Vikan


Vikan - 23.11.1972, Blaðsíða 12

Vikan - 23.11.1972, Blaðsíða 12
Á hverjum sunnudegi lögöu litlu hermennirnir tveir af staö Ut úr herbúðunum, jafnskjótt sem þeir voru lausir. Er þeir voru komnir út úr herbúðunum, héldu þeir til hægri i gegnum Cour- bevoie. Þeir gengu löngum, hröðum skrefum, likt og þeir væru á hergöngu. Þegar þeir voru komnir fram hjá sfðustu húsunum, hægðu þeir á sér og gengu hægt eftir hinum nakta, rykuga þjóðvegi, sem liggur til Bezons. Þeir voru báðir smávaxnir og magrir, og hermannafrakkarjiir þeirra virtust alveg gleypa þá, þvi að þeir voru allt of stórir og siðir. Ermarnar löfðu niöur fyrir fiÞgurgóma, og stóru, rauðu hermannabuxurnar þeirra, sem voru allt of viðar, flæktust fyrir þéim, svo að þeir neyddust til að ganga með vaggandi göngulagi. Undir klunnalegu, háu hef- mannahjálmunum virtust andlit þeirra ekki bera vott um skap- festu né viljaþrek. Þetta voru tvö föl og mögur andlit Bretagne-búa. Svipur þeirra var mjög ein- feldnislegur, jafnvel svo, að hann virtist fremur eiga heima á dýrs- en mannsandlitum. Hin bláu augu þeirra voru bliðleg og þrungin ró. Þeir töluðu aldrei neitt saman á þessum gönguferöum sinum, heldur héldu beint áfram. Sama hugsunin bjó i hug þeirra beggja. Þessi hugsun var nokkurs konar TVEIR LITLIR HERMENN Smásaga eftir Guy de Maupassant Jean horfði ekki á þau. Nú skildi hann, vhers vegna félagi hans hafði tvívegis fengið aukaleyfi síðustu vikuna. Og hann fann til nístandi sorgar í hjarta sínu, þeirrar blæðandi holundar, sem hjartað særist við svik og undirferli... friðþæging fyrir þennan þegjandahátt þeirra. Hugsunin, sem bjó i hug þeirra beggja, var sú að inni I litla skóginum nærri Les Champioux höföu þeir rekizt á stað, sem minnti þá á þeirra eigið hérað i hinu ástkæra Bretagne, þar sem þeir fundu fyllstu hamingu umlykja sig. Þegar þeir komust inn i skóginn, þar sem vegirnir frá Colombes og Chatou skerast, tóku þeir venjulega af sér þungu hjálmana og þurrkuöu svitann af enninu. Þeir námu alltaf staðar á Bezons-brúnni til þess að viröa Signu gömlu fyrir sér. Þar stóöu þeir i nokkrar minútur, beygöu sig yfir handriöið og störðu á fljótið- Stundum störðu þeir út yfir stóra vatnið við Argenteuil og virtu fyrir sér seglbátana og seglin, sem glampaði á, Þeir minntust þá ef tii vill sævarins við Bretagne-skaga, hafnarinnar i Vanne nálægt heimilum þeirra og fiskibátana, sem héldu út á hafið. 1 Bezons, rétt fyrir handan Signu. kevptu þeir nesti af pylsukauömanninum, bakar- anum og vinsalanum. Þeir keyptu sér blóömorskepp, dalitiö brauð og einn litra af vini og héldu siðan áfram. Eftir að þeir voru komnir út úr Bezons, hægðu þeir aftur á sér og byrjuðu aö tala saman. Fyrir framan þá var hrjóstrug slétta með nokkrum trjám i þyrpingu á viö og dreif. Sléttan lá allt að litla skóginum, sem þeim virtist likjast skóginum við Kermarivan i Bretagne. Fjær sáust korn- og heyakrar. Jean Kerderen var þá vanur að segja viö Luc de Ganidec: „Þetta er alveg eins og nærri Plounivon heima ” „Já, riákvæmlega.” Þeir gengu áfram hliö viö hliö. Hugir þeirra voru þrungnir óljósum minningum um ástkæru átt- hagana þeirra I Bretagne, endur- vöktum hillingum, sem voru eins barnalegar og myndir skólabarna. Þeir héldu áfram að kannast viö hina og þessa staði og báru þá saman viö llka staði i átt- högunum Þarna þekktu þeir aftur akurteig og þarna limgirðingu og myrafláka eöa krossgötur og granltkrossa. Svo stönzuðu þeir alltaf fyrir framan stóran stein vegna þess, aö hann liktist mjög stórum steini heima I Locneuven. Á hverjum sunnudegi, er þeir komu að fyrstu trjánum, var Luc de Ganidec vanur að skera sér viðarteinung úr heslivið. Hann byrjaði að losa börkinn varlega af honum og hugsaði á meðan um fjölskylduna og ættingja heima. Jean Kerderen bar nestið. Við og við nefndi Luc eitthvert nafn úr átthögunum eða minntist á einhverja dáð frá bernskuárum þeirra, aðeins meö nokkrum orðum, sem fæddu af sér angurværar hugsanir. Og átt- hagar þeirra, hinir kæru, fjarlægu átthagar þeirra, náðu þeim smám saman aftur á vald sitt, örvuðu ímyndunarafl þeirra og birtu þeim úr fjarlægðinni lögun slna og hljóö, útsýni sitt og lykt,-lykt af grænu landi, þar sem hið salta sjávarloft ilmaði. Þeir skynjuðu ekki lengur hesthúsilm herbúðanna i vitum slnum, heldur lim lyngs'í fullum blóma, sem hin salta sjávargola feykir á brott með sér. Og segl bátanna viö árbakkana liktust hvltu seglum skipanna úti fyrir ströndinni I átthögum þeirra. Þeir gengu nú hæg T uc le Ganidec og Jean Kerdi .en. Þeir voru ánægðir og daprir ,i senn. Viðkvæm angurværö lagði þá I einelti. Það var hin stöðuga angurværð og sorg dýrs merkurinnar, sem hefur veriö lokaö inni i búri, en, man ennþá frelsi sitt. Þegar Luc hafði lokið við aö fletta börkinn af teinunginum, voru þeir komnir I skógarlundinný þar sem þeir neyttu alltaf morgunveröar slns á hverjum sunnudegi. Þeir furfdu múr- steinana tvo, sem þeir höfðu falið inni i þvkkninu. og kveiktu eld i viöarbútum. Þeir stungu byssu- sting I blóömörinn og héldu honum yfir eldinum, þar til er 12 VIKAN 47. TBL.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.