Vikan

Eksemplar

Vikan - 14.01.1965, Side 47

Vikan - 14.01.1965, Side 47
F gömlu konunni á Lake Boule- vard, eftir það, sem hún reyndi að gera honum sjálfum, liefur hann áhyggjur af andliti hennar! Hvað segirðu um svona glópa? Cricket sagði bliðlega: „Ekk- ert nema allt dásamlegt." Með ástarkveðju frá Rússlandi Framhald af bls. 25. hinn helming bókarinnar. Hann fann heitt blýið við hjarta sér. Honum fannst eins og það brynni innan við riifn. Það var aðeins skarpur verkur í höfði hans, þar sem hann hafði rekizt ó efri kojuna, og fjólu- 'blór bjarminn ó skónum, sem lent hafði undir höfði hans, sem sagði honum, að hann væri ekki dauður. . Eins og fornleifafræðingur rann- sakaði Bond varlega rústir líkama síns. Hvernig fæturnir lógu í sitt hvora áttina, hvernig annað hnéð var bogið og kæmi að góðu gagni þegar á þyrfti að halda. Hægri höndin, sem virtist eins og kreppt um sært hjarta hans, var, þegar hann gat sleppt bókinni, aðeins nokkrar tommur frá litlu skjalatösk- unni — aðeins fáeinar tommur frá snjöllu saumunum, sem héldu flat- blöðuðu kasthnífunum, tvíeggjuð- um og beittum eins og rakvélar- blöðum, sem hann hafði gert grín að, þegar Q deildin hafði sýnt hon- um hvernig ætti að losa þá, og vinstri höndin, sem lá bein í dauða- teygjunum, hvíldi á gólfinu og myndi hjálpa honum til að þjóta á fætur, þegar rétta stundin kæmi. Yfir honum heyrðist hár og lang- dreginn geispi. Hann sá brúna skófæturnar hreyfast. Hann sá stríkka á leðrinu, þegar Nash stóð upp. Eftir andartak myndi hann klöngrast upp í neðri kojuna með byssu Bonds í hægri hendi og þreifa fyrir sér gegnum hármakkann á hálsi stúlkunnar aftanverðum. Svo myndi hann taka í gikkinn. Háv- aðinn í lestinni og jarðgöngunum myndi deyfa allan annan hávaða. Það yrði nærtækt. Bond reyndi í ákafa að munq einföldustu líffæra- fræði. Hvar voru banvænustu sfað- irnir í neðri hluta mannslfkamans? Hvar var aðalslagæðin? Innan á lærinu. Og þar fyrir ofan? Á miðj- um lendum. Ef hann næði hvorugu, færi illa fyrir honum. Bond lét sér ekki detta í hug, að hann gæti < staðið í þessum manni í óvopnaðri baráttu. Fyrsta stungan með hnífn- um varð að vera nákvæm. # Brúnu skórnir hreyfðust. Þeir færðust í áttina að kojunni. Hvað var maðurinn að gera? Það heyrð- ist ekkert hljóð nema hljóðið f lest- inni, sem þaut í gegnum Simplon- göngin — undir Wasenhorn og Monte Leone, tannburstaglasið skalf. Innviðirnir brökuðu þægilega. Yfir hundrað metra í báðar áttir, sitt hvoru megin við þennan dauða- klefa, svaf fólk f 'öðum eða lá vakandi og hugsaði um Iff si1t og ástir, gerði litlar áætlanir og velti því fyrir sér, hverja þeir myndu hitta í Gare de Lyon. Og allan þann tíma var dauðinn í för með þeim, í gegnum þessi sömu, dökku jarð- göng, á eftri þessari sömu, stóru díselvél, á'sömu, stálgljáandi tein- unum. Annar brúni skórinn lyftist frá gólfinu. Hann hlaut að hafa lyft fætinum yfir Bond. Viðkvæmur bog- inn var nú opinn yfir höfði Bonds. Vöðvar Bonds herptust eins og í snáki. Hægri hönd hans færðist þessa fáu sentimetra að hörðum brúnum skjalatöskunnar. Ýta til hliðar. Finna mjótt skaftið í hendi sér, draga það hálfa leið út, án þess að hreyfa handlegginn. Brúnn hællinn lyftist frá gólfinu. Táin bognaði og tók þungan. Nú var seinni fóturinn horfinn. Látlaus hreyfing til að færa þung- an hingað, taka viðbragðið hér, þrífa fast um hnífinn, svo hann snerist ekki I höndum hans og svo . . . f einum áköfum hringsnúning vatt líkami Bonds sig upp af gólf-- inu. Það blikaði á hnífsblaðið. Hnefinn með langa stálfingrinum, handleggur Bonds og axlir fylgdu á eftir, þeyttust upp á við. Hann rak hnífinn á kaf, dýpra, dýpra. Ömurlegt óp barst til hans. Ber- ettan hrundi á gólfið. Hnífurinn var þrifinn úr höndum hans, um leið og ofsalegur skjálfti fór um manninn og hann datt niður. Bond hafði búizt við fallinu, en um leið og hann hörfaði undan í áttina að glugganum, greip