Vikan


Vikan - 12.01.1967, Qupperneq 5

Vikan - 12.01.1967, Qupperneq 5
„Au31egðarfuglinn“ kalla þesslr Ni'- geríumenn þyrluna, sem nýlent er fyrir framan þá. Þeir tiieinka sér vél- tækni hvíta mannsins af mikilli hrifn- ingu. iinmatt; -wfflunuiMaa, n ■■■ innu Hér er Þároddur ásamt frú Ainnu, sem er stærsti skreiðarkaupandi í Lagos, höfuðborg Nígeríu. Hún er af þjóð- flokki Jorúba og vellrík. Kæít við: É Þórodil E. Jóusson skrciðarút{|yt|anda, ■K" ^ s l!| 4i ui viðskipti hans við M { ' vN: , 11 |Jj Nígferiiiiiieiiii o.fl. Texti: Dagur Þorleifsson v i émm meðan kuldarnir voru hvað mestir hér norður frá, og tala við karlana mína. — Það hefur verið áður en óeirðirnar hófust, sem sagt hef- ur verið sagt frá í fréttum und- anfarið. Hver heldurðu að verði endirinn á þeim látum? — Landið klofnar áreiðan- lega í smærri ríki, að minnsta kosti lítur ekki út fyrir annað eins og er. Tríburnar, þjóðflokk- arnir, koma sér ekki saman, að minnsta kosti ekki Hásar og íbóar. Ég hef stöðug bréfavið- skipti við skreiðarkaupmennina vini mína, sem flestir eru 1 íbó- Nígeríu, en tmdanfarið hafa bréfin verið miklu lengur á leið- inni en þegar allt er með eðli- legum hætti. Samgöngur innan- lands hafa verið heldur þungar í vöfum upp á síðkastið, því járnbrautarlestir og önnur far- artæki eru upptekin við að flytja flóttafólk milli landshluta. Það eru einkum íbóar, sem búsettir voru í norðurhluta landsins, sem flýja, því ofbeldismenn af þjóð- flokki Hása hafa hleypt af stað grimmilegum ofsóknum gegn þeim og drepið fjölda þeirra. — Eru þessir tveir þjóðflokk- ar þeir fjölmennustu í landinu? — Hásar munu vera fjölmenn- astir. Þeir búa flestir í norður- hluta landsins. Þar er ein helzta borgin Kanó, sem er þúsund ára gömul að minnsta kosti. Hún er heitasta borg, sem ég hef komið í. Gamli borgarhlutinn er ein- göngu leirhús og allur hinn forn- legasti. Við Kanó er nú flugvöll- ur, sem er einhver mikil- vægasta flugsamgöngumiðstöð í Afríku. Hásar hafa frá fornu fari verið ein mesta verzlunar- þjóð í álfunni og handiðnaður þeirra er frægur. í borgunum í suðurhluta landsins eru þeir oft á höttunum í kringum hótel, að selja ferðamönnum handunna muni, sem margir eru listavel gerðir. — Og ganga íbóar þeim næst að mannfjölda og áhrifum? — Nei, Jorúbar eru annar fjöl- mennasti þjóðflokkurinn. Þeir búa flestir í suðvesturhluta landsins, í höfuðborginni Lagos og þar um kring. Þriðji stærsti þjóðflokkurinn eru svo íbóar og í fjórða lagi eru það Fúlanar, sem búa víðsvegar um norðaustur- hluta landsins. Þeir eru sumir hirðingjar og yfirleitt Múham- eðstrúarmenn eins og Hásar. í gamla daga voru þeir víða ráð- andi stétt í landinu. — Hvernig stendur á þessu ósamkomulagi þjóðflokkanna? Eru þeir mjög sundurleitir hvað snertir útlit, menningu og ann- að? — Hvað útlitið snertir hef ég aldrei getað séð neinn mun á þeim. Menningarlegur munur er vitaskuld einhver, því norðurfrá er Múhameðstrúin ríkjandi, en suður frá eru menn ýmist kristnir, heiðnir eða Múhameðs- trúar. En í Nígeríu þykir það skipta heldur litlu máli, hverja trú maður játar, en hitt er meg- inatriðið, af hvaða þjóðfflokki hann er. — Hver telur þú að hafi ver- ið undirrót óeirðanna undanfar- ið? — Það er margt, sem þeir fundu sér til að rífast út af, sér- staklega Hásar og íbóar. Hvor þessara þjóðflokka um sig, og einnig hinir, hafa hver sitt eigið tungumál, sem hinir skilja yfir- leitt ekki. Hinsvegar tala menn og skilja ensku mjög almennt, enda var landið brezk nýlenda til skamms tíma. Enskan e!r því helzta opinbera málið í landinu og langmikilvægasta viðskipta- málið. En Hásar hafa viljað gera sitt mál að fyrsta opinbera máli í landinu, því það er mik- ið viðskiptamál frá fornu fari og skilst allvíða í Vestur-Afríku." Þetta hafa hinir þjóðflokkarn- ir ekki tekið í mál. íbóarnir hafa líka lengst af tileinkað sér mjög sjálfstæða afstöðu gagn- vart alríkisstjórninni í Lagos og jafnan stjórnað í sínum lands- hluta eins og þeim bezt líkaði sjálfum. Það hafe hinir ekki þolað. — Af hverju stafar einkum þessi sérstaða íbóanna? — Olían á trúlega mikinn þátt í því, þeir finna til máttar síns vegna hennar. Það eru ekki nema fáein ár síðan olía fannst í jörðu í landi þeirra, skammt frá ósum Nígerfljóts. Þarna er nú farið að dæla upp olíu í stór- um stíl, og voru fengnir til þess hvítir sérfræðingar, þar á með- al margir, sem flæmst höfðu frá Indónesíu undan Súkarnó. Olían er nú orðin einn þýðingarmestu liðanna í atvinnulífi og útflutn- ingi landsmanna, og skammt frá borsvæðunum hefur risið upp heil hafnarborg, Port Harcourt. — Það eru íbóarnir, sem kaupa Framhald á bls. 8. 2. tbi. VIKAN 5

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.