Vikan - 06.04.1972, Qupperneq 35
eftir verðinu! Aðeins kr. 1160.-
þar að auki er hún frá Agfa
Takið
Og
frá og styður yfirhöfuð ekki við
vaxtarbroddinn í myndlist. En
þetta gæti nú eitthvað stafað
af peningaleysi.
Hvernig virðast þér við-
horf almennings gagnvart list
ykkar?
— Almennt neikvæð. Þorri
manna hefur aldrei komið á
rýningar hjá okkur og heldur
að maður eyði allri ævinni i
að plata fólk. Listamaðurinn er
ennþá Sölvi Helgason í augum
þorra manna; þó vil ég taka
fram að stór hópur ungs fólks
sækir sýningar hjá okkur, einn-
ið nokkuð minni hópur eldra,
en engu siður lifandi fólks.
En ekki bæta fjölmiðlarnir hér
úr skák. Blöðin gefa stundum
af þessu sem fáránlegasta mynd,
sjálfsagt af því að þannig er
álitið að það verði meiri frétta-
matur. Nú, en þetta á svo sem
ekki einungis við um myndlist;
kreppan er sú sama fyrir allar
listgreinar á íslandi nútimans.
Almenningur hlustar ekki á
klassíska tónlist, les ekki góðar
bækur. Alþýðumenningin ís-
lenska, sem lengi hefur verið
gumað af, er ekki orðin annað
en blaðalýgi, dúsa handhæg
þegar kreppir að.
— Hversu margar sýningar
hefur Súm haldið?
— Tuttugu og níu hér á landi.
Og í fyrravor höfðum við stóra
sýningu í Amsterdam. Við stefn-
um að því að sýna hér í júni
eða júlí, og svo er verið að leita
hófanna með sýningu erlendis,
svipaða þeirri og í Amsterdam.
— Hvað ertu sjálfur með í
bígerð?
— Ég er að hugsa um að búa
til eftirmynd af íslandi á
Sprengisandi, marka af hundr-
að fermetra svæði og sá í það,
taka síðan af því myndir úr
lofti. Jafnvel þótt ekkert verði
af þessu, þá er það þó alltaf
hugsunin.
— Hvernig er samkomulagið
hjá ykkur í Súm?
— Það hefur yfirleitt verið
gott, og aldrei sletst upp á vin-
skapinn til langframa. Andinn
hefur verið góður, mikill áhugi
og starfslöngun. En sú kemur
efalaust tíð að þetta verður eins
rotið og FÍM, með vaxandi
þroska og ábyrgðartilfinningu.
_________________________dþ_
BARBARA 0G
BETTINA
Framhald af bls. 17.
Blanchette var mjög vanafast-
ur og fór aldrei í rúmið, án
þess að fá sér eitt glas af írsku
kaffi, það er kaffi með viskýi
og rjóma, sem hann skolaði
niður með einu glasi af bjór.
Það var því auðvelt að láta
eitrið annaðhvort í kaffið eða
ölið.
Allt sitt líf höfðu Systurnar
hagað sér eins og nú hjálpuð-
14. TBL. VIKAN 35