Vikan - 17.05.1973, Side 8
Sú kona, sem Marlon Bran-
do hefur verið að leita að öll
sín fullorðinsár, er að líkind-
um alls ekki til. Eftir hans
mælikvarða, þá á konan að
vera fullkomin, það er: að
sætta sig við alla hans galla.
Hann er skapmikill og hann
krefst þess að vera allt í öllu
fyrir sitt nánasta umhverfi. Ég
hef orðið fyrir talsverðum
áhrifum frá honum, í þau
fjórtán ár, sem ég hef þekkt
hann. En ég hef aldrei verið
ástfangin af honum og hefði
aldrei látið mér detta í hug að
giftast honum, þótt hann hefði
beðið mín. Ákjósanlegasta fyr-
irkomulagið fyrir Marlon væri
örugglega að búa í stóru húsi,
með öllum sínum konum og
börnunum. En slíkt er að sjálf-
sögðu útilokað, ekki sízt vegna
þess, að þær konur, sem hann
hefur valið, eru yfirleitt mjög
skapríkar og jarðbundnar.
Hann virðist verða þögull og
innilokaður gagnvart fögrum
og háttvísum konum.
Hann er sjálfur alveg laus
við yfirborðsmennsku og gagn-
rýnir yfirborðskennt fólk mis-
kunnarlaust. Ég held að bezta
lýsing á honum sé, að hann
segir alltaf sannleikann um-
búðalaust. ■
Hann vill engan móðga.
Fyrir nokkru síðan vorum
við er drekka te á Dorchester
hótelinu í London og þá tók
hann eftir konur, sem starði
á okkur þvert yfir salinn og
hún talaði í sífellu við sessu
naut sinn. Marlon gekk rólega
til hennar og sagði: — Langar
yður til að horfa á okkur? Það
er allt í lagi, gjörið svo vel.
Það, sem hann í raun og veru
vildi segja var: — Það er mann-
legt að vera forvitinn.
Einu sinni þegar ég hitti
hann, eftir að ég hafði ekki séð
hann í heilt ár, var fyrsta
spurning hans: — Áttu ennþá
svart-hvíta kjólinn. Og þegar
ég kvað já við, sagði hann: —
Svitnar þú ennþá undir hönd-
unum? Ég hefði móðgazt, ef
einhver annar hefði lagt fyrir
mig þessa spurningu, en frá
Marlos hendi, var þetta eðli-
legt.
Hann tók um báðar hendur
mínar og sagðist aðeins vera
að athuga hvort þær væru rak-
ar eða þurrar. Svo lyktaði
hann af hári mínu og andar-
drætti. Hann skýrði þetta til-
tæki sitt á þann hátt, að það
væri mönnum nauðsynlegt að
sinna því dýrslega í eðli sínu,
til að skilja hver annan og þá
FINNIIR MARLON
ÞÁ KONU, SEM
OANN LEITAR AO?
Konur þyrpast í kringum hann, eins og mölflugur um Ijós. En líklega
hefur hann elskaS aðeins eina konu. Hann hefur ekki fundið hennar
líka enn, þótt hann sé stöðugt aðleita ...
að elska hver annan, ef sá
möguleiki væri fyrir hendi.
Dýrin verða að gera sig skilj-
anleg, án þess að hafa málið
eða önnur hjálpartæki. Eina
leiðin til náinnar vináttu, er
að þekkjast niður í kjölinn. Ég
vil benda á að þetta á ekkert
skylt við kynlíf. Ég hef séð
Marlon haga sér á þennan hátt
við karlmenn, sem hann hefur
mætur á.
Hann talar mikið um hvað
fó'lk „segi“ með höndum og
geri með fótunum. Hann legg-
ur meira upp úr látbragði og
limaburði, en því sem fólk seg-
ir. Ef hann virðir einhvern vel
fyrir sér, þá er það öruggt að
honum geðjast vel að þeirri
persónu.
Hann er þá að reyna að skilja
þig, komast á sömu bylgju-
lengd, vegna þess að hann hef-
ur áhuga á þér, þykir jafnvel
vænt um þig.
Ég hef heyrt hann segja bæði
við menn og konur: „Ég elska
þig.“ Hann á þá við að honum
líki í raun og veru vel við þig,
já, mjög vel.
Marlon hefur verið kvæntur
tveim konum og hann á fjögur
börn; eitt með hvorri eigin-
konu, Önnu Kashfi og Movitu
Castaneda og svo á hann tvö
börn með Taritu Terripai, sem
hann kynntist, þegar hann lék
í „Uppreisnin á Bounty'*.
En ég hef á tilfinningunni,
að hann hafi aðeins einu sinni
á ævinni verið ástfanginn. Hún
var ensk-indversk og samband
þeirra var ákaflega rómantískt,
enda talar hann ennþá um það,
þótt langt sé um liðið. Hann
hefur aldrei fundið hennar
réttlát gagnvart honum, verð
ég að segja, að hann hefur al-
drei svo ég viti til, yrt á stúlku,
sem hsfur verið í fylgd með
öðrum manni.
Hann getur leikið sér að því
að þykjast vera eitthvað ann-
að en hann er, heilt kvöld. Þá
breytir hann bæði um fram-
burð í tali og persónuleika. Ef
líka, þótt hann sé sífellt á
höttunum.
Og hvernig er svo afstaða
hans til kvenna? Ég held hann
hafi enga sérstaka afstöðu í
þeim málum. Það er nú eitt af
því, sem fylgir Marlon Bran-
do; hann þarf aldrei að hafa
neitt fyrir, þarf ekki að gera
neitt til að lokka til sín konur.
Ef hann fer í samkvæmi,
flykkjast konur að honum. Ef
hann fer á næturklúbb að
kvöldi, eins og hann gerir mjög
oft í fámennum hópi kunn-
ingja, á hann það til að bjóða
stúlku, sem honum lízt vel á,
upp á drykk. Ég man ekki eft-
ir að nokkur kona hafi neitað
boði hans. En til þess að vera
8 VIKAN 20. TBL.