Vikan - 17.05.1973, Blaðsíða 5
vera þar, þar til dansleikurinn
var búinn, og fara svo með fé-
lögum mínum heim. Nei, þeir
háttvirtu herrar telja það víst
skaðlegt fyrir 15 ára og 10 mán-
aða ungling að fara heim með
fólki, sem er að koma heim af
dansleik og kannski búið að
smakka það. Jæja, en herrar
mínir, teljið þið, að unglingur,
sem er fæddur í september 1957
hafi ekki sama rétt til að
skemmta sér og unglingur, sem
er fæddur sama ár, en verður
16 ára 2—3 mánuðum á undan?
Svo bið ég ykkur að birta nafn
mitt ekki, heldur eitthvert fár-
ánlegt dulnefni, t. d. ilmvatn af
fínustu sort. Svo bið ég ykkur
að snúa ekki út úr, þó það vanti
kannski einhver rök í þessa
þvælu. Mér þætti gaman að
heyra, hvernig þið teljið mig
vera eftir skriftinni að dæma.
Chanel 5.
Pósturinn á dálítið bógt með að
koma því heim og saman, að
þig vanti aðeins tvo mánuði í
aldursbaukinn til að verða 16
óra, ef þú ert fædd í september
'57. Jæja, en þetta er náttúr-
lega skelfileg raunasaga, og
mikið hljóta böllin að vera orð-
in svakaleg nú til dags. Það eru
ekkert fjarska mörg ór, siðan
umsjónarmaður Póstsins var
yngri en þú núna, og þó var
hægur vandi að komast inn ó
hvaða bail sem var, þó svo í þó
daga væru slagsmál og smá-
skitiri fastir liðir. En „þeir hátt-
virtu herrar" vita sjálfsagt, hvað
ungdómnum er fyrir beztu, og
einhvers staðar verða mörkin að
vera. Þú hlýtur að komast yfir
þetta áfall, enda gefur skriftin
til kynna létta lund. Vonandi
ertu ánægð með þetta fárán-
lega dulnefni, Marilyn Monroe
kvað hafa sofið í þessu á sín-
um tima.
Lífsgátan mikla
Kæri Póstur!
Hér koma nokkrar spurningar,
sem okkur langar mjög mikið
að fá svör við, ef mögulegt
væri.
1. Geturðu sagt okkur, hvort
Gubby-fiskar sofa og þó hvern-
ig?
2. Þarf að borga af litlum ferða-
útvarpstækjum?
3. Hvað er mikilvægast í hjóna-
bandinu?
4. Hvað merkir hljómsveitar-
nafnið Póló?
5. Hvort er skaðminna að drekka
brennivín eða reykja hass?
6. Geturðu nefnt happatölur í
mónuðunum október, maí og
marz?
7. Hvað var Bjarki Tryggvason
gamall, þegar hann byrjaði að
syngja?
8. Er Þinghólsskóli í Kópavogi
lélegasti skólinn ó landinu?
9. Eru báðir leikararnir í Karl-
ar í krapinu ó lífi?
10. Hvað er Guðrún Á. Símonar
gömul, og hvað er hún þung?
11. Hvaða íslenzkar hljómplöt-
ur seldust mest á sl. ári?
12. Hvort eru vitrari kettir eða
hundar?
Og þó er líklega komið nóg af
svo góðu, en vonandi svarar þú
þessu eins og þú getur, því
sumt af þessu er mjög áríðandi.
Að lokum viljum við þakka Vik-
unni fyrir gott efni, sérstaklega
Póstinn. Með fyrirfram þökk.
H.Þ.K. og F.
(forvitnir nóungar).
Þar sem forvitnir náungar virð-
ast mjög hugsandi menn, skal
nú reynt að svala fróðleiksfýsn
þeirra.
1. Á vindsængum með uggana
undir vanga.
2. Aðeins ef maður á eitt svo-
leiðis.
3. Rúmið, bíllinn, ruggustóll-
inn, eftir því hvað hjónabandið
er gamalt.
4. Prins Póló bætir meltinguna,
gefur hraustlegt og gott útlit.
5. Vatn er skaðminnst.
6. 32.
7. Fárra sekúndna.
8. Háskóli íslands er ögn lé-
legri.
9. Þar sem Vikan er prentuð
dálítið fram í timann, þá er
ekki hættandi á að gefa svar
við þessu.
10. Hvort tveggja óþekktar
stærðir.
11. Auðvitað Lína.
12. Hundar að sjálfsögðu, af
þvi þeir mjálma ekki. — (Brást
Pósturinn trúnaðartrausti ykkar?)
o
RAFIÐJAN VESTURGÖTU 11 SÍM119294
RAFTORG V/AUSTURVÖLL SÍMI 26660
20. TBL. VIKAN 5
á