hefur hingað til látið sitja á hakanum, því það getur orðið arðvænlegt. m Drekamerkið (24. okt.—22. nóv.): Þú ættir ekki að draga það, að gera nokkrar áætl- anir fyrir nánustu framtíð, ef þú vilt ekki eiga það á hættu að verða fyrir vonbrigðum. Gerðu ekki of lítið úr hæfileikum þínum. Heillalitur er fjólublátt, og happatala þessa vikuna 25. Bogmannsmerkið (23. nóv.—21. des.): Gerðu ekki uppskátt um raunverulegar tilfinningar þínar, ef þaö hefúr truflandi áhrif á þá, sem þér eru kærastir. Hættu þér ekki út í neina tvísýnu. Kvöldstundunum er bezt varið heima í rólcg- heitum. þér ljós. Geitarmerkið (22. des.—20. jan.): Kona, sem þú þekkir lítilsháttar, kemur talsvert við sögu þína í þessari viku. Líklegt er, að þú kunnir ekki í fyrstu að meta það, sem hún getur gert fyrir þig, en brátt mun renna upp fyrir Vr.tnsberamerkið (21. jan.—19. feb.): Þú verður fyrir miklum freistingum í vikunni, og því miður bendir allt til þess, að þú verðir ekki maður til að standast þær allar, en láttu yfirsjónir þlnar verða þér víti til varnaðar. Mánudagurinn er dálítið varasamur fyrir þig, einkum ef peningar eru ann- ars vegar. ©Flskr.merkið (20. febrúar—20. marz): Hugmyndir þínar í fjármálum geta ef til vill st~ngazt illa á við þær hugmyndir, sem maki þinn hefur. Haltu þínu ekki of fast til streitu, því fleiri geta fengið góðar hugmyndir en þú. Föstudagur er ekki rétti dagurinn til að útkljá deiluefnin. — VIKAN 37. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.