Vikan - 17.05.1973, Blaðsíða 6
SÍÐAN SÍÐAST
í ATVINNULEIT
Ævintýralegir sigrar Marks Spitz á
Olympíuleikunum í Múnchen hafa
komið honum í nokkurn vanda. Hann
veit ekki hvað hann á helzt að taka
sér fyrir hendur. Fjöldi fólks vinnur
að því að finna honum starf, sem verði
nógu tekjudrjúgt. En valið er erfitt.
Hins vegar hefur sundkóngurinn valið
sér konu. Hún heitir Susan Weiner
KEISARABÖRN A SKfÐUM
íranska keisarafjölskyldan dvaldi í
vetur í St. Moritz við vetraríþrótta-
iðkanir: Erfðaprinsinn Reza Cyrus, sem
beðið var svo lengi eftir í íran, notaði
sína eigin aðferð við að venja yngstu
systur sína við skíðin . . .
gpl
WBk
WmSm
'éÆwmí
KIRKJAN VAR FANGELSI
f þessari kirkju í Wounded Knee héldu
250 Indíánar af Sioux-Oglaættbálknum
ellefu hvítum gíslum föngnum. Guðs-
húsið stendur á sama stað og hermenn
Bandaríkjastjórnar myrtu 300 Indíána,
menn, konur og börn fyrir 83 árum.
Til að leggja áherzlu á mótmæli sín
hafa Indíánarnir dregið fána Banda-
ríkjanna að hún og láta stjörnurnar
snúa niður.
PRINSESSUTJALD
Nýlega var Anna Bretaprinsessa á ferð
í Eþíópíu og gestgjafi hennar var að
sjálfsögðu Halai Selassie keisari. Hann
bauð prinsessunni meðal annars í
þriggja daga reiðtúr og veiðiferð um
fjalllendið í norðurhluta landsins. í
ferðinni bjó Anna í þessu huggulega
tjaldi og undi hag sínum hið bezta.
ERFIR HANN
MILLJÓNIRNAR?
Jackie Onassis mun hafa fullan hug
á því að John-John, sonur hennar og
Kennedys fyrrum Bandaríkjaforseta,
erfi eitthvað af Onassisauðnum. Með
það fyrir augum reynir hún nú að fá
Aristoteles til þess að ættleiða John-
John og gera hann með því erfingja
sinn og milljónanna.
HYGGINN KOKKUR
Þessi api ráðleggur öllum þeim sem
fást við matreiðslu að nota aðeins beztu
vínárgangana í fína matinn, því að ef
einhver afgangur verður af flöskunni
má ekki minna vera en kokkurinn fái
hann fyrir matseldina.