Vikan


Vikan - 23.03.1972, Síða 63

Vikan - 23.03.1972, Síða 63
aðrir yfirmenn á „Geysi“ skip- ið: Skipið sem búið er að veita þeirra eigin farkosti banasárið er „Þingvellir". Möller skipstjóri sér að skip hans muni sökkva innan fárra mínútna og gefur skipun um að setja lífbátana í sjó um leið og hann fyrirskipar að konur og börn skuli ganga fyrir í bát- ana. Á „Geysi“ eru 136 manns, áhöfn og farþegar. Fólkið ryðst upp á þilfar og að björgunar- bátunum í skelfingu. Neyðaróp særðra manna og deyjandi fylla loftið og hvinurinn er kol- grænn sjórinn steyptist inn í „Geysi“ er „Þingvellir" bakka út úr svöðusárinu á skipshlið- inni. Þar sem stefni „Þing- valla“ gekk inn í skipið sváfu farþegarnir og uggðu ekki að sér. Margir voru drepnir og limlestir við áreksturinn en aðrir, sem lítið eða ekki höfðu meiðzt voru örvita af skelfingu. í fátinu tók fólkið ekki björg- unarbeltin sem hengu við hverja koju, með sér er það flýði upp á þilfarið. Möller skipstjóri tók bunka af beltum, sehi ætluð voru yfirmönnum og kastaði niður á þilfarið en fáir hirtu um að láta þau á sig. Skipshöfnin reyndi árangurs- lítið að koma á reglu um leið og lífbátarnir voru látnir síga en fólkið var gjörsamlega ör- vita og ruddist í bátana, sem hvolfdi við skipshlið hverjum af öðrum. Allt í einu hvað við brestur og „Geysir" brotnaði í tvennt um skarðið, sem stefni „Þingvalla" hafði höggvið. Um leið stakkst afturendi skipsins og litlu síðar framendinn. Þá voru nákvæmlega fimm mínút- ur liðnar frá því áreksturinn skeði. Sérhver getur ímyndað sér angist skipstjórans á „Þing- völlum" er hann kom á stjórn- pall mjög í sama mund og áreksturinn varð. Skip hans „Þingvellir“ laskaðist mjög, en vatnsþéttu skilrúmin héldu og skipið hélzt á floti. Skipstjór- inn fyrirskipaði strax að setja út lífbáta og róa að „Geysi“ því fyrirsjáanlegt var að hverju stefndi og þrátt fyrir nátt- myrkrið vissi hann mætavel hvað fram fór á hinu skipinu. Síðar sagði skipstjóri „Þing- valla“ svo frá, að þessar mín- útur hefðu verið átakanlegri en orð fái lýst. Gegnum hvæs frá sprungnum gufurörum og þyt- inn í reiðum skipanna heyrð- ust neyðaróp karlmanna og skerandi vein kvenna og barna. En svo allt í einu var „Geys- ir“ sokkinn. Lamandi þögn lagðist yfir nema gjálfur öld- unnar við skipssúðina og þyt- ur stormsins. Björgunarbátarnir frá „Þing- völlum" reru í brakinu og björguðu fólki sem skaut upp eða hélt sér dauðahaldi í brak. Einn hinna síðustu sem bjarg- aðist var rúmum hálftíma eft- ir að „Geysir“ sökk. Þegar birti var „Þingvellir11 ennþá á slys- staðnum. Leit að fólki var haldið áfram meðan nokkur von var til að fleiri fyndust. Þegar síðasti lífbáturinn var tekinn um borð í „Þingvelli“ var tala þeirra sem bjargað hafði verið aðeins 31. Meira en eitt hundrað manns hafði far- izt með skipinu. Meðal þeirra sem björguðust var 3. stýrimaður á „Geysi“. Hann var sofandi í klefa sín- um en vaknaði við ógnvekj- andi hávaða er skipssúð mol- aði einn vegginn í klefanum. Þegar í næstu andrá fjarlægð- ist skipsstefnið og stýrimaður- inn sá ofan í hyldýpið. Hann sá að eina björgunarvonin var að fara út um skarðið, sem mynd- azt hafði í skipssíðuna og án þess að hugsa sig um stökk hann og tókst að ná tökum á akkerisfesti „Þingvalla", sem hékk niður með stefninu. Þriðji stýrimaður var ungur og hraust- ur og honum tókst að lesa sig upp akkerisfestina og komast af henni upp á þilfar. Meðan á björguninni stóð og enginn vissi hve mikið „Þing- vellir" voru laskaðir, eða hve lengi það myndi fljóta, lét skipstjóri skjóta flugeldum og neyðarblysum. Þýzkt skip, es. „Wieland" var statt skammt frá. Þetta skip var á leið til New York með innflytjendur. Skipsmenn sáu flugeldana og ályktuðu réttilega að slys hefði hent. Margir þeirra 31 sem bjarg- að var af „Geysi“ voru slasað- ir, en aðrir aðframkomnir af kulda, enda flestir á nærföt- unum einum. Þegar „Wieland“ kom á vettvang höfðu skips- menn á „Þingvöllum" veitt skipbrotsmönnum alla þá að- hlynningu sem hægt var að láta í té. Um morguninn 14. ágúst voru svo allir farþegar sem