Vikan - 12.01.1967, Qupperneq 4
Þóroddur, hvítklæddur og meó sól-
lijálm í hendinni, í skreiðarbúð í Lagos.
Skreiðin er seld í stykkjatali til neyt-
enda. Konan til vinstri við Þórodd er
eigandi búðaðinnar, en til hægri við
hann standa tveir nígerískir skreiðar-
innflytjendur. Lengst til vinstri skima
nokkur innfædd ungmenni fremur tor-
tryggnislega móti myndavélinni.
e>
Til hægri á myndinni er kona I»ór-
odds, frú Sigríöur Júlíusdóttir, sem
tvívegis hefur farið með manni sínum
til Nígeríu. Iljá henni standa nígerískir
skreiðarkaupmenn. Myndin er tekin
framan við skreiðarbúð í Aba, en til
vinstri sést önnur búð, þar sem seld
eru notuð föt. Mikið af slíkum fatn-
aði er flutt inn til Nígeríu, einkum
frá Bandaríkjunum.
Skreiðarbúð í Aba, Nígeríu. Pokunum
liefur verið flett niður til hálfs, svo-
neytendur geti séð vöruna.
TAKTU IIG HEÐ
ÞÉR TIU KOLDU
EWRÓPU SVO
ÉO VERÐI HVÍT
1
i
\
|
i
Múrskreyting húsa í Norður-Níger-
íu. Sá hluti landsins hefur öldum
saman búið að menningaráhrifum
frá Norður-Afríku, er síazt hafa
eftir verzlunarleiðum suður yfir
Sahara.
Uppbygging hefur verið geysileg í
Nígeríu síðustu árin. Hér sést ný-
tízku hótel í Kaduna, sem er ein
af helztu borgum Norður-Nígeríu.
4 ViKAN 2 tbI
Nígería er eitt þeirra mörgu
ríkja, sem orðið hafa til í Afríku
á síðustu árum, eftir að nýlendu-
veldi Evrópumanna þar tóku að
leysast upp. Hún er langt frá því
að vera stærst þeirra að flatar-
máli -— þótt hún sé að vísu víð-
lendari en nokkurt Evrópuland
að Rússlandi undanskildu, en
hins vegar er hún þeirra miklu
fólkflest (íbúar um 50 millj.)
og líklega auðugust af náttúr-
unnar gæðum. Hún hefur því
verið talin eiga meiri framtíð
fyrir sér en flest önnur hinna
nýju ríkja. Margt sem gerðist
fyrstu árin lofaði líka góðu; í
landinu var allfjölmenn yfir-
stétt, sem hlotið hafði evrópska
menntun í trúboðsstöðvum og
brezkum háskólum og sýndi
óvenjulegan dug til að samhæfa
hin framandi evrópsku áhrif að-
stæðunum heima fyrir. Nígería
var meira að segja kölluð eina
lýðræðisríkið í Afríku. En svo
fór allt i bál og brand milli
tveggja af helztu þjóðflokkum
landsins; Hásanna norður frá,
sem flestir eru Múhameðstrúar
og búa að æfagömlum íslömsk-
um menningaráhrifum, sem í
mörg hundruð ár hafa seytlazt
suður yfir Sahara, og íbóa í suð-
austurhluta landsins, sem margir
eru kristnir og mótaðir af
brezkum og evrópskum menn-
ingaráhrifum.
Nígería hefur um árabil verið
í röð mikilvægari viðskiptalanda
okkar íslendinga; þangað selj-
um við stærsta hlutann af
skreiðarframleiðslu okkar. Sá ís-
lendingur, sem líklega hefur
unnið mest og bezt að því að
koma þessum viðskiptum á og:
halda þeim gangandi, er Þórodd-
ur E. Jónsson, sem um áratuga
skeið hefur rekið umboðs- og
heildverzlun í Reykjavík, og
flestir, sem eitthvað þekkja til
í viðskiptaheimi okkar, munu
kannast vel við. Vikan leit ný-
lega inn til Þórodds í Hafnar-
stræti 15, þar sem skrifstofur
fyrirtækisins eru, og leitaði
nokkurs fróðleiks af kynnum
hans af meginlandinu myrka og
viðskiptasamböndum okkar þar.
— Ég hef farið sjö sinnum alls
til Nígeríu, sagði Þóroddur. — 1
fyxsta sinnið kom ég þar í janú-
ar 1955, en nú síðast skömmu:
eftir síðastliðin áramót, var þar
þá í hálfan mánuð. Ég var ekki í
beinum viðskiptaerindum í
þeirri heimsókn, heldur aðeins
að sóla mig þarna í hitanum,