útrétt hönd hann og sló hann út að sæt- unum. Áður en hann gat risið á fætur aftur, reis þetta hræðilega andlit upp af gólfinu, augun fjólu- blá og skínandi, fjólubláar tenn- urnar. Hægt og hryllilega fálm- uðu þessar tvær stóru hendur eft- ir honum. Bond lá til hálfs á bakinu og sparkaði frá sér í blindni. Skórinn hans festist. Það var tekið um fót- inn og snúið upp á, og hann fann, að hann rann í gólfið. Hann klór- aði eftir handfestu, en höndin, sem hélt fætinum, hafði færzt upp á lærið. Neglurnar þrýstust inn í hold hans. Það var snúið upp á hann og hann dreginn piður. Bráðum myndi maðurinn bíta hann á barkanri. Bond sparkaði og sparkaði með lausa fætinum. Ekkert gerðist. Hann var að láta undan. Allt í einu fundu leitandi fing- ur Bonds eitthvað harf. Það var bókin! Hvernig átti að nota hana? Hvað. var upp og hvað var niður? Myndi hún skjóta hann eða Nash? [ örvæntingu hélt Bond bókinni upp að stóra svitastorkna andlitinu. Hann þrýsti á kjöl bókarinnar. Klikk! Bond fann skotið ríða af. Klikk-klikk-klikk-klikk. Nú fann Bond hitann undir fingrum sínum. Hend- urnar voru orðnar máttvana. Svita- storkið andlitið var á leið niður á gólfið. Einhver hávaði kctm úr þess- um skelfilega hálsi, ógnarlegur gvolgrandi hávaði. Svo féll líkam- inn fram yfir sig á gólfið og höfuð- ið skall í timburklæddan vegginn. Bond lá kyrr og másaði milli samanbitinna tannanna. Hann starði upp í fjólublátt Ijósið yfir dyrun- um. Hann tók eftir því, að Ijósið var mismunandi sterkt. Aðra stund- ina skært, en dofnaði svo á víxl. Það flaug gegnum huga hans, að rafallinn undir vagninum hlyti að vera í ólagi. Hann deplaði augun- um og hann sveið í þau. Hann lá grafkyrr og gat ekkert við þessu gert. Hávaðinn í lestinni breyttist. Varð holari. Með sama jafna hraðan- um þaut Austurlandahraðlestin út í tunglsljósið og hægði þar á sér. Bond teygði letilega úr sér og kippti í rennitjaldið. Hann sá vöru- hús og hliðarpalla. Ljósin skinu skært á teinana, góð, skær Ijós. Ljósin í Sviss. Lestin nam hljóðlega staðar. I stöðugri, syngjandi þögninni heyrð- ist eitthvað á gólfinu. Bond bölv- aði sér fyrir að hafa ekki gengið úr skugga um það. Hann beygði sig í flýti niður og hlustaði. Hann hélt bókinni fyrir framan sig og var reiðubúinni að skjóta, ef ske kynni. Engin hreyfing. Bond teygði sig niður og þreifaði á hálsslagæð- inni. Enginn sláttur. Maðurinn var steindauður. Það höfðu aðeins ver- ið hreyfingar líksins. Bond hallaði sér aftur á bak og beið óþolinmóður eftir því að lest- in legði af stað á ný. Það var margt, sem gera þurfti. Jafnvel áður en hann gæti athugað Tatiönu, varð hann að þrífa til. Með litlum kipp lagði langa hraðlestin hægt af stað. Brátt yrði hún komin á mikin hraða niður eft- ir Ölpunum í áttina til Canton Val- ais. Það var nýtt hljóð komið í .hjólin — eins og þau væru glöð yfir því að göngin væru að baki. Bond reis á fætur, steig yfir út- g'lennta fótleggi líksins og kveikti á aðalljósinu. En sú sjón! Klefinn var eins og sláturhús. Hversu mikið blóð var í einum líkama? Fimm lítrar. Þarna var hægt að sjá það allt í einu. Bara að það læki nú ekki fram á ganginn. Bond reif upp öll rúm- fötin úr neðri kojunni og hófst Ihanda. Að lokum var það allt um göt- ur gengið — veggirnir stroknir og hreinir og gólfið að líkinu, þar sem það lá, og töskurnar tilbúnar til að stinga af við Dijon. Bond drakk heila flösku af vatni. Svo klöngraðist hann upp og tók varlega ( pelsinn. Það vra ekkert svar. Hafði mað- urinn logið? Hafði hann drepið hana með eitri? Bnod tók um háls hennar. Hann var hlýr. Hann náði í annan eyrna- snepilinn og kleip. Stúlkan titraði lítið eitt og andvarpaði. Aftur kleip Bond í eyrað og aftur. Að lokum sagði hún loðmælt: — Vertu ekki að þessu. Framhald í næsta blaði. APPELSÍN SÍTRON L I M E Svalandi - ómissandi á hverju heimili VIKAN 2. tbl.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.