Vikan - 17.05.1973, Page 3
20. tbl. - 17. maí 1973 - 35. árgangur
Vikan
Kindakjöts-
lykt
á fslandi
„Eitt var þó enginn
draumur á Islandi, og
þa8 var maturinn. ViS
bjuggum á hóteli í
Reykjavík, og það lykt-
aði af lambakjöti bæði
nótt og dag. Og sú lykt
er svo sannarlega ekki
góð, þegar maður er
óvanur henni." Sjá við-
tal við Gitte Henning
á bls. 23.
Er konan
bara leg og
eggja-
stokkar?
„Sú skoðun virðist helzt
ríkjandi, að konan sé leg
og eggjastokkar og þar
með búið. Þetta er óskap-
lega þreytandi. Karl-
maðurinn á að vera dug-
legur, konan á að vera
falleg; hann á að vera
gáfaður, hún á að vera
sexý." Sjá viðtal við Asu
Sólveigu á bls. 28.
Næst
skipta þeir
um höfuS
Mjög fótt fólk deyr,
vegna þess að höfuðið
hættir að starfa. Önnur
líffæri valda miklu oftar
veikindum, sem leiða til
dauða, svo sem nýrun,
hjartað, æðakerfið og
meltingarfærin. Næsta
takmark læknisfræðinnar
er þvi að skipta um höfuð.
Sjá bls. 16.
KÆRI LESANDI!
Er næsta skref læknavísind-
anna að það takist að láta höfuð-
ið lifa á nýjum líkama? Verður
mögulegt að láta græða höfuð sitt
á nýjan líkama, þegar krabba-
meinið er búið að gera út af við
þann gamla? Verður hægt að láta
koma sér fyrir á skiptilíkama eða
blátt áfram blóðvél til að bjarga
höfðinu, þótt allt annað fyrirfar-
ist?
Við lifum í heimi stöðugra
framfara, og ef til vill líður ekki
svo ýkja langur tími, þar til unnt
er að svara ofangreindum spurn-
ingum játandi. í grein í þessu
blaði segjum við frá nýjustu til-
raunum vísindamanna, sem bein-
ast að því að skipta um höfuð.
Með hnitmiðaðri tækni nútíma
tæknisfræði hefur hóp tauga-
skurðlækna við heilarannsóknar-
stöð háskólans í Cleveland i
Ohiofylki þegar tekizt að halda
höfði hálshöggvins apa lifandi.
Af öðru efni þessa blaðs má
nefna viðtal við Gitte Henning,
sem Ómar Valdimarsson heim-
sótti í Gautaborg. Þegar Gitte var
Í2 ára kom hún hingað og naut
mikilla vinsælda fyrir söng sinn,
og síðar kom hún aftur til að
leika í Rauðu skikkjunni. Þá er
einnig viðtal við unga skáldkonu,
Ásu Sólveigu, sem skrifað hefur
leikrit fyrir útvarp og sjónvarp.
EFNISYFIRLIT
GfREINAR BLS.
Finnur Marlon þá konu sem hann leitar að? Síðari hluti greinar um Marlon Brando, frægasta kvikmyndaleikara, sem nú er uppi 8
AS skipta um höfuð, grein um næsta tak- mark skurðlæknisfræðinnar 16
Svartstakkur, framhaldssaga, 4. hluti 18
VIÐTÖL
„Það er kindakjötslykt á íslandi". Ómar Valdimarsson heimsækir Gitte Henning í Gautaborg 23
„Ég hefði aldrei skrifað orð, ef ég þyrfti næði til þess", spjallað við Ásu Sólveigu 28
SÖGUR
Heimasaumaði kjóllinn, smásaga eftir James Holding 12
í leit að sparigrís, framhaldssaga, 11. og næstsíðasti hluti 20
Svartstakkur, framhaldssaga, 4. hluti 32
ÝMISLEGT
Lestrarhesturinn, lítið blað fyrir börn, um- sjón: Herdís Egilsdóttir, kennari 11
Salöt og salatsósur i Eldhúsi Vikunnar, um- sjón: Dröfn Farestveit, húsmæðrakennari 26
Simplicity-snið 30
FASTIR ÞÆTTIR
Pósturinn 4
Síðan síðast 6
Mig dreymdi 7
3m — músik með meiru 14
Myndasögur 44, 45, 48
Stjörnuspá 47
Krossgáta 46
VIKAN Útgefandi: Hilmir hf. Ritstjóri: Gylfi
Gröndal. Blaðamenn: Dagur Þorleifsson, Matt-
hildur Edwald og Kristín Halldórsdóttir. Útlits-
teikning: Sigurþór Jakobsson. Auglýsingastjórar:
Sigríður Þorvaldsdóttir og Sigríður Ólafsdóttir.
Ritstjórn, auglýsingar, afgrefðsla- og dreifing:
Síðumúla 12. Slmar: 35320 - 35323. Pósthólf
533. Verð f lausasöslu kr. 85,00. Áskriftarverð er
850 kr. fyrir 13 tölublöð ársfjórðungslega eða
1650 kr. fyrir 26 tölublöð hálfsárslega. —
Áskriftarverðið greiðist fyrirfram. Gjalddagar eru:
nóvember, febrúar, maí og ágúst.
20. TBL. VIKAN 3