Vikan - 23.07.1970, Page 32
ffinn síöasti ffider
An^ela Hitler var ráðskona hjá bróður sínum í „Arnar-
hreiðrinu", þar til Evp. Braun tók völdin þar. Hún giftist
arkitekt og dó í Mijnchen árið 1949.
■■
Pa.ula Hitler var sú eina af ættingjum Hitlers, sem
reyndi að fá eitthvað af cigum hans, sem voru gerðar
upptækar. Hún dó í fátækt árið 1960.
Líkin tvö, sem brennd voru til
öskn, og sovézkir hermenn fundu í
sundurskotnu neðanjarðarbyrginu i
Berlín, voru leifar „foringjans“, ríkis-
kanslarans Adolfs Hitler ( sem varð
.56 ára), og konunnar, sem hann
kvæntist, rétt áður en hann beið ósig-
ur. Það er fuilvíst að þessi lík voru af
þeim, það var rannsakað, og allar goð-
sögur um flótta hans eru ekki á rök-
um reistar.
Fólk, sem orðið er .‘>.5.5 ára og meira,
man líklega eftir stríðsárunum, en það
sem vngra er, hefir oft ekki svo mik-
inn áhuga á þessum atburðum, beirra
vegna er ekki úr vegi að rifja eitthvað
upn:
I síðari heimsstyrjöldinni létu .52
milljónir manna lífið. Þessi fórnardýr
styrjaldarinnar, sem húsamálarinn,
síðar undirliðþjálfinn Schicklgruber,
og síðast einræðisherra í hinu endur-
reista Þýzkalandi kom af stað. Það
hafa margir revnt að lýsa hörmung-
um þessa fólks, en aðeins fáum tekizt
það. Hitler sjálfur (faðir hans brevtti
um nafn, en nafnið Hitler var til í
íjölskyldunni) leysti vandamálin á
sama hátt og hann endaði líf sitt, á
sem auðveldastan hátt. Eftir að hann
var búinn að yfirlýsa að allir Þjóð-
verjar myndu berjast til síðasta bióð-
dropa, framdi hann og ástrney hans
sjálfsmorð í hinni brennandi höfuð-
borg.
Þetta öskrandi drílmenni, sem
greinilega var brjálaður og sannarlega
ekki eftirsjón að, átti nokkra nána
ættingja, sem voru á lífi eftir stríðið.
Það var hálfbróðirinn Alois, systurn-
ar Angela og Paula, Hans Ilitler, bróð-
ursonur hans og Erna, konan hans.
Og svo var það líka Heinz frændi
hans, sem lézt, vegna þess að Hitler
vildi ekki beita áhrifum sínum, til að
bjarga honum úr rússneskum fanga-
búðum.
Nú þegar aldarfjórðungur er liðinn
frá dauða Hitlers, væri gaman að sjá
hvað orðið hefir um þessa ættingja
hans.
Framhald á bls. 50.
32 VIKAN 30- tbl