Vikan - 23.07.1970, Page 21
í áraraSir var sjónvarpsstjarnan
David Janssen á flótta í sjónvarpinu. En nú
er hann raunverulega á flótta.
Ellie Janssen ásakar eiginmann sinn um
hjúskaparbrot og heimtar eina milljón
dollara í sárabætur.
eru engir smámunir sem Ellie
vill fá i „sárabætur". Hún krefst
milljón dollara og 9.500 dollara
mánaðarlega, í vasapeninga fyr-
ir sig og dætur sínar tvær af
fyrra hjónabandi. En Janssen
segir að þetta séu ekki hans
dætur, og að honum beri ekki
að sjá fyrir þeim. En Ellie seg-
ir: Hann sá fyrir þeim með-
an við bjuggum í hjónabandi,
því skyldi hann ekki gera það
framvegis? Þetta er nú ekki
beint réttlætanlegt. En að öllum
líkindum verður hann dæmdur
til að greiða þetta hátt gjald
fyrir frjálsræðið, svo hann er
þrumu lostinn og lagður á flótta,
flúði í arma Rosemary Forsyth
(til vinstri), en almennt er því
ekki trúað að Rosemary sé loka-
lending hans. Á myndinni hér
að ofan til hægri er dr. Kimble,
eins og menn muna hann á sjón-
varpsskerminum.
☆
30. tM. VIKAN 21