Vikan


Vikan - 23.03.1972, Side 49

Vikan - 23.03.1972, Side 49
HflsgigiavtrzlM Reikiavfkir Þessi vinsælu sófasett eru komin aftur. islenzkt og norskt ullaráklæði eða plusáklæði. Hagstætt verð. Húsgagnavenlii Revkiavíkir Brautarholti 2 — sími 11940. frá ræningjanum. Vessels og FBI-maðurinn Frank Smith óku til bankans í Miami og horfðu á starfsmenn- ina pakka hálfri milljón dollara í tuttugu dollara seðlum niður í ferðatöskuna. Vessels tók tösk- una, sem að því búnu vóg þrjá- t.íu og fjögur kíló, og bar hana út í bílinn. Tveir FBI-menn gengu á undan, en tveir af varðmönnum bankans á eftir. FBI-bíll með vopnaða menn inn- anborðs fylgdi Vessels og Smith eftir út til villunnar. Tilkynningin hafði birzt Launsnargjaldið var fyrir hendi. Hv'iti Lincolninn yrði fljó^lega til taks. Þá var ekki mikið annað eftir en að bíða eftir hringingunni frá ræningj- anum. Faðir John Christopher Mul- achy sat við lestur í herbergi sínu í prestssetrinu við róm- versk-kaþólsku kirkjuna í Cor- al Gables, þegar siminn hringdi. — Eruð þér kaþólskur prest- ur? spurði maður nokkur. — Já, svaraði faðir Mulachy. — Faðir, það sem ég nú segi megið þér ekki endurtaka fyrir nokkrum manni nema þeim, sem ég tilnefni. Lofið því! Það varðar líf og dauða! — Já, ég lofa því. — Faðir, það er ég sem rændi Barböru Mackle. Rödd mannsins var höörku- ieg. Hann sagði að Barbara væri i Georgíu, einhversstaðar fyrir utan Atlanta, og að hún væri grafin í kistu, sem lokið væri skrúfað á. Kistan væri grafin um hálfan meter niður. Það gengju svo sem engin ósköp að stúlkunni, en hún væri þó hálf- lasin og ekki vel klædd. — Það er mjög kalt þarna norður frá, faðir, sagði röddin. — Já, það veit ég, svaraði prestur. — En hvað viljið þér að ég geri í málinu? — Þér skuluð fara heim til Mackles og segja honum að ég hafi hringt og að dóttir hans lifi. Tali við hann en engan annan. Segið honum að hin fagra dóttir hans muni deyja, ef hann fylgir ekki fyrirmæl- unum til hins ýtrasta. Að lokum sagði maðurinn: — Þér heyrið sennilega frá mér aftur. Faðir Mulachy flýtti sér nú til villu Mackles og sagði frá því sem hann hafði heyrt. FBI sá sér þegar fyrir aðstöðu til að hlera símann hans. BARBARA SEGIR FRÁ Það hlýtur að hafa liðið sól- arhringur unz ég neyddist til að kúka. Ég hafði haldið því í mér eins lengi og mér var unnt, en nú var það ekki hægt lengur. Til fóta var lítil dolla úr plasti með hvelfdu loki, og ég gerði ráð fyrir að ætlast væri til að ég notaði hana. Ég varð að færa lokið innundir mig og kúka ekki nema lítið í einu, þar eð lokið var næstum flatt. Það var ekki auðvelt, þar eð ég gat naumast hreyft mig í þrensgl- unum. Ég reyndi að halda lok- inu nákvæmlega lárétt þegar ég hellti úr því í dolluna. En hversu varlega sem ég fór að fékk ég alltsaman yfir mig í annað hvert skipti. Ég hefði þurft að kúka meira, en þorði ekki að hætta á það af ótta við að eitthvað kynni að lenda í drykkjarvatninu. Þau hefðu að minnsta kosti getað látið mig h.afa stóran kopp eða eitthvað svoleiðis! Ég fór að hugsa um andlegar pyndingar. Og ég minntist kennara, sem kenndi mér í sjö- unda bekk. Hann var tuttugu og átta ára og hét John Mc Guire. Ég var ástfangin í hon- um, allar stúlkur á þeim aldri eru ástfangnar í einhverjum kennara. Hann hafði sagt okkur frá manni í fangabúðum, sem fann ráð til að standast andleg- ar pyndingar. Þegar átti að yf- irheyra hann eða að reyna að brjóta hann niður andlega byggði hann einfaldlega hús í huga sér, hús ú;r tígulsteinum. í hvert skipti og hann var að því kominn að hrynja, féll tíg- ulsteinn úr hleðslunni, en hann tók steininn þá upp aftur .og hélt markvisst áfram að byggja húsið sitt. Ég gerði eins nú. Að vísu hlóð ég ekki hús úr tígul- steini. f staðinn skrýddi ég í huganum jólatréð okkar. Já, það hljómar undarlega, en ég skrýddi það að minnsta kosti þrisvar eða fjórum sinnum. Undir kvöldið sótti Billy Vessels Lincoln-bílinn. FBI hafði' falið í honum senditæki. Hljóðneminn var ósýnilegur í loftræstingunni við sæti bíl- Framhald á bls. 5 !. 12. TBL. VIKAN 49

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.