Vikan


Vikan - 12.01.1967, Side 41

Vikan - 12.01.1967, Side 41
 í BORGARSJUKRAHUSIÐ VAR EINGÖNGU NOTAÐ THERMOPANE EINANGRUNARGLER The/imöfi ÞÉR FÁIÐ EKKI ANNAÐ BETRA @1 averbel's EtifiEllT KRISTJÍNSSON A CO. BF. SÍMI 11400 kyssti Margaret á kinnina. — Hvern- ig er höfuðverkurinn? — Alveg farinn, sagði Margaret. — Komdu nú inn, ég skal blanda handa þér drykk. — Mér veitir ekki af því, sagði Bernard. — Ef þú vissir hvaða fá- vita maður hefur upp á kaup. Og þetta kallar sig skrifstofufólk. Hann snarþagnaði og benti á ferðatösk- urnar. — Hver á þetta? —■ Ég á aðra, sagði Margaret, — og þú átt hina. Ég er búin að pakka niður í þær því nauðsynlegasta fyrir okkur í tvær vikur, meðan við leit- um að annarri íbúð. Rödd Bernards var eins og hálf- kæft óp. — Nýja íbúð? — Já, nýja íbúð handa okkur, sagði Margaret. — Hérna, er þetta ekki nógur ís. — Til fjandans með allan fs, sagði Bernard, en hann saup samt hressilega á glasinu. — Hvað ertu eiginlega að tala um, kona? — Okkur, sagði Margaret, — og staðinn sem við eigum að búa á í framtíðinni. Ég get ekki búið leng- ur hérna . . . Það var tortryggni, jafnvel var- kárni [ röddinni, þegar hann sagði næstu tvö orð: — Hversvegna ekki? — Þú þekkir Wendell? spurði Margaret. — Wendell? — Já, lyftumanninn? Það sléttist aðeins úr hrukkunum á enni Bernards. — Þú meinar Wendell, sem vinn- ur hérna? sagði hann. — Hvað er með hann? — Þú manst að hann hefur lengi verið veikur í bakinu? — Já, ég man það, en hvað hef- ur það með okkur að gera? — Það virðist eitthvað hafa skaddað í honum heilann, sagði Margaret. — Ég veit að þetta hljóm- ar asnalega, en þegar ég kom heim úr sveitinni í, brá mér heldur betur, þegar ég sá að Wendell var farinn. Hann virðist vera kominn á sjúkra- hús, og ef ég á að vera hreinskilin, er mér sama þótt hann komi aldrei þaðan. Ég veit að þér finnst það hræðilegt að segja annað eins og þetta um þennan gamla, vingjarn- lega mann, en ég get sagt þér það að hann er reglulegur skítakarakter, það er alveg satt, Bernard. Ég heyrði í gær sögur, sem hann hefur breitt út um mig, þú skalt ekki spyrja hvar ég heyrði þær. — Elskan mfn góða, hvers kyns sögur? — Hann hefur sagt að ég fái herraheimsóknir í löngum bunum þegar þú sért farinn á skrifstofuna á morgnana, og ég veit ekki hvers- konar lygaþvælu. Undrunarsvipurinn á andliti Bern- ards var nú greinilegur, og Mar- garet fannst ekki alveg laust við að honum létti. — Hversvegna? sagði Bernard, en virtist svo gleyma því sem hann ætlaði að spyrja um. — Það getur vel verið, sagði Margaret, — að hann sé bara gam- all og veikur, ég meina andlega veikur, en það er alveg sama, skað- inn er skeður og ég get ekki búið hérna áfram. — Ég skil það, elskan, sagði Bernard, en svo var eins og hann hugsaði sig um. — Hversvegna get- urðu það ekki? — Vegna þess að þetta er komið út um allt húsið, sagði Margaret. — Jafnvel herra Trevor er að pískra á bak við mig. Það þýðir ekkert að vera að bera þetta til baka, það er miklu betra að fara, og ég vil fara strax. — Núna? — [ kvöld, ég vil ekki vera hér eina einustu nótt í viðbót. — En elskan mfn, það er ekki hægt að skipta um íbúð með svona litlum fyrirvara. — Ég er búin að gera ráðstafanir, sagði Margaret. — Ég fór f skrif- stofuna til Joe Carmody í morgun og hann sagði að við hefðum vel ráð á að fá aðra fbúð, þótt við værum ekki búin að selja þessa. Ég meina að peningarnir sem ég fékk eftir mömmu gera þetta kleift, svo getum við sett peningana aftur í bankann. Svo fór ég til Spencer og Georg, sem seldi okkur þessa íbúð, og ég sagði honum að ég vildi losna við hana aftur, svo fór ég yfir á Chrichton og leigði tveggja herbergja fbúð fyrir okkur, þar sem við getum verið, meðan þetta er allt að komast f kring. Það var andartaksþögn, svo sagði Bernard rólega. — Auðvitað, ég meina, ef þér finnst þetta svona voðalegt. — Mér finnst það, sagði Mar- garet. — Þá er ekkert annað að gera, sagði maður hennar. — Það er bara eitt.. . — Eitt, hvað? — Þettá er svo furðulegt að gamli maðurinn skuli hafa fundið þetta upp hjá sjálfum sér, sagði Bernard. — Wendell, svona strangheiðarlegur maður skuli gera þetta. Ég meina, hvernig fékk hann hugmyndina? Margaret yppti öxlum. 2. tbi. VIKAN 41

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.