Vikan


Vikan - 23.03.1972, Blaðsíða 45

Vikan - 23.03.1972, Blaðsíða 45
stereo magnari útvarp Glæsilegur stereo-magnari, meö innbyggöu útvarpi, 4 bylgju tæki (FM, KW, MW, LW). 29 transitorar, 17 díóöur og 2 afriðlar. Út- spilun 2x25 music watts. Nákvæmir bassa og hátóna stillar. Kaupið aðeins vandaða vöru. Sérstaklega þeg- ar um er að ræða t.d. fe/ðaviðtæki, segulband eða sjónvarp. Og síðast en ekki síst STEREO- hljómtæki. Vandið valið. Komið og kynnist vörum frá ITT SCHAUP-LORENZ. Verzlunin Garðastræti 11 sími 20080 ELDHÚS VIKUNNAR Framhald af hls. 37. Steikið við 200 og áætlið ca. 40 mínútur fyrir hvert kg af kjöti. Síið soðið og bragðbætið með tómatkrafii eða kínverskri soya. Jafnið með dálitlu mai- zenmjöli. Berið /rqm með sýrð- um agúrkum, soðnum kartöfl- um,' sósu og grænmeti. EMIL ZATOPEK Framhald af bls. 27. Englendingar tefludu fram hinum snjalla hlaupara Peters. Það var ekki laust við að Zato- pek með númerið 903 á brjóst- inu fyndist hann vera hálf ut- angátta i þessum félagsskap. Hálfóttasleginn virðir hann keppinauta sína fyrir sér. Hapn veit, að þeir eru allir reyndir maraþonhlauparar og lionum finnst hann vera eins og skóla- drengur meðal þeirra. Maraþon- hlaup er mjög ólíkt venjulegu brautarhlaupi. Það er svo margt st:m getur gerzt í maraþon- hlaupi. sem ekki gerist í braut- arhlaupi. Hann athugar númer þekktustu keppinauta sinna, til þess að geta betur áttað sig á þeim eftir að hlaupið er hafið. Þá heyrir hann landa sína hiópa. Honum líður betur. Hann er ekki einn, Emil Zatopek, 30 ára gamall liðsforingi í tékk- neska hernum, er reiðubúinn. Andlit hans er afslappað og ákveðið. Hann hefur hlotið tvænn gullv'erðlaun á OL, en það hefur ekki stigið honum til höfuðs. Lítillátur og eðlilegur stendur hann meðál keppinauta sinna, eins og þeirra góði vinur og félagi. Hlaupurunum er rað- að upp í fjórar raðir bak við hvíta strikið. Áhorfendur fylgj- ast ákafir með undirbúningn- um. Hver þeirra skyldi vera sterkastur, hugdjarfastur eða þolnastur. Eftir augnablik hefst baráttan. Sigurvegarinn verður að v'era gæddur góðum taugum, sterk- um vöðvum og miklu viljaþreki. Hinum megin við hvíta strikið bíður þreyta og sársauki hinna 08 þátttakenda og áðurnefndir eiginleikar geta fært einum keppendanna sigurinn í þessari erfiðustu raun allra iþrótta. Allir hlaupararnir eru reiðu- búnir, hver á sínum stað. Ræs- irinn gefur merki, timaverðirn- ir eru viðbúnir að setja klukk- urnar af stað. Zatopek hallar ■ér fram og heilsar brautinm, ■inum gamla vini, einu sinni enn. Hann bíður. Hann er við búinn. Enginn veit nákvæm- lega hve langur tími líður, frá því ræsirinn gefur merkið, þar til hann tekur í gikkinn. En fyrir Zatopek er þetta augna- blik annað og mikið meira. Hann hugsar um allan undir- búninginn sem hann hefur fiamkvæmt undanfarinn ára- tug. Alla sigrana, sem hafa gef- ið honum sjálfstraust, og töpin, sem hafa gert hann reynslunni ríkari Þetta hafði verið harður skóli, en lærdómsríkur. Hann hugsaði um hinar erfiðu æfing- ar í góðu veðri og slæmu. Hann hugsaði um allar þær þúsundir kílómetra, sem hann hafði hlaupið, á æfingu, í keppni, á götum og vegum, án tillits til hita, ‘kulda, regns og snævar. Hann hafði oft æft tvisvar á dag bæði fyrir og eftir vinnu- tíma. Oft æfði hann í stígvél- um og stundum var máninn hans eini félagi. Skotið reið af. Allt er gleymtl Nú dugar aðeins að gera sitt bezta. Zatopek hef- ur hafið hlaupið mikla. Inni á leikvanginum voru hlaupr.ir liðlega 3 hringir og hafði þá Mörystuna lítill ber- fættur náungi, Aslanr frá Pak- i'tan. Er hlaupararnir yfirgáfu leikvanginn var Peters (Bret- land) búinn að taka forystuna. Zatopek fór að öllu rólega og skynsamlega. Eftir 10 km var Peters fyrstur og hljóp þessa vegarlengd rétt undir 32 mín., sem var alit of hratt fvrir hann, eins og síðar átti eftir að koma í ljós. Næstir voru þá Jansson (Svíþjóð) og Zatopek, tæpum 20 sekúndum á eftir Bretanum. Veðrið var hið ákjósanlegasta. hæfilega heitt og stillt. Skömmu áður en hlaupararn- ir sneru heim á ieið aftur (eft- ir 21 km) tók Zatopek foryst- una og sleppti henni ekki upp frá því. Jók hann aðallega for- skotið síðustu 8—10 km og kom langfyrstur inn á leikvanginn. Hann virtist ekki neitt mátt- farinn og ekki var sjáanlegt, að hann væri mjög móður, hann virtist vera alveg fullhress og frískur, Stíllinn var miklu lélt- ari og andlitið ekki eins skælt og grett, eins og venjulega í styttri hlaupum. Þvert á móti. Zatopek brosti ánægjulega er hann sleit snúruna. Síðan gekk hann út af brautinni og fór úr bolnum, sem var gegnvotur af svita, fór í annan þurran og labbaði þvi næst út að kepp- endastúkunni og kona hans Dana Olympíumeistari í spjót- kasti kvenna óskaði honum til hamingju með kossi. Zatopek hefur víst verið orðinn soltinn eftir erfiðið, því hann fékk sér nú epli og beit hraustlega í það. en stóð síðan við markið og fylgdist af áhuga með hlaup- urunum, er þeir komu i mark og gæddi sér á eplinu á meðan. Klappaði hann flestum þeirra og sagði eitthvað við þá, en flestir voru víst of þreyttir til að taka eftir því. Næstur Zatopek varð óþekkt- ur Argentínumaður, Reinaldo Corno. sem hafði verið meðal hinna fremstu alla leiðina. Þriðji varð Svíinn Gustav Jans- sen. Árið 1952 var brátt á enda. Hvað Zatopek viþvék gat hann litið ánægður yfir farinn veg. A Olympíuleikunum hafði hann unnið frækna sigra, sigra i þremur erfiðustu keppnisgrein- um OL að margra áliti. Auk þess setti hann nokkur heims- rn.et á árinu. En það voru ekki aðeins afrekin. sem gerðu þenn- an ágæta afreksmann eins vin- sælan og raun bar vitni. Hann breyttist ekkert, þrátt fyrir vel- gengnina. Zatopek var ávallt sama Ijúfmennið og framkoma hans gagnvart keppinautunum hógvær og drengileg. Hann var sannkölluð fyrirmynd. Hann hlaut ekki aðeins iþróttaverð- 12. TBL. VIKAN 45
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.