Vikan - 12.09.1963, Blaðsíða 32
nylon nankin vinnufötin henta vel vio öll
ALGENG STDRF TIL LANDS DG SJÁVAR. IZHHyj
□ G yiJjl TRYGGJA VANDAÐ EFNI DG GDTT SNIÐ
NYLON
N AN Kl r^J
STÓRAUKIN SALA SANNAR VINSÆLDIR VÖRUNNAR
VIK
ii
* _
4
'biimap
Stjörnuspáin gildir frá fimmtudegi tii fimmtudags.
©Hrútsmerkið (21. marz—21. apríl):
Þú munt þurfa að sinna ýmsu í vikunni, sem þú
hefur látið sitja á hakanum undanfarið, og er
vissulega ekki seinna vænna. Þér gefst tækifæri
til að launa vini þínum greiða, sem hann gerði
þér fyrir skömmu.
Nautsmcrkið (22. apríl—21. mai):
Þetta verður fremur tíðindalítil vika. Þú munt
sitja mikið heima og una þér vel. Þú munt lítið
hitta kunningja þína í vikunni, en allt bendir til,
að þú hafir ekki nema gott af einverunni.
Tvíburamerkið (22. maí—21. júní):
Þú munt tefla á tvær hættur í sambandi við mál,
sem þér hefur verið mjög kærkomið undanfarnar
vikur, og ef að líkum lætur, mun allt fara vel, þótt
ekki verði það þér að þakka. Happatala er sex.
Gættu þín á gesti, sem gæti heimsótt þig á mánudags- eða
þriðjudagskvöldið.
Krabbamerkið (22. júní—23. júlí):
Þú munt verða áþreifanlega var við það, að ákveð-
in manneskja vill kynnast þér nánar. í fyrstu kann
þér að virðast, að þú kærir þig ekki um slíkan
kunningsskap, en sannaðu til: Úr þessu gæti orðið
hin ágætasta vinátta.
Ljónsmerkið (24. júlí—24. ágúst):
Þetta verður fremur tilbreytingasnauð vika, eink-
um, ef þú reynir ekkert til þess að koma lífi í
tuskurnar. Ef þér leiðist heima, skaltu umfram
allt reyna að komast að heiman og skapa þér ein-
hverja tilbreytingu. Þú virðist ekki taka nóg tillit til eins
fjölskyldumeðlimsins.
Meyjarmerkið (24. ág.—23. sept.):
Þú munt eiga skemmtilega daga, einkum þó um og
eftir helgina. Mánudagurinn verður sennilega dag-
ur, sem þú munt lengi minnast, enda skiptir hann
þig og þína nánustu mikið. Amor verður mikið á
ferli, einkum meðal fólks milli fimmtán ára og þrítugs.
Vogarmerkið 24. sept.—23. okt.):
Ef þér finnst þú bera of þunga byrði á baki, ætt-
irðu ekki að láta það á þig fá, því sá sem ekkert
leggur á sig, ber heldur ekkert úr býtum. Þú ættir
að snúa þér að því verkefni, sem þú hefur hingað
til látið sitja á hakanum, því það getur orðið arðvænlegt.
m
Drekamerkið (24. okt.—22. nóv.):
Þú ættir ekki að draga það, að gera nokkrar áætl-
anir fyrir nánustu framtíð, ef þú vilt ekki eiga
það á hættu að verða fyrir vonbrigðum. Gerðu
ekki of lítið úr hæfileikum þínum. Heillalitur er
fjólublátt, og happatala þessa vikuna 25.
Bogmannsmerkið (23. nóv.—21. des.):
Gerðu ekki uppskátt um raunverulegar tilfinningar
þínar, ef þaö hefúr truflandi áhrif á þá, sem þér
eru kærastir. Hættu þér ekki út í neina tvísýnu.
Kvöldstundunum er bezt varið heima í rólcg-
heitum.
þér ljós.
Geitarmerkið (22. des.—20. jan.):
Kona, sem þú þekkir lítilsháttar, kemur talsvert
við sögu þína í þessari viku. Líklegt er, að þú
kunnir ekki í fyrstu að meta það, sem hún getur
gert fyrir þig, en brátt mun renna upp fyrir
Vr.tnsberamerkið (21. jan.—19. feb.):
Þú verður fyrir miklum freistingum í vikunni, og
því miður bendir allt til þess, að þú verðir ekki
maður til að standast þær allar, en láttu yfirsjónir
þlnar verða þér víti til varnaðar. Mánudagurinn
er dálítið varasamur fyrir þig, einkum ef peningar eru ann-
ars vegar.
©Flskr.merkið (20. febrúar—20. marz):
Hugmyndir þínar í fjármálum geta ef til vill
st~ngazt illa á við þær hugmyndir, sem maki þinn
hefur. Haltu þínu ekki of fast til streitu, því fleiri
geta fengið góðar hugmyndir en þú. Föstudagur
er ekki rétti dagurinn til að útkljá deiluefnin.
— VIKAN 37. tbl.