Vikan - 17.05.1973, Page 9
hann vill látast vera Englend-
ingur, Rússi eða Þjóðverji, þá
breytir hann sér eftir því og
kvikar ekki frá því allt kvöld-
ið.
Hann hefur mikið dálæti á
alls konar leikjum. Þegar ég
vann hjá honum, lékum við
oft leik, sem hann kallaði
„Dead Bodies“. Hann var í því
fólginn að slökkt voru öll ljós
í húsinu og Marlon lagði af
stað með lítið vasaljós. Ég átti
svo að leita hann uppi, en
hrollvekjan var sú, að þegar ég
nálgaðist hann, kveikti hann
skyndilega á vasaljósinu.
Stundum var það í munni
hans; stundum hélt hann því
yfir höfði sér. Það gat verið
nokkuð skuggalegt að mæta
honum þarna í myrkrinu, með
vasaljósið í munninum, svo
ljósið skein í gegnuin kinnarn-
ar. Stundum opnaði ég kannski
klæðaskáp og þá skein ljósið á
berar fætur!
Ée hef aldrei kynnzt nokkr-
um manni. s«m sóttist eins eft-
ir félagsskap annarra manna.
Það kom fyrir að hann var
kynntur fyrir einhverjum
þrautleiðinlegum náunga, og sá
hinn sami ljómaði af ánægju
eftir stundarkorn.
Hann reynir að láta fólk finna,
að hann sé í þörf fyrir félags-
skap.
Ég minnist þess að einu sinni
hélt hann mikla veizlu í Lond-
on. Meðal gesta var mikilfeng-
legur maður frá rússneska
sendiráðinu og það fór ekki á
milli mála, að hann leit út fyr-
ir að vera ákaflega leiðinlegur.
Þegar Marlon kom inn í stof-
una, stóð Rússinn þar eins og
þvara. Marlon gekk beint til
hans, horfði á hann sínum góð-
legu augum — það skín alltaf
róðvild úr augum hans. — Það
var alveg furðulegt að sjá hve
Rússinn bráðnaði. Marlon
l°iddi hann til mín og kynnti
hann. „Veiztu hvað, hann heit-
ir Sivinsky. Finnst þér það
ekki fallegt nafn?“ Marlon
endurtók nafnið oft, eins og
hann væri að segja fam setn-
ingar ú Shakespeare og ég sá
hvernig andlitið á Rússanum
ljómaði.
VINUR MINN
SÍÐARI HLUTI
BRANDO
Marlon fór svo að tala um
rússneska menningu, ballettinn
og geimvísindin og maðuinn
vað æ glaðari á svip. Marlon
talaði svo um kímni — mis-
muninn á enskum, amerískum
og rússneskum skrítlum og við
fórum öll að tína til skrítlur,
málinu til sönnunar. Að lok-
um veltumst við öll um af
hlátri.
Rússinn gleymdi öllum há-
tíðleika og hló manna hæst.
Þegar Marlon sá það, færði
hann sig rólega til annarra
gesta og hóf sama leikinn á
ný; að láta fólk finna að hann
kynni að meta nærveru þess,
finna að návist þess væri
skemmtileg og að láta það
finna að það væri meðal vina.
Marlon hefði getað orðið mik-
ill stjórnmálamaður eða trúar-
leiðtogi, ef hann hefði ekki ver-
ið leikari.
Hann þjáist ekki af öryggis-
leysi, vegna þess að honum
finnst sjálfum að hann sé
skemmtilegasti og þægilegasti
maður, sem hann hefur haft
kynni af. Hann veit hvert hann
ætlar og hvert hann fer.
Hann hefur mjög ákveðnar
skoðanir á sumum málum, sér-
staklega kynþáttamálum og
umburðarleysi, en hann leggur
ekki í vana sinn að deila um
þau mál. Hann er mjög fljót-
huga, og framkoma hans ber
vott um einkennilegt sambland
af ákafa og einstakri ró. Þegar
hann er sem ákafastur, getur
hann allt í einu brugðið yfir í
glens. Þetta kann að virðast
einkennilegt í augum fólks,
sem hugsar um hann, eins og
hann var í fyrstu kvikmynd-
unum, þegar hann lék venju-
lega önuga og uppreisnar-
gjarna unglinga.
Það getur verið að einhvern
tíma hafi hann verið bitur og
reiðigjarn, því að hann hefur
sagt mér að æskuár sín hafi
verið ömurleg. Foreldrunum
kom illa saman og það voru
stöðugar erjur á milli þeirra
og hann var þvingaður til að
gera ýmislegt, sem hann vildi
ekki sjálfur. En velgengni síð-
ustu ára hafa breytt því öllu.
Hann liefur óvenjulega
borðsiði.
I eðli sínu er Marlon Brando
bráður í skapi, hann getur rok-
Astarævintýri Marlons Brando hafa löngum þótt
fréttnæm. Hér sjóum við myndir af eiginkonum hans
þrem. Það er Tarita, konan, sem hann kynntist,
þegar hann var ó Tahiti meðan ó töku kvikmyndar-
innar „Uppreisnin ó Bounty" stóð. Með henni á
hann tvö börn, Simon Tehotu og Taritu litlu. Til
vinstri er Anna Kashfi, sem hann kvæntist árið 1957,
hún er móðir sonarins Christians Devi. Hér fyrir
ofan er Movita Castenada, en henni kvæntist hann
árið 1960 og átti með henni soninn Serge Miko.
Marlo og Tarita eru reyndar ekki gift að lögum.
20. TBL. VIKAN 9