Vikan - 23.07.1970, Side 6
MUNIÐ
NIÐURSUÐUVÖRUR
MERKIÐ TRYGGIR GÆÐIN
★
AÐEINS VALIN HRÁEFNI
★
ORA VÖRUR í HVERRI BÚÐ
★
ORA VÖRUR Á HVERT BORÐ
NiSursuSuverksmiSjan ORA hf.
Símar: 41995 - 41996
NHINKJðMI
PRJÓNAJERSEY.
Stærðir: 38—44.
m/kraga og rennilás
Kr. 548.00.
m/reimum í hálsmáíi
Kr. 648.00.
m/rennilás og vösum
Kr. 598.00.
Útsniðnar buxur úr
Terlanka (hliðstætt
Terylene), einlitar
Kr. 598.00.
Póstsendum.
Til Kittýar
Eftir því að dæma, sem þú skrif-
ar hefur pilturinn engan áhuga
á þér, og því miður vitum við
ekki um uppskriftina að ástar-
drykknum sem þekktist á tím-
um Tistrans og ísoldar. Sem
sagt: reyndu að gleyma þessu.
Skriftina vantar enn nokkra
festu, en hún er snotur. Jú, pop-
korn mun vera heldur fitandi.
Til Þriðja mannsins
Höfum áhuga á málinu og
vonumst til að heyra frá þér
fljótlega.
Brasilíumaður
í bréfvinuleit
Kæru herrar!
Fyrir þó nokkru eignaðist ég
nokkra íslenzka pennavini með
aðstoð timaritsins VIKUNNAR.
Svo hættu þær að skrifa mér,
ég veit ekki hversvegna. Mér
fannst það verulega leiðinlegt,
því að ég hef sérstaklega mik-
inn áhuga á íslandi og þess á-
gætu ibúum. Bréfvinir mínir
voru stúlkur, og kannski þær
hafi flestar gift sig og eiginmenn
þeirra kæri sig ekki um að þær
skrifi erlendum piltum. En þá
vildi ég gjarnan skrifast á við
aðrar stúlkur í staðinn. Og nú
er von mín sú að þið hjálpið
mér aftur.
ííg heiti Glaudson Roberto
Barbosa e Silva, er tuttugu og
fimm ára, hundrað áttatíu og sex
sentimetra hár og með dökk-
brún augu og hár í sama lit.
Ég bý í Amaraji en stunda nám
í Caruaruháskólanum. Ég er í
lagadeildinni og kominn á fjórða
árið þar.
Frístundaáhugamál mín eru
söfnun frímerkja, myntar og
póstkorta. Ég hef líka áhuga á
bókum, myndlist, kvikmyndum,
teikningu, bréfaskiptum, dansi,
partíum, gítarleik og tónlist yf-
irleitt. É’g hef auk þess áhuga á
erlendum tungumálum. Ég kann
dálítið í ensku, þýzku, frönsku
og spænsku. Eins og sakir standa
er ég að kenna sjálfum mér
japönsku og sænsku, þegar ég
hef tíma til.
Jæja, ég vona að ég eignist
fljótlega bréfvini á íslandi og
hlakka til að heyra frá þeim.
Helzt vildi ég að þeir væru á
aldrinum seytján til tuttugu og
fjögurra ára. Kærar þakkir fyr-
irfram fyrir hjálpina og beztu
kveðjur frá Brasilíu. Bless!
Glaudson.
Address: MR. GLAUDSON RO-
BERTO BARBOSA E SILVA
RUA 23 DE JULHO, 134 AMAR-
AJI, PERNAMBUCO, BRASIL.
Svo mörg voru þau orð. Bréfið
var að vísu á ensku, að undan-
skildu síðasta orðinu (bless),
sem sendandi þess hefur verið
búinn að læra af íslenzku bréf-
vinkonunum áður en þær brugð-
ust honum. En við töidum rétt-
ara að snara því, meðal annars
vegna þess að komið getur til
greina að skrifast á við mann-
inn á fleiri tungumálum en
ensku, eins og kemur fram í
bréfinu. Eftir þeirri lýsingu að
dæma sem þessi verðandi bras-
ilíski lögfræðingur gefur á sjálf-
um sér, virðist hann hreint ekki
svo ógæfuleig persóna, svo að
það ætti að minnsta kosti að
geta verið skemmtilegt að kynn-
ast honum úr fjarlægð.
í stórkostlegum vanda
Kæri Póstur!
Ég hef keypt Vikuna síðan ég
man eftir mér. Þú ert eina les-
andi blaðið sem ekki er úttroðið
á pólitík. Ég hef einu sinni skrif-
að þér áður og fékk mjög gott
svar. Nú er ég í stórkostlegum
vanda eins og margar aðrar
stelpur. Þannig er mál með
vexti að ég er mjög hrifin af
strák. Ég hef verið með honum
en þá fór það einhvern veginn
út um þúfur. Við æfum sama
áhugamál og þess vegna sé ég
hann á hverjum degi og við ferð-
umst saman á vegum félagsins
og þá er ekki svo auðvelt að
gleyma honum. En nú elska ég
hann heitar en nokkru sinni fyrr.
Ég er frekar feimin og þori ekki
að segja honum að ég elski hann.
Elsku Póstur, geturðu ekki gef-
ið mér annað ráð en að segja
honum það, því að eins og ég
segi get ég ekki gleymt honum.
Kæri Póstur, reyndu að birta
þetta bréf áður en ég dey úr ást.
R.I.H.Þ.
Ljótt er að tarna. Fyrst svona
er komið fyrir þér og þú um-
gengst drenginn daglega, má
mikið vera ef hann hefur ekki
þegar séð hvað þér líður, og
fyrst hann hefur ekki þegar haf-
izt handa liggur beinast við að
ætla að áhuginn sé takmarkað-
ur hans megin. En til vonar og
vara ættir þú á ýmsan óbeinan
hátt að geta gefið honum hug
þinn til kynna, stúlkur eru ekki
vanar að deyja ráðalausar þeg-
ar um slíkt er að ræffa. Og ef þú
átt einhverja góða vinkonu, sem
6 VIKAN
30. tbl.