voru um borð í „Þingvöll- um“ fluttir um borð í „Wie- land“, sem sigldi með þá til New York. Litlu síðar sigldi „Þingvell- ir“ á hægri ferð af stað til Halifax. Blöðum beggja vegna Atl- antshafsins varð að vonum tíð- rætt um þetta hörmulega slys, þar sem tvö skip frá sama landi og meira að segja frá sama skipafélagi lentu í árekstri á hinni miklu víðáttu Atlantshafsins með þeim af- liðingem sem að framan getur. ,,Þingvellir“ náðu til Halifax og hlaut þar viðgerð. Skipið hóf síðan siglingar að nýju á leiðinni Kaupmannahöfn New York og flutti marga innflytj- endur til Ameríku á næstu ár- um. í einni slíkri ferð rakst skipið á hafísjaka, en laskað- ist ekki að ráði og komst til hafnar af eigin rammleik, eftir að áhöfnin hafði gert að skemmdunum með tiltækum ráðum. En þótt „Þingvellir" væri þannig tvisvar búið að komast í hann krappann og sleppa í bæði skiptin til hafnar, voru önnur skip Þingvallafélagsins, sem í slíku lentu ekki eins heppin, og þar kom að fólk fékk ótrú á félaginu og skip- um þess, farþegum fækkaði og félagið átti erfitt uppdráttar. Mesta slysið í sögu félagsins var er es. „Norge“ fórst fyrir vestan Skotland og með skip- inu um 600 manns, en um 200 var bjargað. Nokkru síðar komst félagið í eigu Sameinaða gufuskipafé- lagsins og lauk þar sögu þessa óhappa danska skipafélags sem hét íslenzku nafni og átti mörg skip sem báru íslenzk nöfn. PðSTHÖLF 533 Framhald af bls. 23. urðu að hún komi hingað? 3. Blind Faith gáfu út eina plötu. Kom hún hingað? Jæja, gamli, ég vona að þú fáir ekki hjartafílingu við að lesa þetta. Blessaður hentu þessu ekki í ruslakörfuna. Sigurlaug Brynjólfsdóttir, Hellum, Vatnsleysuströnd, Gull. Eins og ég hef margoft sagt, þá hlýt ég að dæma sjálfur um hvað er hœft efni í þennan þátt og hvað er það ekki. Þessir „gömlu drjólar“ eru einmitt þeir menn sem mest hafa stuðl- að að þeirri heillavœnlegu þró- un tónlistar nútímans sem við njótum nú, og því tel ég það skyldu mína að fylgjast með þeim og gefa lesendum kost á því sama. Annars er ég þér alls ekki sammála um að t.d. Lenn- on, Harrison og fleiri lifi ein- göngu á fornri frœgð. Hvað um t.d. „Imagine“, „All things must pass“ og Bangla Desh- hljómleikana? Annars nenni ég ekki að vera að œsa mig yfir bréfi þínu, en leyfi mér að benda á, að ég hef bæði verið með greinar um James Taylor og Cat Stevens, en um Carpenters hef ég ekki verið með grein og verð ekki. Þakka þér svo kœrlega fyrir upplýsingarnar um Róm, en þrátt fyrir að 'í þeirri ágœtu borg séu margar huggulegar byggingar og rústir, þá fœrðu sennilega engan til að viður- kenna að Róm sé „snilld“, alla- vega ekki hvað varðar skipu- lag. Og ég sagði aldrei neitt um að Elton John væri ekki snillingur. 1. Sjá grein í 9. tbl. þessa árs. 2. „Teaser and the Firecat“, er löngu komin hingað. 3. Já og eftir því sem ég bezt veit, þá fœst hún hér enn. P.S. Hvað er „hjartafíling"? SVANFRfÐUR Framhald af bls. 23. er svo sem ekkert slor að hafa rnenn eins og Sigurð Karlsson og Gunnar Hermannsson með sér. Þeir Pétur, Birgir, Sigurður og Gunar eiga eftir að „spila sig saman“, en ólíklegt þykir mér að þeir ætli sér að sverfa hvössustu brúriirnar af hljóm- sveitinni, heldur vilja þeir hafa hana svona hráa. Aftur á móti er ég ekki bú- inn að sjá þá taka til hendinni þegar kemur til annars en að æfa í dansleikjaprógramm. En á meðan rokka þeir allavega. ÁST HENNAR VAR AFBROT Framhald af bls. 41. var heimili hans, stóð Gérard og hjó brenni. Hreyfingar hans voru rösklegar og háttbundn- ar. Hann var í léttu skapi og áhyggjulaus. Þegar hann rétti úr sér, kom hann auga á stúlku sem kom hjólandi eftir veginum. Hún veifaði til hans. Hann horfði undrandi á hana, en svo kann- aðist hann við hana. Það var Thérese og hann gekk til móts við hana. Hún var lafmóð, þegT ar hún stökk af hjólinu. - Þeir . . . þeir eru að leita að þér . . . Daniéle var niðurlút. Dómar- inn hóstaði, hann vildi fá hana til að líta upp. — Það verður undir yður sjálfri komið, frú, hvort sam- 12. TBL. VIKAN 63

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.