Vikan - 23.03.1972, Qupperneq 5
18 TIAOM A UNEAN!
seytjánda febrúar 1972 blöskr-
aði mér alveg, og er ég þó
ýmsu vanur. Ég er helzt á því
að sá karlskarfur, sem skrifar
bréfið: „Að dýrka djöfulinn sem
guð", ætti bara að reyna að
halda sig á mottunni. Það er al-
veg undravert hvað einn maður
getur blaðrað á „góðri íslenzku".
Ég er alveg sammála Vikunni
með það, að rétt sé að taka bréf
til meðferðar, hvert svo sem
efnið í þeim er. Og hvort bréf-
in eru innantóm eða fátæk, get-
ur Vikan ekkert að gert, ekki
semur hún þau. En ef þér finnst
þau fátæk, skaltu bara reyna að
semja betri, en ég efast um að
þér takist það. Og ég held að
það væri frekar þitt að biðja
Vikuna afsökunar á framferði
þínu, en hennar að biðja lesend-
ur sína afsökunar. Hvort sög-
urnar í blaðinu eru lélegar eða
ekki, skal ég ekki segja um, en
um það eru mjög skiptar skoð-
anir. Þátturinn „Síðan síðast"
finnst mér bara ágætur, og er
ég sjálfsagt ekki einn um það.
En nú ætla ég að víkja að því,
sem mér blöskrar mest, og það
eru kynferðismálin. Ætlar þú
að gera tilraun til að koma
þeirri fjarstæðu inn hjá lesend-
um Vikunnar að mikið sé um:
óskilgetin börn, hjónaskilnaði,
heimilisófrið, ofbeldi, ofdrykkju,
eiturlyfjaneyzlu og að barnung-
ar stúlkur verði mæður, vegna
þess hvað mikið er um kyn-
fræðslu? Þvert á móti. Og þú,
maður minn, vogar þér að
gagnrýna þátt sem þú augsjá-
anlega hefur ekkert vit á, en
það er þátturinn „Heyra má".
Sjálfum finnst mér þátturinn
misjafn, enda ekki nema von,
hann er ekki eingöngu fyrir
mig. En þegar verið er að tauta
um að í þættinum sé tóm þvæla,
er mér nóg boðið. Það sem þú
segir um hann sýnir að þú ert
íhaldssamur fram úr hófi, og
skilur ekki unglinga nú til dags.
Jæja, gamli minn, ég ætla ekki
að eyða meiru bleki í þig að
sinni.
Blessaður, ævinlega.
Rúnar Þorsteinsson,
Lyngholti, Stöðvarfirði.
Ekki tekizt að húkka
í hann
Kæri Pósturl
Ég er hér ein í vanda stödd.
Svo er mál með vexti að ég er
mjög hrifin af strák héðan, en
hef ekki verið með honum, því
mér hefur ekki tekizt að húkka
í hann. Hvernig á ég að haga
mér í framkomu minni við
hann? (Ég tek það fram að ég
er ekki feimin, heldur þori ég
alveg að láta bera á mér). En
hvað á ég að gera? Svo hann
liti á mig?
Því að ég er svo hrifin af hon-
um.
Hvernig er skriftin og hvað lestu
úr henni?
Með fyrirfram þökk. Gunný.
Skriftin bendir frekar til þess að
þú sért allmikið barn, og kæmi
okkur ekki á óvart að sú væri
ástæðan til áhugaleysis drengs-
ins á þér. Þú segir okkur ekk-
ert um hvernig þessi drengur
er, svo það er erfitt fyrir okkur
að gefa þér nokkur ákveðin
ráð. Það ætti varla að saka að
sýna honum vissan áhuga, án
þess þó beinlínis að vera frek.
Þá ættirðu að sjá hvort þú átt
yfirleitt nokkurn séns í hann.
Hlaup og stökk
Kæra Vika!
Ég les þig oft en er ekki áskrif-
andi. Ég skal ekki hafa bréfið
óþarfa langt, og því sný ég
mér að efninu. Mig langar að
vita hvar ég get komizt í kynni
við frjálsíþróttir, hlaup, stökk
og svo framvegis.
Með fyrirfram þökk. Helga.
P.S. Ég gleymdi að taka fram
að ég á heima í Reykjavík. —
Hvernig er skriftin?
Hafðu samband við eitthvert
íþróttafélagið, annaðhvort sím-
leðiis eða bréflega. Þú finnur
til dæmis utanáskriftir íþrótta-
bandalags Reykjavikur, Knatt-
spyrnufélags Reykjavikur (KR)
og Iþróttafélags Reykjavikur
(ÍR) i símaskránni.
Skriftin er skýr og lofar góðu,
en þú þarft að æfa þig betur.
12. TBL. VIKAN 5