Vikan - 17.05.1973, Page 4
PéSTURINN
Ef M trtafl:
BYGGJA.
BBEYTA
EBA BJETA
bá lítti við í Litavtri.
Ini bafl htfar avallt
tnmaflao
LITAVER
Sínrnr 32262 - 30280 oo 30480
Grensásvesi 22 - 24
Býsna þybbin
Kæri Póstur!
Mig langar til að biðja þig að
gefa mér róðleggingar. Ég er
býsna þybbin, og mig langar
mikið til þess að leggja af, en
það er þýðingarlaust. Ég hef
reynt allt, sem ég get til þess.
Ég vona, að þú hendir þessum
snepli ekki í ruslið, því mig
vantar þessar upplýsingar. Hvað
lest þú úr skriftinni?
Ein í vandræðum.
Þér væri hoilast aS fá læknis-
ráð um það, hvernig þér er bezt
að haga fæðinu, þannig að þú
fáir rétta næringu, ón þess að
neyta fitandi fæðu. Jafnframt er
hollt að stunda leikfimisæfingar,
hvort sem þú vilt drífa þig í
morgunleikfimina hjó Valdimar
oq Magnúsi eða sækja tíma hjó
einhverri, sem hefur leikfimi
fyrir almenning. Skriftin bendir
til hlédrægni.
Fyrirheitna landið
Sæll Póstur!
Eins og fjöldinn vil ég þakka
það, sem gott er í blaðinu. En
hvernig kemst ég til Israel?
Getur þú, Póstur góður, komið
mér í samband við Isfirðinginn,
sem kom í sjónvarpinu og ég
held að sé inni í þessum reisum
til ísrael?
Vongóður áskrifandi.
Margt ungt fólk virðist líta á
ísrael sem fyrirheitna landið og
hræðist hvergi óróann þar í
kring. Þetta er nefnilega aldeil-
is ekki eina bréfið, sem við höf-
um fengið af þessum toga. Því
miður vitum við ekki annað en
það, að lífið og sálin í þessum
ferðum íslenzkra unglinga til
starfa ó samyrkjubúum í ísrael
heitir Sigurður Grímsson og er
isfirðingur. En það er kannski
nóg?
Svar til „einnar
óhamingjusamrar"
Þú virðist hafa farið heimsku-
lega að róði þínu og hefur varla
efni á að áfellast karlmenn fyrir
að líta þig þessum augum.
Svona fer því miður stundum
fyrir stúlkum, sem hafa bundið
sig ungar, en slitið sig lausar
aftur. Sennilega hefurðu verið
gripin sektarkennd, þegar þú
stakkst þann síðasta af, auk þess
sem þú ert dauðhrædd við að
verða ástfangin aftur vegna
fyrri reynslu. Frekjan og flennu-
gangurinn í þér, sem þú talar
um, er trúlega mestmegnis til
þess að breiða yfir minnimátt-
arkennd og ósjólfstæði, sem m.
a. má lesa út úr skrift þinni.
Þér væri óreiðanlega fyrir beztu
að reyna að bæta framkomu
þína og umfram allt afstöðu
þína til karlmanna yfirleitt, óð-
ur en þú stígur skref í óttina til
þess, sem þú nú hefur óhuga á.
Karlmenn eru nú ekki bara kyn-
óðir úlfar, eða heldurðu það í
alvöru? Og í öllum bænum,
lóttu ekki vansæld þína bitna á
börnunum þínum.
Of lágt í aldurs-
bauknum
I dag er ég ung stúlka norður
á hjara veraldar, alveg sár-
grætilega spæld. Mun nú öldn-
um öðlingum ei þykja þetta
mikið til að spælast yfir, en það
finnst mér aftur á móti, mann-
eskjunni á versta aldri mann-
verunnar. Jæja, þannig er nú
mól með vöxtum vaxið, að síð-
astliðna nótt ætlaði ég á dans-
leik, eins og siður ungs fólks er
á laugardögum. Á dansleik þenn-
an þurfti ég að fá bíl og fékk á
mjög hagstæðan máta. Þegar ég
svo birtist við dansstað þennan,
sem er um 11 km frá heima-
byggð minni, er það fyrsta, sem
verður á vegi mínum, gamal-
kunn lögga. Hún stendur vic
miðasöluna, og geng ég því
rakleitt til hennar. Ég fer eitt-
hvað að kjafta við hana og kemst
þá að því, að inn á þennan dans-
leik muni mér ekki unnt að
komast, þar eð ég er aðeins 15
ára. Þótti mér þetta vitanlega
mjög sárt, en það var enginn
sjens á innkomu. Allir vinir
mínir, sem allir eru eldri en ég,
en sumir bara 2 mánuðum, kom-
ust inn, vegna þess að talan 16
hafði bætzt í aldursbauk þeirra.
En löggurnar fylgdu mér rak-
leitt út í bíl, einkabd að vísu, og
varð ég að fara beint heim, en
mátti ekki einu sinni heimsækja
vini mína þarna á staðnum og
4 VIKAN 20. TBL.