Vikan - 23.07.1970, Qupperneq 7
þckkir hann líka, því þá ekki að
fá hana til að segja piltinum
hvað þú hugsar? Þetta yrði vin-
konan auðvitað að gera af var-
kárni og án þess að láta á sér
skilja að þú hefðir beðið hana
um það.
Eyjavalsinn
Kæri Póstur!
Ég þakka þér fyrir skemmti-
legt lestrarefni. Mig langar til að
biðja þig að svara fyrir mig
nokkrum spurningum, eins og
þú gerir fyrir marga aðra.
Ég heyrði í danslögum eitt
sunnudagskvöld ekki alls fyrir
löngu sungið lag á íslenzku af
erlendri söngkonu, ég held
norskri en ég man hvorki hvað
hún eða iagið heitir. Mig langar
að vita hvorttveggja en man
bara innihald textans. Innihald
hans er það að hún fór í unaðs-
ferð með unnusta sínum úr Eyj-
um. Þetta sunnudagskvöld voru
svo að segja eingöngu leikin
gömul lög.
Getur þú sagt mér hvort ég
get fengið plötuna með þessu
lagi og hvar.
Svo langar mig til að spyrja
þig hvort þú vitir um nokkurn
málshátt sem byrjar á k-i, og
hvernig hann sé.
Ég vona svo, Póstur góður, að
þú getir gefið mér góð og greið
svör.
Virðingarfyllst,
J.D.V.
Það er rétt, söngkonan er horsk
og heitir Nora Brockstedt. Lag-
ið ber nafnið Eyjavalsinn. Þetta
er nokkuð gömul plata, og eftir
því sem við bezt vitum er hún
hvergi til í hljómplötuverzlun-
um.
Málshættir sem byrja á bók-
stafnum k eru fjölmargir, og hér
eru nokkrir:
Kell það sem enginn vermir.
Kaldráð kona mun klökkvandi
biðja.
Kalt skal við kalið leggja.
Kólnar heitt, ef köldu er á
blásið.
Kalt sumar gerir heitt hlöðu-
gólf.
Kálfur er krása beztur.
Kapp er bezt með forsjá.
Kyrrt skal á taka þar kaun er
undir.
Kóngur vill sigla en byr hlýt-
ur að ráða.
Klæðlausum er bezt að leika.
Andaglas
Elsku hjartans Póstur!
Við erum hérna tvær vinkon-
ur sem erum skjálfandi á bein-
unum af hræðslu. Þannig er
nefnilega mál með vexti, að við
vorum í svokölluðu andaglasi.
Við trúum alveg statt og stöð
ugt á þetta, en erum samt svo-
lítið hugsandi.
Þú veizt sjálfsagt hvernig
,,andaglas“ er, og núna áðan þeg-
ar við vorum að þessu færðist
glasið án þess að við ýttum
nokkuð við því. Og við segjum
satt, að það var margt til í því
sem „andinn“ sagði.
Og nú spyrjum við þig, Póst-
ur minn: Hvert er álit þitt á
þessu? Getur glas hreyfzt áfram
án þess að nokkur ýti við því?
Við höfum heyrt marga tala
um, að það væru hugsanir fólks
sem réðu þessum hreyfingum.
Er eitthvað til í því? Jæja! Fyr-
irgefðu hvað þetta er ruglings-
legt, en við erum bara svo rugl-
aðar.
Við vonum nú samt að þú
svarir okkur, því að við liggur
stundleg velferð okkar beggja.
Svo kveðjum við, með fyrirfram
ástarþökkum fyrir birtinguna.
Tvær kolruglaðar
úr Hveragerði.
P.S. Getur þú sagt okkur
hvaða réttindi maður þarf að
hafa til að komast í Fóstruskól-
ann? Hvað námið er langt og
hvaða réttindi það veitir?
Sömu.
Til að komast í fóstrunám þarf
gagnfræðapróf eða landspróf,
aldurstakmark er átján ár. Nám-
ið tekur þrjú ár, og veitir þeim
sem ljúka því réttindi til alð
starfa sem fóstrur og forstöðu-
konur á barnaheimilum.
Svo er það andaglasið, já. Það
færðist án þess að þið ýttuð við
því. Okkur vitanlega á alls ekki
að ýta við glasinu, heldur að-
eins að snerta það sem lauslegast
með fingurgómunum. En kann-
ski eigið þið við að glasið hafi
færzt úr stað án þess að þið
hafið komið við það. Það væri
öllu merkilegra. En ef við reikn-
um með því að það séu einhverj-
ir „andar“ úr öðrum heimi sem
hér séu að verki, hví skyldu þá
ekki sumir þeirra vera nógu öfl-
ugir til að færa úr stað eitt glas
án þess að mannlegir fingur
annist neina milligöngu?
Okkur vitanlega hefur engin
fullnaðarskýring fengizt á því
dularfyrirbæri sem „andaglasið"
er. Hugsanaflutningur er ein til
gátan, og hreint ekki svo ólík-
leg. En margt fleira getur kom-
ið til. En réttast væri fyrir ykk-
ur að treysta ,,glasöndunum“
ekki í einu og öllu, þótt auðvit-
að saki ekki að spjalla við þá
fremur en aðra.
— Það munar ekki um það, —
heill floti!
„MOORES“
HERRA - HATTAR
Mjög fallegt úrval,
margar gerðir.
Fatadeildin.
Fyrir §u
I I
arleyfið
Tjöld 2-3 m tjöld - fjölskyldutjöld
Nestistöskur
frá kr. 1142.00
Svefnpokar -
vindsængur
Gastæki - pottasett
Tjaldborö - tjaldstólar
Gerið verðsamanburð
Verzlið þar sem hagkvæmast er
30. tbi. VIKAN 7